20.02.1956
Neðri deild: 73. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 94 í C-deild Alþingistíðinda. (1546)
62. mál, áburðarverksmiðja
Frsm. minni hl. (Karl Guðjónsson):
Herra forseti. Svo sem frsm. meiri hl. n. hefur lýst, varð ekki samkomulag í fjhn. um afgreiðslu þessa máls, og mun þó máske bera efnislega mínna á milli en ætla mætti. Þeir hv. alþm., sem skipa meiri hl., munu telja vafasamt, að hægt sé með lögum að leggja niður hlutafélagið, sem rekur áburðarverksmiðjuna, eins og frv. gerir ráð fyrir, til þess muni máske þurfa eignarnámsheimild. Ég fyrir mitt leyti ætla ekki að ræða það mál sérstaklega, en taka fram, að ég hef ástæðu til þess að ætla, að viðkomandi hluthafar muni ekki hafa á móti því, að sú breyting á rekstri áburðarverksmiðjunnar, sem lagafrv. gerir ráð fyrir, verði tekin í lög, og geti þess vegna orðið um það samkomulag.
Ég vil benda á, að lögin um áburðarverksmiðjuna eru raunar rétt eins og þau væru blaðagreinar í blöðum andstæðinga, þar sem eitt rekur sig á annars horn. T.d. skal það viðurkennt, að hv. frsm. meiri hl. hefur nokkurn rétt til þess að byrja ræðu sína á þann hátt, sem hann gerði, þ.e.a.s. taka það fram, að áburðarverksmiðjan sé hlutafélag, en þar styðst hann við 13. gr. laga um áburðarverksmiðju; en í 3. gr. stendur: Verksmiðjan er sjálfseignarstofnun — og virðist furðu illa samrýmast að hafa þetta tvennt í lögum um sama fyrirtæki, bæði að það sé sjálfseignarstofnun og sömuleiðis að það geti verið hlutafélag. Mergurinn málsins mun vera sá, að lögin um áburðarverksmiðjuna voru samin fyrir sjálfseignarstofnun á vegum ríkisins, en á síðustu stigum afgreiðslu málsins hér í Alþ. var bætt inn heimildargrein fyrir ríkisstj. að stofna hlutafélag, ef tiltekin fjárhæð fengist í hlutabréfum, þ.e. 4 millj. kr., og notaði ríkisstj. þessa heimild. Hlutafé þessa rekstrarfélags, sem þannig var myndað með framlagi, sem var 4 millj. frá einkaaðilum og 6 millj. frá ríkinu, var slengt saman við þær um það bil 120 millj., sem ríkið hafði greitt eða lánað til stofnkostnaðar áburðarverksmiðjunnar, og síðan hefur því verið haldið fram af ráðherrum hér á Alþ., að það væri einmitt hlutafélagið, þ.e. aðstandendur þessara 10 millj., sem ætti áburðarverksmiðjuna, en hinar 120 milljónirnar, sem ríkið hefur lagt fram utan við þetta hlutafélag, eigi að vera útstrikaðar og gleymdar og týndar sem slíkar.
Ég efast ekki um, að þeir hluthafar, sem lagt hafa fram fé í áburðarverksmiðjuna, hafa gert það af tveim ástæðum. Í fyrsta lagi hafa þeir talið, að nokkur arðsvon væri að því að eiga hlut í slíku fyrirtæki. Í öðru lagi þykir mér líklegt, að þeir hafi viljað eiga sinn hlut að því, að þessari mjög nytsömu stóriðju yrði komið upp hér á landi. Nú virðist svo sem vonir um það, að áburðarverksmiðjan verði mjög arðbært fyrirtæki, hafi nokkuð dvínað, og mun afkoma verksmiðjunnar að undanförnu ekki gefa ástæðu til að ætla, að hér verði um að ræða stórgróðafyrirtæki í framtíðinni. Það gætu því einhverjir sagt, að eðlilegt væri, að það hlutafé, sem einkaaðilar hafa lagt fram í þessa verksmiðju, gufaði upp sem tap á verksmiðjunni á nokkrum árum. Það er ekkert ólíklegt, að með því að verksmiðjan mun lítt hafa fyrir afskriftum í rekstri sínum, rýrni hlutaféð smám saman og komi þannig til með að þurrkast út. Ég er ekki þeirrar skoðunar, að þannig beri að fara að gagnvart þeim aðilum, sem lagt hafa fjármagn í verksmiðjuna. Ég tel rétt, að ríkið gefi þeim kost á því að leysa út hlutafé þeirra með sæmilegum vöxtum frá því að þeir lögðu það fram, og það er einmitt það, sem frv. gerir ráð fyrir. Þess vegna höfum við, sem skipum minni hluta fjhn., við hv. 1. landsk., lagt til, að frv. verði samþykkt.