10.12.1955
Neðri deild: 30. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 112 í B-deild Alþingistíðinda. (141)
86. mál, laun starfsmanna ríkisins
Karl Guðjónsson:
Herra forseti. Það er nú farið að togna mjög úr þessum umr., og skal ég nú reyna að leggja ekki inn í þær langt mál. Þó get ég ekki komizt hjá því að minnast aðeins á ræður tveggja hv. andstæðinga minna, sem hafa raunar báðir vikið aðeins að mínu máli hér.
Hv. 5. þm. Reykv. (JóhH) hélt hér eina ræðu, sem ég ekki vissi almennilega, hvað hann meinti með. E. t. v. hefur hann eitthvert hugboð um það sjálfur, þó að ég efi það, því að ræðan var með slíkum hætti, að ég hef vart heyrt aðra slíka hér haldna, þar sem ræðumaður gerði hvort tveggja í senn að skamma mig og mína flokksmenn fyrir að hafa mælt með og unnið að kauphækkun verkamanna á s. l. vetri og í hinu orðinu þó að viðurkenna, að hún hefði verið réttmæt og sanngjörn, þótt það hafi verið feikilega mikið einkamál í hans hjarta, sem hann sparaði mjög að láta út fyrir sínar varir, á meðan það mál var á dagskrá. Ég efa ekki, að hann segir það satt, að honum hefur fundizt þetta sanngjarnt, enda þótt hann og hans flokkur berðist gegn því og legðist á það, eins og hann hafði máttinn til, á meðan það mál var enn í deiglunni og ekki var vitað, hvers verkalýðssamtökin voru megnug. Einnig tók hann fram í sinni ræðu, að það hefði ekkert gagn verið að þessum launabótum, til þess hafi launabæturnar verið allt of almennar. Það er líklega úr því, sem hann ætlar að bæta með því að styðja það, að allir hátt launaðir ríkisstarfsmenn fái nú allt að 50% í kauphækkun á þessu árstímabili. Enn fremur tók hann mjög rækilega fram, að launabótin í vor hafi eingöngu verið sanngjörn til handa þeim lægst launuðu, hann tók það fram sem sitt álit. Síðar í sömu ræðu tekur hann einnig fram, að eitt aðalvandamálið hjá okkur sé það, hvað launamismunurinn sé lítill á Íslandi, hann verði að aukast, þetta sé ekkert vit. Hvað maðurinn meinti með þessari ræðu, það er mér hulið. E. t. v. hefur hann sínar hugmyndir um það sjálfur, og ef svo væri, þá ætti hann eiginlega að koma hér upp í stólinn og reyna að skýra það eitthvað nánar, því að hafi þetta átt að teljast eitthvert innlegg í málið, þá hefur það farið algerlega fram hjá mér, og mér er ekki grunlaust um, að svo sé um fleiri hv. þm.
