26.03.1956
Neðri deild: 96. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1361 í B-deild Alþingistíðinda. (1393)
197. mál, gjafabréf fyrir Þykkvabæ
Frsm. (Ásgeir Bjarnason):
Herra forseti. Það voru aðeins tvö atriði, sem ég vildi svara hv. 2. þm. Reykv. út af því, sem hann sagði hér áðan. Hann talaði um það, að þetta gjafabréf hefði verið mjög merkilegt og byggt á mikilli framsýni á sínum tíma, og ég vil taka undir þau ummæli hjá honum, að þetta gjafabréf hefur verið gert af mikilli framsýni og einmitt gefendurnir að þessari jörð hafa verið það framsýnir, að þeir hafa gert ráð fyrir, að það þyrfti ef til vill að breyta gjafabréfinu eitthvað, og því aðeins sett það í gjafabréfið, að því skyldi breytt af Alþingi og ekki öðrum. Þetta kalla ég framsýni og fyrirhyggju, og það er eftir þeirra fyrirheiti og að þeirra óskum, að ég hygg, sem þessu gjafabréfi verður breytt nú, því að ég get ekki hugsað mér, að það hafi verið meining þessara merku hjóna, að þeirra ábýlisjörð færi fyrr eða síðar í auðn. Ég hygg, að þau hafi unnað landbúnaðinum það mikið og vel, að þau hafi ætlazt til þess, að jafnan væri vel setin sú jörð, sem þau áttu, og því aðeins hafa þau látið setja það í gjafabréfið, að því skyldi breytt af Alþingi, ef á þyrfti að halda, og það hefur líka sýnt sig nú, að það er þörf að breyta þessu gjafabréfi, og ég ætla, að við séum að gera þeirra vilja, um leið og við fylgjum þessu frv. hér í þessari hv. deild.
Þá minntist hv. þm. á, að það væri ekki gott, ef jarðir, sem svona væru gefnar, færu í brask. Sá er þó munur á með þessa jörð og fjölda annarra, að hún er gefin heilli sveit, en ekki einstaklingi, og ég ætla, að þar sem heill hreppur á um þetta mál að fjalla, sé ekki að óttast, að þessi jörð liggi oft undir hamarshöggi, því að það er vissulega þeirra, sem eiga, og þeirra, sem var gefin jörðin, að sjá um, að svo verði ekki, og ég ber engan kviðboga fyrir þeim hlutum. Ég hygg, að við séum einmitt að gera bæði að vilja gefendanna og einnig að vilja hreppsins, sem á jörðina, um leið og við samþykkjum þetta frv. hér í þessari hv. deild.