18.01.1956
Neðri deild: 43. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 46 í C-deild Alþingistíðinda. (1502)

73. mál, eftirlit með skipum

Karl Guðjónsson:

Herra forseti. Ég vil lýsa ánægju minni yfir því. að hv. sjútvn. skuli nú vera búin að skila áliti um mál þetta. Um af. greiðslu hennar vil ég að öðru leyti segja það, að ég mun sætta mig við þá till., sem hún hefur lagt til, þar eð ég tel, að sú till. eigi að tryggja það, að inn í reglugerðarákvæði verði komið ákvæðum, sem skylda alla þá báta, sem frv. fjallar um, til þess að hafa björgunartæki þessi innanborðs. Hins vegar get ég aldrei skilið þá tregðu, sem á því virðist vera af hálfu t.d. skipaeftirlitsins að taka þetta ákvæði í lög. Ég hefði talið, að betur hefði á því farið, að það hefði verið tekið beint inn í lögin, að umrædd skip skuli búin gúmmíbjörgunarbátum. En eins og ég hef áður lýst yfir, mun ég sætta mig við, að það verði tekið inn í reglugerð, og tel, að afgreiðsla n., ef samþykkt verður, tryggi, að svo verði gert.