10.12.1955
Neðri deild: 30. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í B-deild Alþingistíðinda. (142)
86. mál, laun starfsmanna ríkisins
Fram. (Skúli Guðmundsson):
Herra forseti. Hv. þm. A-Húnv. hefur í tveimur ræðum, sem hann hefur flutt hér, haldið því fram, að afleiðingin af því, ef þetta frv. verður samþ., muni verða sú, að það muni verða miklar kauphækkanir hjá öðrum en ríkinu hér á landi. Þetta held ég að sé engin ástæða til að óttast eða gera ráð fyrir, vegna þess að með þessu frv. er aðeins verið að veita starfsmönnum ríkisins svipaðar uppbætur á grunnlaun og flestir aðrir eru búnir að fá. Það hefur dregizt þar til nú að veita þeim þetta. Það er fyrst verið að því nú með þessu frv. Þess vegna er þetta afleiðing af því, sem áður hefur gerzt í þjóðfélaginu, en ekki ástæða til að ætla, að þetta út af fyrir sig leiði af sér nýjar kauphækkanir hjá öðrum.
Hv. meðnefndarmaður minn, 9. landsk. þm., hefur talað hér tvisvar. Hann sagði í sinni fyrri ræðu, og ég held, að hann hafi endurtekið það nú síðar, að með þessu frv. væri verið að veita mönnum í efstu launaflokkunum yfir 30% kauphækkun. Ég verð að segja það, að mér þótti einkennilegt að heyra þetta frá hv. meðnm. mínum, og ég skil ekkert í, hvers vegna maðurinn heldur þessu fram. Eitt af því, sem við gerðum í fjhn., var að reikna út, hvað grunnlaunahækkunin væri mikil samkvæmt frv. hjá öllum launaflokkunum 15. Að vísu var það svo með þennan hv. nefndarmann, að hann skauzt heim til sín einu sinni og varð veðurtepptur og var ekki á nefndarfundum, en ég held ég muni það áreiðanlega rétt, að hann var á fundi, þegar við vorum að reikna þetta út, og tók þátt í þeim útreikningum sem glöggur og góður reikningsmaður. Og niðurstaðan af þeim útreikningum var sú, að samkvæmt þessu frv. hækka grunnlaun opinberra starfsmanna um milli 9 og 10% í öllum launaflokkunum, svo að segja jafnt. Þess vegna skil ég ekkert í, þegar menn fara í sambandi við þetta mál að tala um það, að menn í hæstu launaflokkunum fái margfalt meiri grunnlaunahækkun hlutfallslega en þeir í lægri flokkunum, þegar hlutfallshækkunin er nákvæmlega sú sama hjá öllum samkv. frv.
Samkvæmt launalögunum, sem nú gilda og sett voru árið 1945, voru hámarkslaun í XV. fl. 4800 kr., en í I. fl. 15 þús. Það voru rúmlega þrisvar sinnum hærri launin í I. fl. en í þeim XV. Það má heita, að þetta sé nákvæmlega eins nú. Samkvæmt frv. eru launin í I. fl. rúml. þrisvar sinnum hærri en í XV. fl., þeim lægsta. Og þetta sannar það, sem ég hélt fram áðan og við nefndarmenn allir tókum þátt í að finna út, að grunnlaunahækkunin er hlutfallslega sú sama hjá efsta og lægsta flokki. Mér skildist helzt, að hv. 9. landsk. hefði byggt þennan prósentuútreikning sinn á þeim grundvelli að telja vísitöluuppbætur með kauphækkunum. Þetta er nokkuð nýtt að heyra, enda er maður ýmsu vanur, og það er ekki alltaf haldið fram sömu kenningunum um sama efnið, en ég man ekki eftir því, að hann eða hans flokksmenn hafi undanfarið haldið því fram, að vísitöluuppbætur, miðaðar við breytingar á framfærslukostnaði, bæri að telja með kauphækkunum. Í þessu frv. er það eitt sagt um vísitöluuppbætur, að þær skuli ákveða með sérstökum lögum, og það hefur þegar verið gert nú nýlega. Það er ekki nema örstutt síðan hér voru afgr. frá þinginu lög um verðlagsuppbætur á laun starfsmanna ríkisins, og þar var ákveðið, að vísitöluuppbæturnar skyldu vera þær sömu til allra starfsmanna ríkisins, hvar í launaflokki sem þeir voru. Þetta mál var til athugunar hjá okkur í fjhn., og þar stóð þannig á, að hv. 9. landsk. var fjarverandi, þegar við afgr. málið í fjhn. þessarar d., en hvorki hann né nokkur annar flokksbróðir hans hreyfði nokkrum andmælum gegn þessu hér í d. Ég held, að það sé áreiðanlegt, að enginn þeirra hafi opnað sinn munn, þegar það var til umr. hér, og þeir greiddu a. m. k. ekki atkv. á móti því. Frv. var samþ. út úr d. með 19:1 atkv., og það mun hafa verið hv. þm. A-Húnv., sem greiddi atkv. á móti málinu hér. Í Ed. var þetta svipað. Þar var málið afgr. þannig, að 1 greiddi atkv. á móti, og það mun áreiðanlega hafa verið hæstv. forseti þeirrar d., þm. Barð., en hvorugur flokksbræðra hv. 9. landsk. Þetta bendir ekki til þess, að hann eða hans flokkur sé neitt á móti því, að allir starfsmenn ríkisins njóti sömu kjara viðkomandi vísitöluuppbótum, og þá er enn óskiljanlegra allt þeirra skraf um þessar miklu hækkanir hjá þeim, sem eru í hærri launaflokkunum. Að vísu kom hv. 9. landsk. þm. með þá skýringu nú í seinni ræðu sinni, að hann hefði heyrt, að ríkisstj. hefði verið búin að lofa að beita sér fyrir því, að allir fengju sömu vísitöluuppbót, en mér hefur virzt stundum, að hann og hans flokksbræður hér í hv. d. hefðu einurð á því að gera aths. við ýmislegt, sem frá stjórninni hefur komið. En það lítur út fyrir, að þeir hafi verið eitthvað miður sin, þegar þetta frv. um verðlagsuppbótina var til meðferðar, ef það er þannig, að þeir séu á móti því, að allir fái sömu vísitöluuppbót. En ég vil nú ætla, þangað til annað kemur fram, að þeir séu alls ekkert á móti því og þess vegna hafi þeir a. m. k. ekki greitt atkv. á móti því máli hér á dögunum og sennilega einhverjir þeirra með því, þótt það sjáist ekki, þar sem ekki var viðhaft nafnakall.
