20.02.1956
Neðri deild: 73. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 102 í C-deild Alþingistíðinda. (1548)

62. mál, áburðarverksmiðja

Jón Pálmason:

Herra forseti. Mér þykir ástæða til að bæta við fáeinum orðum um þetta mál, því að ég tel ekki nauðsynlegt. að um það fari fram mjög miklar umræður nú, vegna þess að ágreiningurinn, sem er á milli meiri og minni hl. hv. fjhn., er ekki eins mikill og sumir menn halda. Ég vil ítreka það, sem hv. frsm. meiri hl., þm. V-Húnv., tók fram, að við í meiri hl. fjhn. álítum ákaflega hæpið, að hægt sé að leysa hlutafélagið upp á þann hátt, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, því að það er töluvert flókið mál, úr því að á annað borð er búið að stofna hlutafélag, að leysa það upp.

Ég hef lýst því hér yfir áður og get endurtekið það nú, að mér var illa við, þegar það var gert á síðustu stundu, þegar þessi lög voru til meðferðar, að breyta áburðarverksmiðjunni úr ríkisfyrirtæki í hlutafélag, eftir að frv. var búið að ganga á hinn veginn hér í gegnum hv. Nd. og komið til síðustu umr. í Ed. Og af því að mér var á sinum tíma illa við þetta, vil ég láta breyta því, og ég vil láta gera það sem fyrst. Ég tel það ekki miklu máli skipta, hvort það er gert árinu fyrr eða síðar. Till. okkar um að vísa málinu nú til ríkisstj. er fyrst og fremst byggð á því, að það sé óskað eftir, að það verði athugað, á hvern hátt það verði auðveldast og einfaldast framkvæmt að breyta þessu í það horf, að fyrirtækið verði ríkisfyrirtæki. En varðandi afkomu og reikningshald og annað í þessu fyrirtæki skal ég ekki neitt fara að ræða annað en það, að ég vil segja það, að ég hef lengi verið og er enn miklu hræddari við það sem bóndi og bændafulltrúi, að þetta fyrirtæki tapi heldur en græði, því að það væri ekkert hættulegt, ef þetta fyrirtæki græddi. Hitt er miklu varasamara mál, ef það getur ekki framleitt áburðinn á sama verði sem erlendur áburður með hagstæðasta verði mundi kosta. Ég hef þess vegna aldrei verið hræddur við það, að það væri líklegt, að þeir hluthafar, sem þarna hafa lagt fram peninga, græddu á þeim. Hins vegar tel ég, að það sé að öllu leyti eðlilegra að koma þessu í sama horf og fyrirtækið var ætlað upphaflega, þegar lögin voru afgr. hér í fyrstu frá hv. Nd. Ég held þess vegna, að bæði hv. flm. og þeir, sem eru í minni hl. fjhn., ættu að sætta sig við það, að frv. væri vísað til ríkisstj., eins og við leggjum til, á þeim grundvelli, að þetta skuli athugað fyrir næsta þing, því að það er ætlunin.