16.01.1956
Efri deild: 39. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í C-deild Alþingistíðinda. (1495)
115. mál, fuglaveiðar og fuglafriðun
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Eins og málunum er nú komið, þar sem komið er fram í miðjan janúar, get ég vel sætt mig við þessa afgreiðslu. Hún byggist alveg og eingöngu á því, að þeir, sem ekki trúa nema þreifa á, fái að þreifa á, og ég sé ekkert athugavert við það. Það eru svo margir menn, sem þurfa að þreifa á til að trúa. Hér er lagt til, að málinu sé frestað um nokkurra ára bil, svo að sú gamla villukenning, sem hér hefur ríkt um rjúpuna, fái að sýna sig, svo að þeir, sem ekki trúa, fái reynsluna og af henni trúna.