10.12.1955
Neðri deild: 30. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 75 í B-deild Alþingistíðinda. (131)

86. mál, laun starfsmanna ríkisins

Karl Guðjónsson:

Herra forseti. Ég skrifaði undir það nál., sem hér liggur fyrir, með fyrirvara. Ég tel að sjálfsögðu rétt, að Alþ. endurskoði gildandi launalög opinberra starfsmanna, enda eru þau nú orðin nokkuð gömul og mikil þörf á því á ýmsum liðum, að þar sé bætt um, einkum hjá þeim starfsmönnum ríkisins, sem eru í hinum lægri launaflokkum. Þess vegna tel ég, að það væri illt verk að koma í veg fyrir samþykkt þessa frv. En hitt er annað mál, að inn á þessu frv. eru fjölmargir liðir, sem mjög orka tvímælis um það, hvort þeir geti talizt sanngjarnir. Ég tel þó, að það sé vert að stuðla að því, að þetta frv. fái afgreiðslu, og hef þess vegna fyrir mitt leyti fallizt á að flytja ekki sérstakar eða einstakar brtt. við hina ýmsu liði frv., heldur láta við þessa umr. við það sitja að láta hér koma til atkv. þær till., sem launamálanefnd ríkisins hefur gert og fjhn. þessarar d. hefur fallizt á að rétt væri að láta koma hér til atkvæða við þessa umr.

Vildi ég þá aðeins víkja að öðrum þætti þessa máls, en hann er sá, að á s. l. vetri gerðu verkalýðsfélög nokkur, einkum hér í Reykjavík og nágrenninu, kröfu um kauphækkun. Þessi kauphækkunarkrafa verkalýðsfélaganna nam 20%, og í þeim heildarkröfum, sem gerðar voru, voru einnig kröfur um nokkur önnur hlunnindi, og hefur það verið metið á ýmsa lund. Ekki hygg ég þó, að með neinni sanngirni sé hægt að segja, að verkalýðsfélögin hafi farið fram á meira en 30% kjarabætur samtals bæði í kaupuppbótum og öðrum fríðindum.

Það þarf ekki að rekja það, að stjórnarvöldin, sem sitja að völdum í okkar landi, bæði ríkisstjórnin sjálf og hv. stuðningsmenn hennar hér á Alþ. svo og málgögn hennar, ætluðu hreint að rifna af þessari ósvífni verkalýðssamtakanna að láta sér detta í hug að krefjast jafnvel allt að 30% kjarabóta fyrir verkafólk. Ekki áttu blöð þeirra að vísu öll óskilið mál um það, hvernig þau tóku þessum málaleitunum verkalýðsfélaganna, en kröfur verkalýðsfélaga eru að sjálfsögðu ævinlega og hljóta að vera, eins og allt er í pottinn búið um samninga, settar fram nokkru hærri en félögin raunverulega geta gert sér vonir um að ná fram.

Ég þarf ekki að rekja það, að eftir margra vikna verkfall náðu verkalýðsfélögin fram 10% kauphækkunum og nokkrum öðrum kjarabótum, sem meta má að nemi máske um 2% í kauphækkun og til viðbótar um 5% í kjarabætur, sem ríkisstarfsmenn höfðu áður fengið, þannig að miðað við ríkisstarfsmenn má kannske telja að verkalýðsfélögin hafi náð fram um það bil 12% kjarabótum.

Ef við höldum svo áfram að hugleiða, hvernig ríkisstj. og hvernig yfirleitt afturhaldið í þessu landi brást við þessum kjarabótum verkalýðsfélaganna, þá stendur það mjög í björtu, að alltaf síðan, seint og snemma, hefur ríkisstj. og málsvarar hennar og blöð hennar hamrað á því, að upp sé risin í okkar þjóðfélagi stórkostleg þjóðarógæfa, sem mikill vafi sé um, hvort nokkru sinni verði yfirstigin, einmitt af því að um þessar kauphækkanir eða kjarabætur var samið við verkalýðshreyfinguna. Þessu til viðbótar liggur það hreinlega fyrir, að áróðursmenn ríkisstj. halda því jafnan fram, að verkamenn hafi tapað á þessum kjarabótum. Þeir benda á allar þær verðhækkanir, sem fram hafa farið í landinu síðan, og telja, að þær séu beint eða óbeint þessari kauphækkun og kjarabót að kenna.