Þá kem ég að hæstv. fjmrh., sem hér gerist alltíður ræðumaður í þessum umr., og er út af fyrir sig gott um það að segja, og það er sömuleiðis ágætt, að hann hefur nú nokkuð skipt um hlutverk frá því, sem hann hefur hér áður haft, og verður að fagna því að fá svolitla tilbreytingu í hans tilveru. Hann hefur yfirleitt staðið hér í pontunni og prédikað yfir okkur, að nú væri þó ábyggilega greiðsluþol ríkisins teygt til þrautar og nú mætti ekki hækka. Þetta hefur verið innihald í hans ræðum, það hefur verið ákaflega tilbrigðasnautt hingað til. En nú kveður sem sagt við annan tón. Hann virðist ekki hafa neinar áhyggjur af því, að ríkissjóður geti ekki staðið í skilum með þær kauphækkanir, sem hér eru lagðar til. Þvert á móti telur hann þær mjög sanngjarnar og þakkar fyrir allar hækkunartill., sem fram hafa komið. Út af fyrir sig er kannske ekki mikið við þessu að segja, og eins og ég hef áður tekið fram, eru þetta lofsverð þáttaskil í hans ræðumennsku og í hans afstöðu til fjármála hér á þingi. Sannast að segja hygg ég, að það hafi verið komið nóg af hans smásmugulegu sjónarmiðum í fjármálalegum efnum íslenzka ríkisins, en óneitanlega hefði það verið þjóðinni hollara, að þessi hæstv. ráðh. hefði fengið einhvern snefil af víðsýni fremur á þeim sviðum, sem þjóðinni reið meira á, t. d. í sambandi við atvinnulífið; t. d. að hann hefði uppgötvað sannindi eins og þau, að það þarf framleiðslutæki og framleiðslutækin þurfa að ganga, en hæstv. ríkisstj. virðist hafa heldur litlar áhyggjur af framleiðslunni. Hún a. m. k. sýndi ekki annað í vinnudeilunum í vor en að það væri fullkomlega í hennar anda, að mestöll vinna legðist niður hér í höfuðstaðnum og í nágrenni í fleiri vikur, á meðan reiknað var og reiknað og þjappað var og þjappað að verkamönnum, hvort það væri ekki hægt að sleppa með að láta þá fá innan við 10% kauphækkun. Nei, hér er sem sagt um að ræða verulegar kauphækkanir til þeirra hæst launuðu í ríkiskerfinu, ráðh. sjálfra og þeirra nánustu fylgifiska. Aðrir hljóta að vísu nokkrar hækkanir, en ekki neitt svipaðar og þessir aðilar.
Ég get fallizt á það, sem ráðh. hefur tekið fram hér, að allar þær breytingar, sem ég hef gert hér að umræðuefni, er ekki að finna í þessu frv. einn, enda tók ég það skýrt fram í minni fyrri ræðu um málið, að þær hafa gerzt eða eru að gerast í fjórum ákveðnum áföngum, sem ég tilnefndi. En útkoman úr þeim öllum — og þetta er í rauninni lokahnúturinn í þeirri keðju — er sá, sem ég hef hér áður lýst.
Ráðh. hefur haldið því fram, að ég og mínir flokksmenn höfum sagt í sambandi við lausn vinnudeilnanna í vor, að það væri ekki endilega þörf á því að binda kauphækkun verkamanna saman við launahækkanir ríkisstarfsmanna. Það er nú trúlega óvenjulega mikið satt í þessum orðum ráðh. Við höfum haldið þessu fram, og ég leyfi mér enn að halda því fram, þrátt fyrir það að ég tel hækkanirnar í lægri flokkunum á launalagafrv. því, sem nú liggur fyrir, sanngjarnar. Ég skal benda á. að áður en til verkfallanna kom, höfðu einnig þeir lægst launuðu ríkisstarfsmenn þegar fengið 3% hækkun á sinn kaupi, sem skeði með þeirri samþykkt, sem gerð var í des. í fyrra í sambandi við afgreiðslu fjárlaga og stendur þar á 23. gr.
Ráðh. sagði að vísu, að við hefðum ekki hreyft neinum andmælum við þeim breytingum, sem þar voru gerðar, þó að þeir hæst launuðu væru hækkaðir langtum meira en þeir láglaunuðu. Þetta er ekki rétt hjá ráðh. Hann lofaði reyndar að aðgæta síðar, hvort þetta væri ekki rétt hjá sér, en hans háttur var nú sá að fullyrða fyrst og láta síðan í það skina, að það gæti komið til mála, að hann athugaði, hvað hann hefði sagt. Nú, það er góðra gjalda vert, að hann athugi það á einhverju stigi málsins, hitt væri sæmra fjármálaráðherra, að athuga hlutina fyrst og fullyrða síðan.
