19.03.1956
Neðri deild: 89. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1325 í B-deild Alþingistíðinda. (1282)
105. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Þetta mál var mikið rætt hér í d. og um það mjög skiptar skoðanir, og fóru þannig leikar eftir miklar umræður, að fram fékkst á frv. ein lítils háttar breyting, — þó veit ég ekki, hvort hún er svo mjög lítils háttar fyrir neytendur, því að í frv. var ákvæði um það, að setja skyldi á verðjöfnunargjald, sem greitt yrði af öllum matjurtum, ef framleiðsluráð teldi það nauðsynlegt, til þess að hægt yrði að jafna verðið milli söluvara annars vegar og vinnslu- eða fóðurvara hins vegar. Það er enginn vafi á því, að þetta verðjöfnunargjald hefði getað orðið til þess að hækka verð á kartöflum til neytenda, og óljóst var mjög í frv., hvort það væri ekki þannig hugsað, að þetta ætti að vera til þess að lækka verð á úrgangskartöflum og fóðurkartöflum, en hækka aftur kartöflurnar til manneldis. Engar skýringar fengust fram á því, en allar líkur benda til þess, að þannig hafi þetta verið hugsað og þannig eitt af mörgum atriðum frv., sem beint var stefnt og greinilega var stefnt gegn hagsmunum neytendanna, enda frv. allt því markinu brennt. Það má segja það til lofs hv. landbn., að hún féllst þó eftir alla orrahríðina á að breyta þessu á þann veg, að þetta atriði yrði fellt út úr frv. Það var undanhald, sem mátti heita virðingarvert. En hins vegar neitaði hún um að gera nokkrar aðrar lagfæringar á frv., bæði efnislegar og formlegar, og hefðu þær þó skipt tugum, þær breytingar, sem þurft hefði að gera á frv., ef vel hefði átt að vera, svo að það væri sómasamlega úr garði gert sem löggjöf og nokkurn veginn gætt að jöfnu hagsmuna framleiðenda og neytenda. En þannig fór frv. frá þessari hv. d. til Ed., að það var greinilega gengið þar á hag og rétt neytendanna og málinu sem sé ætlað að leysast á þann veg, að grænmetisverzlun ríkisins yrði lögð niður og allt hennar starf fært í hendur framleiðsluráðs landbúnaðarins.
Svo var komið, að ýmsir þingmenn kaupstaðanna, alveg án tillits til flokka, voru orðnir sannfærðir um það, að þeir vildu ekki standa augliti til auglitis við þann vanda, t.d. fyrir kosningar, að hafa greitt atkv. með slíku frv. og geta þannig verið ábyrgir fyrir því, ef framleiðsluráð kynni að vera sparsamt á það að flytja inn kartöflur, meðan væri verið að svæla upp lélegum kartöflum og koma þeim út á góðu verði í neytendurna í kartöfluleysi, og vildu því ekki leggja atkvæði sitt við það ástand, sem þessi einkasöluaðstaða framleiðsluráðsins gæti skapað, þau vandræði, sem það gæti leitt yfir neytendurna. Fór svo, að hv. þm. Ak. og hv. borgarstjórinn í Reykjavík sáu sér ekki fært að greiða frv. atkv., og ýmsir fleiri úr kaupstöðum fóru á þá leið við atkvgr. og snerust gegn málinu, þrátt fyrir það að vitað sé, að þetta sé hörkusamningamál milli stjórnarflokkanna. Handjárn brustu þarna, sem sjaldan kemur þó fyrir, af því að atkvæðahræðslan varð yfirsterkari og alls ekki að ástæðulausu.
Þegar frv. kom svo til Ed., var það þar rætt í landbn., n. þar klofnaði um málið, og þar voru bornar fram mjög margar brtt. við frv., brtt., sem allar voru svo sjálfsagðar, að maður getur ekki látið sér detta í hug annað en að þær hefðu verið samþykktar einróma, ef menn hefðu verið með óbundnar hendur, þeir sem um málið fjölluðu. Þannig fórn þó leikar, að nefndin, eftir að hún hafði frestað afgreiðslu um sinn og hugsað sig betur um, féllst á að gera tvær smávægilegar breytingar á frv., treysti sér ekki til að standa gegn brtt. eins og þeirri, að í stað þess að í frv. stóð, að það skyldi leita samþykkis framleiðsluráðs, skyldi koma nokkru hlutlausara orðatiltæki, að leita umsagnar. Það þorði þó landbn. ekki að hunza. Og sú breyting var samþykkt þar og enn fremur, að orðin „að dómi framleiðsluráðs“ í sömu mgr. féllu niður, sem einnig var alveg augljóslega sjálfsagt mál. En hinar till allar, sem voru jafnsjálfsagðar, ef gæta átti hagsmuna neytenda, voru samt allar felldar. En af því að þessar tvær smábreytingar gengu í gegn í Ed., er málið nú komið hingað aftur til frekari íhugunar fyrir hv. deild, og væri nú vonandi, að d. notaði þann umhugsunarfrest, sem enn þá gefst, til þess að hugleiða, hvort það sé rétt t.d. neytendanna vegna að samþykkja þetta frv. eins og það nú liggur fyrir. Það væri og umhugsunarvert, hvort það er svo mikið hagsmunamál fyrir bændastéttina sem látið hefur verið í veðri vaka, að það sé gerandi að knýja þetta mál fram sem hatrammt deilumál milli neytenda og framleiðenda, svo að ég álít, að hvort tveggja formælendur og andstæðingar frv. hafi ástæðu til þess að hugsa sinn gang, áður en þeir stuðla að því, að málið verði afgreitt á þessu þingi. Það hefur verið boðið upp á það, að málinu yrði frestað til næsta þings og þá athugað, hvort ekki væri hægt að finna lausn á þessu máli, þannig að bæði neytendur og framleiðendur mættu vel við una, ef vilji væri til að leysa málið sem samkomulagsmál. En það virðist liggja svo mikið á að afgreiða þetta, að á slíkt er ekki hlustað, og rökstudd dagskrá um þetta efni hefur verið felld hér áður í deildinni.