Nú er það auðvitað vitað, að slík kjarabót sem þarna var samið um getur ekki valdið almennt í verðlaginu nema 2–3% verðhækkun, þar sem vinnan er að sjálfsögðu ekki nema nokkur og víða lítill þáttur í verðmynduninni.

En þegar nú kemur að því að endurskoða launalög, virðast þeir góðu ráðamenn, sem þannig telja, að allt hafi verið drepið með 10% kauphækkun verkamanna, og þó einkum að verkamenn hafi komið þarna illa í bakið á sjálfum sér og skaðað sig frekar en bætt hag sinn með þessari kauphækkun, líta allt öðrum augum á það, hvernig þetta verkar nú á þá sjálfa.

Á einu ári, sem nú er liðið, þ. e. a. s. frá því seinni hluta desember í fyrra og til þessa tíma, hafa verið gerðar ýmsar launabreytingar hjá því opinbera, og er nú þessi kannske ekki hvað minnst um verð, sem hér er til umræðu og væntanlega verður samþykkt hér innan fárra daga. Það má aðeins rifja það upp, hvað skeð hefur.

Seinni hluta desember í fyrra var, eins og hv. þm. A-Húnv. minntist hér á í ræðu sinni, gerð í sambandi við samþykkt fjárlaga ein veruleg launabreyting opinberra starfsmanna. Hún lá í því, að til þess að mæta þeim launamismun, sem orðinn var á hinum frjálsa markaði og aftur hjá ríkisstarfsmönnum, hafði ríkið nokkur undanfarin ár bætt upp laun opinberra starfsmanna stighækkandi, þannig að þeir, sem höfðu laun eftir lægri launaflokkum launalaga, fengu að prósenttölu til hærri uppbót en þeir, sem tóku laun eftir hærri launaflokkum. Í I.–III. launaflokki var greidd 10% kaupuppbót á grunnlaun, í IV. flokki voru greidd 12%, í V.–IX. flokki voru greidd 15%, og í X.–XV. flokki voru greidd 17% í launauppbætur. En við samþykkt fjárlaga seinni hluta desembermánaðar í fyrravetur var þessu öllu slengt í eitt og greidd 20% uppbót á laun allra starfsmanna ríkisins. Þetta þýddi að sjálfsögðu það, að hinir hæst launuðu voru hækkaðir um 10%, en þeir, sem voru í lægri flokkunum, hlutu aðeins 3% uppbót á laun sín. Þannig var launamismunurinn aukinn verulega. Í maímánuði s. l. samþykkti Alþ. svo breytingar á lögum um greiðslu verðlagsuppbótar á laun opinberra starfsmanna, þannig að engin vísitöluskerðing skyldi koma á laun, sem nema allt að 34560 kr. á ári, en á laun, sem væru þar umfram, skyldi greiða 23% uppbót. Þetta þýddi að sjálfsögðu líka langmesta hækkunina til handa hálaunamönnum. En til þess að þetta færi ekki algerlega fyrir ofan garð og neðan hjá þeim lægst launuðu, var sleginn sá varnagli í þessum lögum, að launauppbót skyldi þó að lágmarki ná 5% til allra.

Nú fyrir fáeinum dögum voru hér á Alþ. enn samþ. lög um greiðslu verðlagsuppbótar á laun opinberra starfsmanna, þar sem er ákveðið, að engin vísitöluskerðing skuli reiknuð á nein laun hjá ríkinu, og gerir það að sjálfsögðu þeim, sem enn höfðu nokkra skerðingu, enn rýmra fyrir dyrum, þannig að hækkunin er orðin mjög veruleg hjá hæst launuðu flokkunum, en tiltölulega lítil hjá lægri flokkunum, þannig að áður en þetta frv., sem hér liggur fyrir, kemur til afgreiðslu, liggur það fyrir, að þegar hefur orðið um að ræða mjög verulega hækkun á kaupi þeirra hæst launuðu, en þeir, sem eru í lægri launaflokkunum, hafa fengið um það bil 8% kaupuppbót á þessu tímabili.

