18.01.1956
Neðri deild: 43. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 47 í C-deild Alþingistíðinda. (1504)
73. mál, eftirlit með skipum
Frsm. (Sigurður Ágústsson):
Herra forseti. Ég vil aðeins leiðrétta misskilning hv. 7. landsk. þm. um það, að reglugerðarákvæði sé ekki jafngilt lögum. Ef það væri ekki, þá tryði ég því varla, að öll öryggisákvæði varðandi öryggi skipa og skipshafna væru ákveðin í reglugerð, en ekki í lögunum sjálfum. Í reglugerð frá 1953 eru mjög ýtarleg ákvæði um öryggi skipshafna á fiski-, farþega- og flutningaskipum. Ég held, að það sé ekki rétt að álasa skipaskoðunarstjóra fyrir það. að hann vilji slaka á þessu öryggi með því að binda ákvæði þar um í reglugerð, en ekki í löggjöfinni sjálfri.
Skipaskoðunarstjóri segir réttilega, að öll þessi ákvæði eigi að vera reglugerðarákvæði, og hefur nefndin fallizt á það sjónarmið hans, sbr. nefndarálitið.
Ég held, að við allir hv. þm. séum á sömu skoðun um það, að sjálfsagt sé að skapa sjómönnum okkar allt það öryggi, sem hægt er. En eins og kom fram í umræðum n. við skipaskoðunarstjóra, lýsti hann yfir því, að falskt öryggi væri verra en ekkert öryggi, og hann telur, að það sé mjög hæpið og mjög erfitt að koma björgunartækjum fyrir á bátum á stærðinni frá 6 til 12 smálestir.
Ég fullyrði, að við séum allir á sömu skoðun um það, að okkar hrausta og tápmikla sjómannastétt verðskuldi, að Alþingi geri allt, sem það getur, til þess að skapa henni það öryggi, sem verða má. Hins vegar er ég ákaflega hræddur við, að mörgum af þeim bátaeigendum, sem stunda sjó á trillubátum allt upp í 8–9 smálestir, þætti töluvert hart, að það væri ákveðið, að þeir hefðu gúmmíbjörgunarbát um borð, vitandi það, að þessir gúmmíbátar mundu eyðileggjast á tiltölulega mjög skömmum tíma vegna þeirra erfiðu aðstæðna að hafa þá um borð í slíkum bátum.