Það hefur verið mjög um það spurt, hvaða sannanir sé hægt að færa fram fyrir því, að bændastéttin sjálf leggi mikla áherzlu á samþykkt þessa frv. Við höfum ekki orðið varir við það, að nokkurs staðar hafi heyrzt samþykktir frá bændum um að samþykkja frv. Hins vegar liggja fyrir þinginn mótmæli gegn samþykkt frv., eins og hv. síðasti ræðumaður, hv. 2. þm. Reykv., minnti hér á áðan. Það hafa í fyrsta lagi borizt mótmæli frá neytendasamtökunum í Reykjavík. Það hafa í annan stað borizt mótmæli frá Bændafélagi Eyfirðinga. Og það hefur í þriðja lagi borizt mótmælasamþykkt frá bæjarstjórn Reykjavíkur. Og samþykktin, sem gerð var á hinum fjölmenna bændafundi á Selfossi, þar sem samþykki við frv. var marið í gegn í þriðju atrennu með 22 eða 24 atkv. gegn 4 eða 5, held ég, — það voru í raun og veru mótmæli bændanna, þar sem sama blað sagði frá því, að þarna hefðu verið saman komnir hátt á annað hundrað bændur alla leið frá Vík í Mýrdal vestur í Selvog, eða af öllu Suðurlandsundirlendinu. Slíkar undirtektir bændasamkomu eins og þeirrar voru greinileg mótmæli gegn frv. og alger sönnun þess, að þetta væri síður en svo áhugamál bændastéttarinnar. En þrátt fyrir allt þetta hafa menn hingað til látið daufheyrast.
Nú vil ég vekja athygli þó á einu atriði og skal eiginlega halda mér við það eina atriði. Það er upplýst mál, að eitt af því, sem framleiðsluráð landbúnaðarins á að sjá um nú og hefur séð um að undanförnu, er mat á kartöflum og grænmeti. Þetta var ekki svo fráleitt, að framleiðsluráð landbúnaðarins sæi um þetta, meðan sölumeðferðin var á höndum annars aðila, sem sé grænmetisverzlunar ríkisins. En er það réttmætt, og er það öryggisráðstöfun fyrir neytendurna, að nú verði það þannig, að mat á kartöflum, sölumeðferð á kartöflum og allt það, sem snertir sölumeðferð þessarar vöru, sé í höndum sama aðila? Er það ekki alveg auðsætt mál, að þegar grænmetisverzlun landbúnaðarins tekur við öllu saman, sölunni og hefur matið á hendi, þá á auðvitað að setja matið í hendur annarra aðila? Vitanlega er það alveg nauðsynleg afleiðing af þessari breytingu, að framleiðsluráð landbúnaðarins telur að sér sölumeðferðina, að þá á það að láta af hendi valdið til þess að meta þessar vörur til neytendanna, og á auðvitað að falla undir valdsvið eiðsvarinna matsmanna, sem eru til þess kvaddir, eins og þegar verið er að skapa öryggi um vörugæði á öðrum sviðum.
Ég mun því bera fram brtt. og þá einu brtt. nú til þess að sannprófa, hvort d. er alveg staurblind á auðsæ rök og lagfæringu, mikla nauðsynjalagfæringu að því er snertir hagsmuni neytendanna. Till. mín er um það, að á eftir b-lið í 4. gr. frv. komi nýr stafliður, sem verði c-liður, svo hljóðandi:
„Mat á kartöflum skal ekki vera í höndum framleiðsluráðs, heldur verði skipaður sérstakur eiðsvarinn matsmaður kartaflna og annars grænmetis.“
Ég held, að það sé þess vert að taka eftir því, hvort hv. alþm. telja það rétta málsmeðferð og telja hagsmunum neytenda vera borgið með því, að allar hliðar þessa máls séu í höndum eins og hins sama aðila, framleiðsluráðs landbúnaðarins, og einnig matið, eftir að það hefur tekið við sölumeðferðinni. En ef menn komast að þeirri niðurstöðu með atkvæði sínu, þá held ég, að það sé auðsætt mál, að eitthvað annað hafi stjórnað afstöðu þeirra en heilbrigð skynsemi. Þar sem þess eru dæmi, að nefndin við fyrri meðferð málsins hafði þó tekið eina brtt. til greina, þá teldi ég nú fyllstu ástæðu til þess, að afgreiðslu málsins yrði frestað um sinn og málið sent aftur til meðferðar í n., m.a. til þess, að hún athugaði, hvort hún teldi ekki rétt að gera þessa breytingu og færa réttinn til matsins úr höndum framleiðsluráðsins, eftir að búið væri að lögfesta, að sá aðili skyldi fara með sölumeðferðina.
Ég beini þeim tilmælum sem sé til hæstv. forseta og til hv. landbn., að hún athugi þetta atriði út af fyrir sig, og vil óska þess, að hún gæti séð sér fært að mæla með þessari till. og helzt að gera hana að sinni till.
Annars þarf ég ekki að taka það fram, að ég tel málíð allt vera þess eðlis, að það ætti að vísa því frá til nánari athugunar á því, hvort ekki finnist friðsamlegar leiðir til lausnar þessu máli, svo að bæði neytendur og framleiðendur gætu sómasamlega við unað, en þetta verður aldrei til annars en að vekja illindi á milli þessara tveggja aðila.