Þá hefur hann haldið því fram, að það væri sömuleiðis ekki samræmi í þeirri afstöðu okkar sósíalista að hafa ekki sýnt hreina mótspyrnu gegn frv. um afnám vísitöluskerðingarinnar og þeirri afstöðu, sem við höfum til launahækkana þeirra hæst launuðu. Það má segja, að fljótt á litið gæti falizt í þessu brot af sannleika. En það mál ber raunar að hér í hv. Alþ. með þeim hætti, að ríkisstj. leggur fram frv. um þessa hluti og lætur fylgja því þá grg., að þessu hafi hún áður lofað starfsmönnum ríkisins. Það er þess vegna ekki á færi Alþingis að meta málið nákvæmlega eftir sanngirni, heldur stendur Alþ. frammi fyrir þeim vanda að meta, hvort það eigi að verða til þess, að ríkisstj. brjóti gefin loforð á starfsmönnum ríkisins eða ekki. Það er sem sagt háttur hæstv. ríkisstjórnar í fjölmörgum tilfellum að láta Alþ. í rauninni ekki ráða málunum, heldur ráða þeim sjálf til lykta og stilla síðan Alþ. upp fyrir þeim sem gerðum hlut. Og ég skal viðurkenna fyrir mitt leyti, að það má vel vera, að bæði ég og aðrir hv. stjórnarandstæðingar séum stundum helzt til hikandi við að ráðast á málin, þegar þau eru þannig lögð fyrir okkur. Í þessu tilfelli, eins og ég hef áður tekið fram, var ekki beinlínis um það að ræða, hvort málið væri réttlátt í eðli sínu, heldur öllu frekar hitt, hvort Alþ. ætti að rjúfa gefin loforð ríkisstjórnarinnar til handa ríkisstarfsmönnunum.
Þá komum við að réttlætingu ráðh. á hinni geysilegu hækkun, sem ýmist er orðin eða fyrir dyrum stendur á launum hinna hæst launuðu, t. d. ráðh. sjálfra. Við fáum að fljóta með, sagði ráðh. Jú, jú, verkakarlarnir fengu 10% í grunnkaupshækkun. (Gripið fram í.) Ég ráðlegg hæstv. ráðh. að fletta upp í ræðu sinni, þegar hún kemur til hans, og athuga, hvort þetta er ekki þar. (Gripið fram í.) Ja, ég þakka fyrir. Hafi ég misskilið, þá er ég auðvitað fús til að leiðrétta þetta, en ég heyrði ekki betur en ráðh. segði einmitt á þessa leið. Já, líklega hefur hann nú reyndar orðað það um ráðh., að þeir fái að fljóta með, og kann að vera misskilningur minn að segja frá á hinn mátann, að hann hafi sagt: Við fáum að fljóta með. En það er a. m. k. ekki munur á eðli málsins, og er eftir annarri framkomu ráðh. í þessu máli honum mjög sæmandi að deila um það, hvort orðalagið hann hafi viðhaft. Jú, jú, þeir fá að fljóta með nokkurn veginn með fimmfalda hækkun verkamannanna á þessu tímabili, sem ég hef fram tekið, frá í des. í fyrra til jan. n. k.
Ég tel þá, að af minni hálfu og minna flokksmanna sé í rauninni útrætt um þær deilur, sem hæstv. ráðh. hefur hér vakið um okkar afstöðu. Að sjálfsögðu vil ég áskilja okkur allan rétt til þess að svara því, sem kann að koma fram við framhald þessara umræðna, en ég vil endurtaka, að sú ríkisstjórn, sem telur það ofrausn við verkamenn að fá í árskaup um það bil 40 þús. kr. fyrir 8 stunda vinnudag, ætti að athuga, hvort það gæti ekki eitthvert þjóðarböl líka legið í því að hækka laun t. d. ráðh. þannig, að þau verði á annað hundrað þús. á ári fyrir utan öll þau hlunnindi, sem þeim embættum fylgja, og fyrir utan þingfararkaup. sem ráðh. alltaf hafa, hvort sem þeir eru þm. eða ekki.