20.10.1955
Neðri deild: 7. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 121 í C-deild Alþingistíðinda. (1564)

16. mál, kjörskrá í Kópavogskaupstað

Landbrh. (Steingrímur Steinþórsson):

Herra forseti. Mig minnir, að Örn Arnarson hafi í sinni ágætu drápu um Odd sterka haft einn kafla, þar sem hann lagði Oddi á tungu ræðu, sem hann kallaði dómadagsræðu, og ég held, að þessi ræða hv. 2. þm. Reykv., sem nú hefur staðið í klukkutíma, ef ekki meir, eigi frá hans hálfu að vera dómadagsræða, dómadagsræða yfir Alþingi, hótunarræða um það, að þingmenn verði að taka ákveðna afstöðu í máli, því að annars séu þeir landráðamenn, — hann leyfði sér jafnvel að vitna í gömlu undirskriftirnar í Kópavogi þessu til áréttingar og annað slíkt. En það var nú einhvern veginn svo, þó að Oddur sterki væri ágætur karl og margt gott um hann, að þá voru orð hans ekki mjög sannfærandi, og þannig mun nú áreiðanlega fara um orð hv. 2. þm. Reykv., sem hann hér hafði í þessari klukkutímaræðu sinni eða nokkru meir, að þau munu ekki orka neins, og ef þau orka nokkurs, þá orka þau á móti því, sem hann vill, því að það ætti þessum hv. þm. að vera ljóst, að því meira sem hann talar hér á Alþ., því minni áhrif hefur hann. Þetta eru orðin svo algild sannindi, að ekki þarf um það að ræða. En hins vegar tel ég rétt að nefna hér aðeins einstök atriði, en ég mun hafa það mjög stutt. Og af því að hv. 7. landsk. þm. (FRV) er hér inni í hv. deild, vildi ég aðeins geta þess um leið, af því að ég efast um, að hann nenni að hlusta lengi á þetta. að ég mun ekki neitt koma inn á þau atriði, sem máli skipta milli félmrn. og hans sem oddvita Kópavogshrepps, fyrr en málið kemur upp í Ed. Ég tel það ekki rétt á neinn hátt að gera það, en þar mun ég að sjálfsögðu leggja þau gögn fram í málinu, sem ég hef, ef hann telur ástæðu til að fara að hefja þá deilur um það. Þetta taldi ég rétt að taka hér fram nú strax, og er þá um leið svarað einu atriði í ræðu hv. 2. þm. Reykv., þar sem hann taldi hér um bil víst, að þetta mál mundi aldrei komast út úr Alþingi.

Hv. 2. þm. Reykv. má vera viss um, að þetta mál gengur sína leið gegnum Alþ. eins og önnur mál, sem fyrir það verður að leggja samkv. stjórnarskrá ríkisins, og það verður ekki stöðvað. Þetta taldi ég einnig rétt að taka fram í sambandi við þetta.

En það, sem kom mér til þess að nefna þetta dómadagsræðu hjá hv. 2. þm. Reykv. og líkja henni að nokkru leyti við ræðu í Odds rímu sterka, er það, að þegar slíkur mælskumaður eins og hv. 2. þm. Reykv. eyðir sínum mælskufossi í allt að því fimm kortér yfir það, sem hér er um að ræða í þessu frv., þá eiginlega undrast ég, — maður á kannske að öfundast yfir þeim þrótti, sem í því er fólginn að blása þessu öllu út, — hvað miklu moldviðri, hvað mikilli vitleysu er hægt að ausa út í sambandi við eins einfalt mál og þetta.

Hv. þm. reyndi mjög að lýsa því með fjálglegum orðum og það frá ýmsum hliðum og mjög oft í sinni ræðu, hve mikill lýðræðissinni hann væri, að það væri alveg sjálfsagt, að fólkið réði, og var með ávítur á ríkisstj. fyrir aðfarir hennar gagnvart Kópavogshreppi.