Þetta frv., sem hér liggur fyrir, gerir hins vegar ráð fyrir, að laun hækki, það er nú kallað í frv. um 9½%, sem þó raunverulega er ekki alveg rétt, miðað við daginn í dag, því að hjá lægstu flokkunum hækkar það úr þeim 8%, sem fyrir voru, um 4–5%, 4½% því sem næst. Og ef við lítum nú á, hvað skeð hefur frá því í fyrra um þetta leyti og þar til væntanlega þessi lög koma til framkvæmdar í næsta mánuði, þá er vert að fara hér aðeins yfir og hugleiða svolítið, hvað það er, sem skeður við samþykkt bæði þessara launalaga og annarra þeirra laga, sem taka til kaupgreiðslna til þeirra, sem starfa í þjónustu ríkisins.

Í þessu frv., sem hér um ræðir, er XIII. launaflokkur miðaður við það, að þeir, sem í honum eru, hafi svipuð laun og Dagsbrúnarverkamenn í Reykjavík hafa. Við getum þess vegna litið á þann flokk, því að ég hef ekki ástæðu til þess að vefengja þessa röksemd launamálanefndar, sem laun hinna almennu starfsmanna. Í þessum flokki eru afgreiðslumenn og nokkrir fleiri, ritarar nokkrir. Í desember í fyrra voru mánaðarlaun þeirra manna, sem í XIII. launaflokki eru, kr. 2790.45. Ef vísitala hefði haldizt óbreytt frá þeim tíma, þ. e. a. s. ég tek ekki með í þennan útreikning vísitölubreytingu, — ef kaupgjaldsvísitalan væri enn þá 159 stig, eins og hún þá var, mundu þeir fá í janúar næsta ár kr. 3140.35, þ. e. a. s. mánaðarlaun þeirra hefðu á þessu tímabili hækkað, þegar ekki er tekið tillit til vísitölubreytingarinnar, um kr. 349.90. Launahækkunin, sem svarar til grunnlaunahækkunar, er 12½%. Nú er hins vegar vitað, að vísitalan, sem greitt verður eftir í janúar, er 171 stig, og þess vegna verða laun manna í XIII. flokki þá raunverulega kr. 3375.25, eða launahækkun alls með vísitölu og öllum launahækkunum nemur þá frá því í desember í fyrra þangað til í janúar næsta ár um kr. 586.80, — en sem sagt hin raunverulega grunnlaunahækkun, sem maður getur kallað svo, hjá þessum flokki er 12.5%, eða svipuð og hjá verkamönnum. Ég skil þess vegna ekki, með hvaða sanngirni væri hægt að mótmæla þessari launahækkun. Ég skal taka undir það með hæstv. fjmrh., að ég sé engin rök fyrir því að láta starfsmenn ríkisins standa í stað, þegar aðrir sambærilegir launaflokkar hækka. Hins vegar vil ég eindregið mótmæla þeim ummælum hans, að þetta frv. fjalli eingöngu um það að færa starfsmenn ríkisins til samræmis við aðra, því að á ýmsum hærri liðum frv. gengur það langt út fyrir það, sem hægt er að kalla nokkurn samanburð, og skal ég nú nefna nokkur dæmi um það.

Ég hef reiknað af handahófi örfá dæmi. Fyrst urðu fyrir mér skrifstofustjórar í ýmsum ríkisfyrirtækjum, t. d. í áfengisverzlun ríkisins, tóbakseinkasölunni, ríkisprentsmiðjunni, landssmiðjunni, áburðar- og grænmetisverzluninni — og sjálfsagt eru þeir einhverjir fleiri. Þessir skrifstofustjórar höfðu í desembermánuði s. l. kr. 3956.13 í kaup. Í janúar n. k. fá þeir væntanlega í kaup kr. 5326.50, ef þetta frv. nær fram að ganga, sem fáir efast nú víst um. Launahækkun þeirra á mánuði mun þess vegna verða frá því í desember í fyrra þangað til í janúar n. k. á mánuði, án þess að tekið sé tillit til vísitölubreytingar, kr. 1370.37, eða hækkun, sem nemur 34.6% rúmlega. Það er sem sagt hærra en allar kröfur, sem verkamenn settu fram í verkföllunum síðast og ríkisstj. taldi hvað mesta óhæfu, sem sézt hefði á þessu landi.

