21.11.1955
Neðri deild: 21. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 49 í C-deild Alþingistíðinda. (1508)
102. mál, aldurshámark opinberra embættis- og starfsmanna
Flm. (Jón Pálmason):
Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir á þskj. 120, er flutt af mér í þeim tilgangi að spara ríkissjóði verulega útgjöld og að öðru leyti verða til þess að koma í veg fyrir þá mannréttindaskerðingu, sem því hefur á undanförnum árum fylgt, að embættis- og starfsmenn þess opinbera væru skilyrðislaust sviptir embætti, þegar þeir eru 70 ára, þó að þeir væru að öðru leyti mjög vel færir til þess að gegna því áfram.
Þegar lögin um aldurshámark opinberra starfsmanna voru sett árið 1935, voru þau samþykkt hér á Alþingi með mjög litlum meiri hluta, og það var fyrir þeim mælt aðallega á þeim grundvelli, að embættismenn ríkisins entust svo illa, að það væri ekki gerandi að láta þá vera í embætti lengur en til 70 ára aldurs, og var það þá hámark. Nú er það kunnugt mál, að ekki einasta embættismenn ríkisins, heldur og þjóðin almennt hefur það betri lífsskilyrði nú á síðari árum, að menn endast yfirleitt töluvert betur en þeir gerðu fyrir 20 árum, og þarf ekki svo langan tíma að taka til.
Við vitum ákaflega vel, ef við lítum yfir þann hóp manna, sem hefur farið frá embætti af þessum sökum á undanförnum árum, því að það eru alltaf nokkuð margir menn á hverju ári, að flestir þeir menn eru mjög vel færir til að gegna sínu embætti áfram, og svo mun áfram verða. Þetta hefur Alþingi í raun og veru viðurkennt óbeinlínis með því, að það eru töluvert margir af þessum mönnum, sem hafa verið sviptir starfi af þessum orsökum, sem hafa verið teknir á full laun sem eftirlaun. og þá er útkoman á þessu slík, að fyrir mörg embætti í landinu er ríkissjóður látinn borga tvöföld laun. Þar að auki eru nokkuð mörg dæmi til þess, að ýmsir þessir menn, sem eru mjög starfshæfir menn, hafa fengið önnur störf við hlíðina á fullum eftírlaunum og hafa þess vegna haft talsvert háar tekjur, enda þótt það hefði verið í alla staði miklu eðlilegra, að þeir gegndu sínu embætti áfram.
Nú má náttúrlega um það deila, hvort það sé of hátt eða ekki að fara með þetta í 75 ár. Það gæti auðveldlega verið millistig þar á milli, og það getur komið til athugunar við meðferð málsins í nefnd hér í þinginu. En ég veit, að hv. þdm. er svo ljóst, hvað það er, sem hér er farið fram á, að ég þarf ekki að bæta fleiri orðum við þá grg., sem frv. fylgir. Og án þess að nokkurt frekara tilefni gefist til, sé ég ekki ástæðu til nú að fara um þetta fleiri orðum, en legg til, að þessu frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. fjhn. Hún hefur með að gera önnur mál, sem eru þessu mjög skyld, og eðlilegt, að þetta frv. fari til hennar.