Nú skal ég taka það fram, að ríkisstj. hefur ekkert gert í þessu máli sem slík. Ég sem félmrh. hef gert hluti í málinu vegna áskorana frá miklum hluta af íbúum hreppsins, bæði hreppsnefndar og sömuleiðis íbúa. Og það eru í raun og veru aðeins hlutir, sem ég hef talið mér skylt að gera vegna ýmissa atriða í sambandi við þetta, sem ég ætla ekki að koma hér inn á, eins og ég lýsti yfir áðan. Að öðru leyti hefur mér ekki dottið í hug að hafa nokkur áhrif á þessi mál á einn eða annan hátt, og allar dylgjur hv. 2. þm. Reykv. um einhverja lóðaúthlutun, um einhver sérstök fríðindi eða kaup á atkvæðum, eru algerlega út í loftið. En þær sýna hins vegar hugarfar þeirra manna, sem eru kommúnistar að innræti og geta aldrei hugsað sér, að hægt sé að starfa að opinberum málum öðruvísi en með einhverjum kaupum og sölum. Að kaupa og selja sálir fólksins, það er það, sem þeir telja, að sé það eina, sem gildi hefur, og því, þegar þeir skríða út úr egginu og láta eigin sannfæringu koma hreina fram, þá verður hún alltaf á þennan hátt. Ég þekki ekki þetta. Ég þekki ekki þetta innræti. Og ég kannast ekki við nokkurn skapaðan hlut í þessu sambandi á þennan hátt.

Það, sem virtist fara mest í taugarnar á hv. 2. þm. Reykv. og er enda eina atriði þessa frv. og því í raun og veru eðlilegt. að aðallega sé um það rætt í sambandi við það frv., sem hér liggur fyrir, er það, að það skyldi eiga að kjósa í Kópavogshreppi eftir nýjustu kjörskránni.

Hvað vill hv. 2. þm. Reykv. gera? Hann vill kjósa eftir hér um bil þriggja ára manntali. Það telur hann vera rétt lýðræðislegt form. Það telur hann vera það, sem eigi að gera í þessu efni. Hví má það ekki eins vera fimm ára, hví má það ekki eins vera 10 ára kjörskrá, sem kosið er eftir — eða 15? Þó að allir væru hér um bil dauðir, þá mætti láta dauða kjósa. Það er sjálfsagt það, sem kommúnistarnir gera í sínu sæluríki; það efast ég ekki um. En það er einmitt þetta, sem hv. 2. þm. Reykv. er hér að prédika. Ég verð að segja, að ég er það mikill lýðræðissinni, að þegar ég á að dæma um það, hvort eigi að kjósa eftir kjörskrá, sem samin er í febrúar 1955, og kosningin fer fram núna um mánaðamótin september og október, eða eftir kjörskrá, sem samin er ári áður og er þá eftir manntali frá árinu enn áður, þá er ég ekki í neinum vafa. Ég er oft í vafa um mál, hvernig ég á að snúast við þeim, mjög oft, og þarf að hugsa lengi um, hvað mér finnst vera rétt í málinu, en í þessu máli var ég ekki í vafa, því að að mínum dómi er þetta svo sjálfsagt. Og þeir menn, sem ekki skilja þetta og ekki hafa þetta inni á sér, að svona eigi að fara að málum,skilja ekki andalýðræðisins, og það gerir auðvitað hv. 2. þm. Reykv. alls ekki. Annars gæti hann ekki haldið aðra eins froðuræðu og hann gerði hér um það, hve mikið tilræði við hið demókratíska skipulag það væri, sem hér hefði verið gert. Það var ekki hróflað nokkrum stafkrók í kjörskránni — ekki einum. Það er ekkert gert, annað en það, að sú kjörskrá, sem samin er af oddvita hreppsins og hreppsnefndinni síðast, tæki gildi. Og ef þetta á ekki að vera það rétta lýðræði, þá kann ég ekki að skilja það. Og ég mundi hvenær sem eins stæði á, meðan ég væri félmrh., gefa út svipuð brbl.

