23.01.1956
Efri deild: 46. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 60 í C-deild Alþingistíðinda. (1520)

59. mál, kaupþing í Reykjavík

Frsm. (Karl Kristjánsson):

Herra forseti. Þetta frv. er búið að vera alllengi óafgreitt, fyrst og fremst hjá hv. fjhn., og svo hafa bætzt við nokkrir dagar síðan n. lagði fram álit sitt. Meginástæðan fyrir því, að n. afgreiddi ekki sína afstöðu .fyrr, er sú, að n. taldi rétt að gefa nokkrum aðilum kost á að segja álit sitt um frv.

Sama dag og þessi hv. d. vísaði málinu til n., eða 25. okt. s.l., ákvað n. að leita umsagna allra bankanna í landinu, en þeir eru fimm, og einnig leita umsagnar Verzlunarráðs Íslands og Sambands íslenzkra samvinnufélaga, og var þessum aðilum sent frv. til umsagnar sama dag. Sjálfsagt þótti að bera málið undir bankana, enda er ráð fyrir því gert í frv., að bankar taki þátt í stjórn kaupþings, auk þess sem slík starfsemi sem kaupþing kemur beint og óbeint inn á verksvið bankanna eins og það hefur verið. Verzlunarráðið og S.Í.S. eru fyrirtæki, sem málið skiptir að sjálfsögðu miklu. En svo undarlega fór, að aðeins Iðnaðarbankinn og verzlunarráðið hafa látið til sín heyra. Tómlæti hinna virðist varla afsakanlegt, sérstaklega bankanna fjögurra og þá ekki sízt þjóðbankans og Framkvæmdabankans, sem báðir hafa forustuhlutverki að gegna í fjármálum fyrir þjóðfélagið.

Iðnaðarbankinn mælti með hugmynd þeirri, er fram kemur um stofnun kaupþings í frv., en óskaði eftir, að tillit yrði tekið til sín við skipun stjórnar kaupþingsins, en það er ekki gert í frv., enda er frv. samið fyrir 15 árum og því löngu áður en Iðnaðarbankinn varð til. Verzlunarráðið mælir einnig með stofnun kaupþings, en telur æskilegt, að mþn. athugi frv., áður en frá því er gengið og það gert að lögum.

Fjhn. taldi sér ekki skylt að bíða lengur eftir svörum frá öðrum aðilum. Nefndarmenn líta svo á, að þetta sé merkilegt mál. Hins vegar greinir þá vafalaust á um einstök atriði og eru ekki við því búnir, nema þá flm. sjálfur, að samþykkja frv. eða gera fullnaðarbrtt. við það. Allir nm. eru sammála um, að mikilsvert væri, að „raunverulegur verðbréfamarkaður kæmist upp í landinu“, eins og flm. komst að orði í sinni ýtarlegu framsöguræðu við 1. umr. málsins. Meginatriði málsins er, eins og flm. sagði, „að koma á opnum verðbréfamarkaði og opinberri verðbréfaskráningu.“

Fjórir nm. telja, að málið þurfi meiri undirbúning og athugun en þetta Alþ. getur framkvæmt, og þó að hv. flm. sé á annarri skoðun, hefur hann þó fallizt á að vera með okkur hinum í að flytja þá rökstuddu dagskrá, sem kemur fram á þskj. 245, og að sjálfsögðu gerir hann það með tilliti til þess, að meiri athugun skaði ekki málið. Rökstudda dagskráin hljóðar svo:

„Í trausti þess, að ríkisstj. láti athuga nauðsyn á stofnun kaupþings í Reykjavík og hvernig löggjöf um það verði hagfelldust og leggi niðurstöður þeirrar athugunar fyrir næsta reglulegt Alþingi, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.“

Ég legg áherzlu á það fyrir hönd n., að dagskráin verði samþykkt. Með því á málið að geta fengið rækilega athugun, sem sýnt er að það getur ekki fengið héðan af á þessu þingi.