Svipað kemur út, ef við lítum t. d. á prófessora við Háskóla Íslands. Þeir höfðu í desembermánuði í fyrra í kaup kr. 4698.74, en kaup þeirra í janúar n. k., miðað við sömu vísitölu, mundi verða kr. 6280.50, eða kauphækkun miðað við óbreytta vísitölu kr. 1581.76, þ. e. 33.5% tæplega. Þá komum við að skrifstofustjórum í ráðuneytunum. Þeir höfðu í fyrra í kaup í desembermánuði kr. 4906.30. Í janúar n. k. kæmu þeir til með að fá að óbreyttri vísitölu kr. 6797.25, eða hækkun, sem nemur 38.5%. Auk þess hygg ég, að þessir menn hafi á þessu sama tímabili fengið eins konar kauphækkun, þótt dulbúin væri, þar sem þeim mun hafa verið ákveðinn 9000 kr. árlegur bílastyrkur, sem gerir 750 kr. á mánuði, og er hann ekki afnuminn með þessum lögum, þannig að kauphækkun þessara manna frá því í desember í fyrra og til þess, sem verða mun í janúar n. k., mun nema að óbreyttri vísitölu 53.8%. Þessir menn starfa það nálægt ráðherrunum, að þeir ættu að hafa öll tök á því að hleypa ekki launagreiðslum til þeirra út í neina óhæfu.

Ráðherrarnir sjálfir hafa nú að vísu verið teknir út úr þessu launalagafrv., en eins konar dilkur fylgir þó þessu launalagafrv., sem er frv. um laun ráðherra, sem væntanlega kemur hér til umr. nokkuð samhliða þessu frv. Þar er gert ráð fyrir, að laun ráðherra breytist verulega. Í desembermánuði í fyrra munu ráðherralaun samkv. launalögum og þeim reglum, sem um það kaup giltu, hafa numið kr. 5847.25. Í janúar í ár mundu þau væntanlega verða að óbreyttri vísitölu, og þá er auðvitað reiknað með því, að frv. um laun ráðherra verði samþ., kr. 8612.50. Hækkun á þessu tímabili á mánuði miðað við óbreytta vísitölu er kr. 2765.25, eða launahækkun hjá ráðherrum 47.3%. Nú væri það ekki mikið að borga ráðherrum vel, ef það væri einhver dugur í þeim, en ráðherrar, sem telja það sína aðalskyldu við þjóðina að reyna að halda lífskjörum manna almennt niðri, leggja sig fyrst og fremst fram um það, að kaupgjald í landinu sé ekki hækkað, telja það óhæfu, ef verkamenn setja fram kröfu um 20% hækkun, og álíka mikla óhæfu, þegar þeir ná fram samningum um 10% hækkun, ættu sannarlega að hafa frekar hljótt um sig um þá þjóðarógæfu, sem þeir annars telja þetta vera, þegar þeir eru sjálfir búnir að fá 47.3% launahækkun. Ég efast ekki um það, enda þótt mér sé það ekki alveg kunnugt, að þeir muni ekki síður en þeirra ráðuneytisstjórar eða skrifstofustjórar í ráðuneytunum hafa hækkað ýmiss konar hliðartekjur hjá sér, svo sem eins og eitthvað samsvarandi bílastyrk eða þess háttar, svo að ég efast ekki um það, að þeirra raunverulega kaupbreyting að óbreyttri vísitölu er yfir 50%, þegar kemur fram í janúarmánuð næsta ár.

Þrátt fyrir þessa stórkostlegu annmarka og ósanngirni, sem felst í þessu frv., og ætla ég ekki að fara frekar út í einstaka liði þess að þessu sinni, tel ég samt rétt, að frv. verði látið ná fram að ganga, því að það er að sjálfsögðu óhæfa, að lægri launaflokkarnir nái ekki fram þeim kaupbreytingum, sem þeim eru ætlaðar í þessu frv. Og það er í alla staði eðlilegt, þegar launalög hafa staðið jafnlengi og nú er, á jafnbreytingasömum tímum, að þau séu einmitt tekin til endurskoðunar nú. Það er hins vegar ógæfa, bæði hinum íslenzka ríkissjóði og sömuleiðis íslenzkra ríkisstarfsmanna, þeirra sem ekki eru alveg sérstaklega í náðinni hjá ríkisstj. og sitja sem næst ráðherrastólum, að slík endurskoðun skuli fara fram undir valdi slíkra manna sem nú sitja í ríkisstj. Íslands og jafnfráleitir eru og óhæfir til þess að meta að verðleikum störf íslenzkra þjóðfélagsþegna eins og þetta frv. ber með sér að íslenzka ríkisstj. er og eins og öll hennar afskipti af launamálum alþýðustéttanna hafa þó enn þá frekar sýnt.