Hv. 2. þm. Reykv. gekk auðvitað alveg fram hjá því, að þetta er sérstakt tilfelli, sem hér er um að ræða. Það er sérstakt tilfelli, að þannig aukakosning fari fram á þann hátt, sem hér varð í þetta skipti. Og það er alveg gefið, að þegar samin voru lögin um kjörskrá til sveitarstjórnarkosninga, þá var raunverulega ekki gert ráð fyrir þessu. Þarna kemur of mikil glufa í, ef svo mætti segja, sem erfitt er að brúa yfir. Og það er ekkert annað, sem gerðist. Þegar svo hv. 2. þm. Reykv. er að blása sig út yfir því, að ég hafi ekki þorað að láta þetta koma fram í frv. í fyrra, þá er þetta svo mikil fjarstæða, að ég get ekki lýst því. En hitt get ég tekið fram og skal lýsa hér yfir á Alþ. fyrir öllum alþm., að mér þótti það mjög leitt að hafa ekki tekið eftir þessu, eða mínir menn, sem stóðu að samningu frv., svo að hægt væri þá að setja inn í frv. ákvæði um, hvaða kjörskrá skyldi gilda. Og ég segi það eins og er, að ég get mjög vel beðið Alþ. afsökunar á því. Það er mín sök sem félmrh. Það átti að koma inn í frv. og hefði verið gert, ef ég hefði þá verið búinn að átta mig á því, hvernig þessi mál stóðu. Og það hlýtur eins reyndur maður í þingsögunni og hv. 2. þm. Reykv. að vita, að það hefði verið ólíkt hægara fyrir mig sem félmrh. að láta þetta ákvæði inn í frv. í fyrra og fá það þá afgreitt um leið, en ekki að þurfa að taka það upp sem brbl. nú. En eins og ég tók fram áðan: ég er það mikill lýðræðissinni, að ef ég á að úrskurða um það eða gera tillögur um, hvort eigi að kjósa eftir eins árs, tveggja ára eða þriggja ára kjörskrá, sem allar eru í raun og veru löglegar, þá er ég ekki í neinum vafa um, hvað ég á að gera. Þetta er allt það, sem máli skiptir um það frv., sem hér liggur fyrir.

Við getum vel leitt saman hesta okkar og það verður sennilega gert meir í Ed., af því að ég ætla, eins og ég tók fram áðan, alls ekki að taka hér upp neina þætti þessa máls, sem snerta oddvita hreppsins, sem er þm. í Ed., en að sjálfsögðu kemur þetta frv. þangað einhvern tíma á leið þingsins í vetur.

Þetta var nú í raun og veru meginatriði þess, sem ég vildi taka hér fram út af ræðu hv. 2. þm. Reykv., því að ég sé, að okkur ber hér stórkostlega í milli. Þó hygg ég, að hefði hann verið í sæti mínu og haft þá ábyrgð, sem því fylgir að vera framkvæmdarstjóri ríkisins í einhverjum málum, þá hefði hann fallizt á þá skoðun, sem ég féllst á, að sjálfsagt væri að láta nýjustu löglegu kjörskrá gilda til kosninga og annað væri í raun og veru ekki sæmilegt. En ég skal samsinna hv. þm. í því, að það var vel hægt að setja þetta inn í lögin í vor, og það er ekkert annað en mistök, sem alltaf geta komið fyrir og ég tel mig alls ekki of góðan að viðurkenna gagnvart þessu máli. En þá tel ég líka, að ég eigi nokkurn rétt á því, að því sé trúað, sem ég segi um það, að hér sé aðeins um mistök að ræða frá minni hálfu, en síður en svo og langt frá því, að ég væri hræddur við að leggja til í því frv., að sú kjörskrá, sem samin var í febrúar 1955, yrði látin gilda við kosningarnar, þegar þær færu fram.

