23.03.1956
Efri deild: 92. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1333 í B-deild Alþingistíðinda. (1301)

104. mál, sjúkrahúsalög

Frsm. (Karl Kristjánsson):

Frv. þetta um breytingar á lögunum um sjúkrahús frá 1953 er um að auka dálitlu við þátttöku ríkisins í því að koma upp fullbúnum sjúkrahúsum á vegum sveitarfélaga og landsfjórðunga. Lögin hafa verið framkvæmd þannig, að þátttaka ríkisins í stofnkostnaði hefur eingöngu verið miðuð við byggingu sjúkrahúsanna. Ríkið hefur greitt, ef bæjarfélög hafa staðið að sjúkrahúsabyggingum, 2/5 byggingarkostnaðar húsanna, en ef önnur sveitarfélög hafa reist húsin, þá hefur ríkið greitt 2/3 af kostnaðinum. Hafi aftur á móti verið reist fjórðungssjúkrahús, hefur ríkið greitt 3/5 kostnaðar. Auðvitað mál er það, að sjúkrahúsalóðir geta þurft lagfæringar, til þess að þær hæfi húsi og þeim, er þar eiga að hafa dvöl. Þær eru í raun og veru hluti af húsinu. Enn fremur þarf sjúkrahús mikinn innri búnað, sem kostar mikið fé. Þessi búnaður má ekki vera af svo miklum vanefnum, að sjúkrahúsið sé ekki fært um að velta sjúklingum og starfsfólki forsvaranlega vist. Það er hefndargjöf, að ríkið hjálpi til að byggja sjúkrahús, en svo vanti áhöld í húsið, af því að hlutaðeigendur hafa ekki fjármagn til þess að kaupa þau. Um þetta eru til dæmi deginum ljósari.

Nú er lagt til með frv. þessu, að aðstoð ríkisins nái einnig til lagfæringar á byggingarlóðum sjúkrahúsa svo og til alls, sem er múr- og naglfast, þar með talin öll meiri háttar eldunartæki, matreiðsluvélar, sem nota á til frambúðar í eldhúsi, meiri háttar þvottavélar í þvottahúsum sjúkrahúsa. Þegar um sjúkrahús 20 sjúkrarúma og þar yfir er að ræða, koma einnig til greina samkvæmt frv. aðalröntgentæki, enda sé það tæki miðað við hæfi sjúkrahúss þess, sem hlut á að máli. Styrkurinn vegna kaupanna á innbúnaðinum fari þó ekki yfir 2/5 kostnaðarverðs, þ.e. kaupverðs. Loks er ákveðið, að frv., ef að lögum verður, nái með ákvæði sínu til sjúkrahúsa, er tekin hafa verið í notkun í ársbyrjun 1952 eða síðan þá.

Frv. þetta var lagt fram í Nd. Þar voru samkv. till. heilbr.- og félmn., er hafði frv. til meðferðar, gerðar á því tvær breytingar, önnur mjög smávægileg orðabreyting, hin breytingin að hafa greiðslu ríkisins á kostnaðarverði hins tiltekna innbús ekki yfir 2/5 hluta kostnaðar, hvaða sjúkrahús sem í hlut eiga. Frv., svo breytt, var afgreitt ágreiningslaust út úr Nd., að því er ég bezt veit.

Heilbr.- og félmn. þessarar hv. deildar hefur rætt frv. Hún telur rétt, að ákvæði þess verði gerð að lögum, og leggur því til, að frv. verði samþykkt óbreytt.