01.11.1955
Neðri deild: 14. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í C-deild Alþingistíðinda. (1498)
73. mál, eftirlit með skipum
Flm. (Karl Guðjónsson):
Herra forseti. Efni þessa frv. er það, að öllum þeim skipum, sem stærri eru en 12 rúmlestir, verði gert að skyldu að hafa gúmmíbjörgunarbáta innanborðs, ef þau hafa ekki aðra björgunarbáta, en þetta er það, sem tíðkast nú á mjög mörgum vélbátum, þó ekki á öllum, enda er það ekki lögboðið samkv. núgildandi lögum um eftirlit með skipum. Þegar þau lög voru sett árið 1947, þá þekktu menn ekki skil á öðrum björgunarbátum en fyrirferðarmiklum og allþungum tré- eða málmbátum, og þess vegna var af tæknilegum ástæðum ekki mögulegt, að hinir minni vélbátar gætu haft innanborðs neins konar björgunarbáta, og löggjöfin hlaut að mótast af þessu.
Á þessu hefur hins vegar orðið gerbreyting á síðustu árum. Árið 1951 munu gúmmíbátar fyrst hafa verið notaðir á vélbátum hér á landi. Vélbátaflotinn í Vestmannaeyjum byrjaði að fá slíka báta til notkunar árið 1951. Og það er dálítið merkilegt, að einmitt fyrsti gúmmíbjörgunarbáturinn, sem tekinn var í notkun, skilaði ári síðar en hann kom um borð
í mótorbátinn Veigu frá Vestmannaeyjum sex mannslífum á land, sem örugglega hefðu ekki haldið lífi nema fyrir það, að þetta tæki var komið um borð í vélbátinn.
Í grg. þessa frv., sem hér liggur fyrir, er það rakið, hvernig þessi tæki skiluðu á árunum 1952, 1953 og 1954 18 mannslífum á land, sem vitað er að týnzt hefðu án þeirra. En frá því að sú grg. var samin, hefur það bætzt við, að á s.l. hausti, nánar til tekið hinn 15. sept. s.l., björguðust sjö menn af vélbátnum Halkion á gúmmíbjörgunarbát yfir í annan vélbát, eftir að þeirra vélbátur var sokkinn. Það er að vísu ekki hægt að segja, hvort einhverjir af þeim mönnum hefðu haldið lífi, þó að þetta tæki hefði ekki verið til. Og síðast í dag lesum við það í blöðunum, að áhöfn vélbátsins Muggs, sem brann hér úti í Faxaflóa í gær, bjargaðist frá brennandi bátnum á gúmmíbát yfir í annan vélbát.
Og nú vildi ég rétt aðeins beina þeirri spurningu til hv. þingmanna, svo að þeir hafi tækifæri til þess að hugleiða hana með sjálfum sér: Mundu hv. alþm. hafa góða samvizku af því að láta enn dragast að gera að lögum skylduna til þess að hafa slík björgunartæki um borð í hverjum vélbáti, sem gerður er út og róið lengra en á allra grynnstu mið? Mundu hv. alþm. vilja hafa vanrækslu þeirrar lögfestingar á samvizkunni og horfa upp á þau slys, sem kynnu að henda á þeim bátum, sem hafa ekki gúmmíbáta enn þá, vegna þess að það er ekki skylda, eftir þá reynslu, sem fengin er?
Frv. var flutt — efnislega samhljóða frv. þessu — á s.l. þingi, en þingið svaf á málinu og samþykkti það ekki. Hv. sjútvn. þessarar d. sendi frv. til umsagnar Slysavarnarfélagi Íslands og skóaeftirlitinu, má ég segja. Slysavarnarfélag Íslands gaf jákvæð svör við fyrirspurnum nefndarinnar og taldi, að skylda bæri fiskibáta með lögum til þess að hafa tæki þessi. Skipaeftirlitið reyndi að hengja sig í form fyrir því, að eins og frv. var orðað fyrir síðasta þingi, gæti það orkað tvímælis. hvort ekki ætti að ganga lengra í því en verið hefði að setja þunga björgunarbáta um borð í sem flesta vélbáta, en það var ekki meining frv., enda hefur í því formi, sem frv. er nú lagt fyrir, verið sneitt hjá þessum hugsanlega misskilningi, og vænti ég þess því, að það finnist ekki lengur, hvorki á Alþ. né yfirleitt neins staðar meðal okkar þjóðar, nokkur sá, sem geti mælt því í gegn, að jafnsjálfsögð öryggisráðstöfun og hér er um að ræða verði tekin í lög. Og í trausti þess, að Alþ. afgreiði þetta mál fljátt og jákvætt, legg ég til, að málinu verði að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr. og til hv. sjútvn.