01.03.1956
Efri deild: 78. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1281 í B-deild Alþingistíðinda. (1260)
105. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins
Forseti (GíslJ):
Út af ummælum hv. frsm. minni hl. um, að ekki sé hægt að sjá, hver sé höfundur að því frv., sem hér liggur fyrir á þskj. 126, vil ég mega benda honum á, að það kemur skýrt fram í grg. frv. á því þskj., að það er hæstv. landbrh., sem hefur óskað eftir, að frv. verði lagt fram, og ber að sjálfsögðu ábyrgð á frv. sem höfundur, og er það ekkert nýtt í þingsögunni, því að það er almennt, að slík frv. eru flutt af nefndum og skoðuð nokkurn veginn sem stjórnarfrumvörp.