15.03.1956
Efri deild: 85. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1297 í B-deild Alþingistíðinda. (1272)
105. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Ég gat þess við 2. umr., að ég mundi marka mína afstöðu til þessa máls eftir því, hvort ég teldi, að frv. hefði í sér fólgnar búsifjar fyrir neytendur frá því, sem verið hefur, eða ekki, og mundi ekki treysta mér til að verða með frv., ef það gerði hag neytenda að einhverju leyti verri en hann hefur verið. En ég tók það skýrt fram, að ég teldi þá breytingu út af fyrir sig, að afnumin væri ríkiseinkasala og forstaða stofnunarinnar fengin fjölmennu ráði bænda, ekki horfa neytendum til ills, heldur út af fyrir sig, svo langt sem hún næði, mundi hún leiða til þess, að meira frjálsræði og sanngirni yrði í störfum þessarar stofnunar en verið hefur. Hinu lýsti ég jafnframt, að ef hægt væri að fá samkomulag um að afnema einkasöluna alveg, hvort heldur ríkiseinkasölu eða einkasölu í því formi, sem ráðgert er í þessu frv., þá mundi ég verða því samþykkur. Að athuguðu máli er það ljóst, að enginn meiri hl. er fáanlegur til þess á Alþingi að afnema einkasöluna, heldur er ágreiningurinn um það eitt, hvort hún eigi að vera í höndum eins stjórnskipaðs embættismanns eða undir yfirstjórn hins fjölmenna framleiðsluráðs, og eins og ég sagði áður, þá er ég, úr því að um þá tvo kosti er að velja, því sammála, að betur fari á og meiri sanngirni sé að vænta af framleiðsluráðinu en þessum eina stjórnskipaða embættismanni, sem þessi mál hefur að öllu haft undir sinni stjórn fram að þessu.
En við athugun á frv. kom í ljós, að 2. gr., eins og hún er óbreytt, felur í sér verulegar kvaðir á neytendur frá því, sem verið hefur, ekki fyrst og fremst varðandi grænmetið, vegna þess að einkasöluforstjórinn hefur haft það alveg í hendi sér, hvort leyfður skyldi innflutningur á grænmeti eða ekki, og það horfir þess vegna ekki í ófrelsisátt, þó að framleiðsluráðið fái þau úrslitaráð, sem einkasöluforstjórinn hefur haft áður. Ég tók það fram við 2. umr., að ef breytingin í gr. væri ekki meiri en þessi, þá væri ekki hægt að segja, að hér væri hallað á neytendur frá því, sem verið hefur. En í ljós kom, að það synjunarvald á innflutningi og útflutningi allra landbúnaðarafurða, einnig annarra en grænmetisafurða, sem í frvgr. er fengið þeirri stofnun, sem hér um ræðir, er algerlega nýtt. Slík heimild hefur ekki áður verið í lögum, og ég og nokkrir fleiri þm. d. vorum ákveðnir í því, að ef þessu ákvæði fengist ekki breytt, þá mundum við ekki treysta okkur til þess að fylgja frv. Nú hefur málum svo skipazt, að landbn. með þessa vitneskju í huga hefur orðið sammála um að færa greinina í það horf, sem ég tel aðgengilegt, að framleiðsluráð hafi hér umsagnarrétt. Það er mjög eðlilegt, að fulltrúar bændanna eigi rétt á því að láta uppi sitt álit um þetta. Hitt gat ekki komið til mála, að fela þeim úrslitaákvörðunarvaldið í svo viðtæku máletni. Það gleður mig mjög, að hv. þm. S-Þ. (KK) sagði, að aldrei hefði verið meiningin að sækjast eftir svo viðtæku valdi, enda ber að játa, að n. féllst ljúflega á breytinguna, þegar málið hafði verið athugað, og er þá ánægjulegt, að allir geta vel við unað, aðrir en þeir, sem vilja halda við einveldi „einvaldsklónna úr Hornafirði“.