Tveir hv. flokksbræður þessa meðnefndarmanns míns, hv. 2. þm. Reykv. og hv. 11. landsk., átu náttúrlega eftir honum þessar prósenttölur, og kom mér það ekki á óvart, en ég var meira hissa á því, að jafnskýr maður og hv. 3. landsk. þm. skyldi skrika í spori og fara að nefna þetta líka í sinni ræðu áðan. Að vísu er þetta vorkunnarmál vegna þess, hvað stutt er síðan nál. var útbýtt og þessi umr. hófst; hann hefur ekki áður kynnt sér þetta í frv. En hann lét þau orð falla, skildist mér, að hann teldi það ósköp eðlilegt, að starfsmenn ríkisins fengju hlutfallslega allir sömu grunnlaunahækkun, og hann mun sjá það, þegar hann athugar þetta nánar, að það er einmitt það, sem stefnt er að með þessu frv. Hann mun víst áreiðanlega ekki hafa haft neitt á móti ákvæðunum um að afnema vísitöluskerðinguna, þegar það mál var til umr. hér á dögunum. Ég geri ráð fyrir, að hann hafi verið því samþykkur. Það getur auðvitað verið álitamál, því að það er margt í þessu þannig, hvað launamismunurinn á að vera mikill. Eins og ég sagði áðan, er það þannig hér samkv. þessu frv. og er nákvæmlega eins í gildandi launal., að menn í efsta launafl. hafa rúml. þrisvar sinnum hærri laun en þeir, sem taka laun eftir lægsta flokki.
Það er nokkuð vikið að þessu máli í grg., sem frv. fylgdi frá mþn., sem samdi frv. Þeir gera hér nokkurn samanburð. Þeir hafa fengið upplýsingar um launamismuninn í þremur nálægum löndum, Danmörku, Noregi og Svíþjóð, og er hann í öllum löndunum miklu meiri en hérna. Og n. segir hér, eftir að hafa birt þessar upplýsingar, á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta: „Láta mun nærri lagi samkv. upplýsingum þeim, sem n. hefur fengið um laun ríkisstarfsmanna annars staðar á Norðurlöndum, að hæstu laun þar séu a. m. k. 5–6 sinnum hærri en lægstu laun.“ Er af þessu ljóst, að launamismunurinn er þar svo til helmingi meiri en er hérna samkv. þessu frv. og verið hefur hér að undanförnu.
Hv. 3. landsk. þm. var að minnast hér á einstök atriði, hann var að tala um kennarana. Ég vil vekja athygli hans á því, að í brtt. frá fjhn. er gert ráð fyrir því, að barnakennararnir verði allir í IX. fl., og numið burt ákvæðið í greininni um 10 árin. Og hann nefndi hjúkrunarkonurnar; það er einnig brtt. frá n. um að færa þær í hærri flokk en er gert ráð fyrir í frv.
Hv. 8. landsk. þm. var að spyrja um það, hvort þessar till., sem hér liggja fyrir, væru frá launamálan. eða fjhn. Hann hefði ekki þurft annað en að líta á þskj., það ber það með sér að sjálfsögðu, að till. eru fluttar af fjhn., en ég vil vísa honum á það, sem segir í nál. frá fjhn., að till. eru bornar fram í samráði við launamálanefnd og með hennar samþykki. Hann var að minnast á launagreiðslur í háskólanum samkv. frv. og brtt. n. Sá maður, sem hann sérstaklega nefndi, er samkv. till. n. og einnig samkv. till. mþn. í frv. í V. launafl., og má teljast, að þeir menn hafi allsæmileg laun, sem eru í V. launafl. En n. taldi, að það væri eðlilegt, að prófessorarnir við háskólann væru einum flokki ofar, og gerir því till. um, að þeir verði í IV. fl. Telja má tvímælalaust, að það sé sanngjarnt, miðað við þær launagreiðslur, sem frv. yfirleitt gerir ráð fyrir til annarra starfsmanna.
Ég skal svo ekki orðlengja um þetta meira. Það var hér fyrr í dag fundur í Sþ., og þá var fjárlfrv. vísað til 2. umr. Í sambandi við það var ákveðið með samþykki þm. að fresta svokölluðum eldhúsdagsumr. þar til síðar. En ekki get ég að því gert, að mér hefur dottið í hug, þegar ég hef hlýtt á þær ræður, sem hér hafa verið fluttar, sumar, að menn teldu heppilegt að færa þær umr. yfir á þetta mál. Mér hefur virzt vera þannig hljómur hér í þingsalnum, að það minnti nokkuð á venjulegar eldhúsdagsumr. Ég vænti nú samt, að þær dragist ekki úr hófi fram, svo að málið geti náð sem fyrst lengra áleiðis gegnum þingið.