Hv. 2. þm. Reykv. gerði mikið úr þeim sigri, sem oddviti Kópavogshrepps hefði unnið í þessari styrjöld þarna í Kópavogi, eins og hann orðaði það, — ja, ég held móti ríkisstjórninni og öllum öflum, er hana styðja hér í þessu landi. Ja, ég er ekkert að mótmæla því. Það gengur nú svo upp og ofan í þessu þjóðfélagi, að alltaf sigra einhverjir og aðrir tapa í bili, og við skulum láta það alveg liggja á milli hluta. En ég held nú einmitt, að úrslitin í þessum kosningum sýni mjög greinilega, að það hafi ekki verið hafður neinn pólitískur áróður af hendi ríkisstj. í þessu máli. Ég segi fyrir mig, að ég held, að ég hafi ekki komið í Kópavogshrepp allan þennan tíma nema á veginum milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur í mjög snöggri ferð, og hef ekki a.m.k. sjálfur reynt að hafa nokkur áhrif á þetta mál. Hvað gerzt hefur innan hreppsnefndar Kópavogshrepps og þeirra manna, sem þar sitja og eru skipaðir af ýmsum pólitískum flokkum, er vitanlega allt annað mál. Og það væri þó hart, ef það ættu, eins og mér virtist á hv. 2. þm. Reykv., að liggja einhverjar vítur við því og jafnvel að Alþ. vísaði frá jafnsjálfsögðu bráðabirgðafrumvarpi og hér er um að ræða vegna þessara atburða, sem þarna hefðu gerzt. Þetta er ein af þeim firrum, sem stundum grípa þennan greinda þm. og fara með hann svo út í öfgar, að það er alveg ótrúlegt að hugsa til þess, en sýnir þó hins vegar, að hann stendur ekki á sterkum lýðræðisgrundvelli, hann hugsar eftir einhverjum öðrum línum, sem ég og flestir aðrir, sem svipað hugsa, geta ekki skilið í þessu sambandi. Og ég verð að segja það, að ég veit ekki, af hvaða orsökum ekki gátu allir sameinazt um, að það væri kosið eftir nýju kjörskránni, heldur ætti að kjósa eftir kjörskrá, þar sem fjöldi fólks er á kjörskrá, sem farið er eitthvað út í buskann, búsett annars staðar o.s.frv., en þeir fá ekki að kjósa, sem fluttir eru inn á síðasta ári, en eiga vitanlega nákvæmlega rétt til þess að gera það.

Þetta er mér svo fjarstætt, að ég eiginlega skil ekki, hvernig geta orðið deilur um þetta atriði. Það gátu orðið deilur um frv. í fyrra. Það voru deilur um það, og það má gjarnan taka þær upp hér nú í sambandi við þetta frv., þó að mér finnist vera mjög litlar ástæður til að tala um frv. sjálft. Hér er um það eitt að ræða að koma þessum málum þannig fyrir, að raunverulegir íbúar, búsettir í Kópavogshreppi, hafi aðstöðu til þess að greiða atkv. Og hverjir eiga aðrir að gera það? Hví eiga menn, sem eru fluttir fyrir tveimur árum, ekki að fá að greiða atkv.? Og hvers vegna skyldu menn, sem nú s.l. ár hafa með stórri fyrirhöfn komið sér upp húsi í Kópavogshreppi, en ekki eru búnir að fá þar viðurkennt heimilisfang eftir eldri kjörskrá, ekki eiga að greiða atkv. við kosningar eins og þessar, þar sem þeir eru búnir að stofnsetja sitt framtíðarheimili í þessu sambandi? Ég spyr. En það er þetta og ekkert annað, sem hér er um að ræða í sambandi við frv. eins og það liggur fyrir.

Hv. 2. þm. Reykv. var með ýmsar bollaleggingar um að flytja 20–30 atkv., eða hann hefur nú sennilega átt við menn, býst ég við, en ekki atkvæðaseðla, vestur á Flateyri, til þess að þeir gætu ráðið úrslitum í næstu kosningum í Vestur-Ísafjarðarsýslu. Einnig talaði hann um að flytja í viss kjördæmi svo sem 400 menn, sem gætu algerlega ráðið úrslitum um það, hverjir fengju meiri hluta í þeim kjördæmum. Ég vil nú bara leyfa mér að spyrja hv. þm.: Hvað felst á bak við svona þvætting? Er það raunverulega hans meining, að ef einhverjir menn flytjast t.d. vestur í Vestur-Ísafjarðarsýslu eða einhverjar sýslur úti á landi, við skulum segja hér úr Reykjavík eða einhvers staðar annars staðar, að þeir fái ekki atkvæðisrétt eftir þeim reglum, sem nú gilda? En það getur í raun og veru ekki verið neitt annað, sem hv. þm. á við en það. Við höfum ekki séð enn á Íslandi bundið þannig, að menn megi ekki flytja frjálst milli héraða og setja sig niður þar, sem þeim sýnist, en mér virtist, að í þessum orðum hv. þm. lægi eitthvað um það, að þannig skyldi það ekki vera, ef hann kæmist til meiri valda hér í landi, heldur skyldi þá séð um, að slíkt væri ekki hægt, að svona gætu menn ekki flutt sig milli staða eftir því, sem þeir af atvinnuástæðum eða öðru vildu vera láta. Ég gat a.m.k. ekki fundið neitt annað, sem lá til grundvallar fyrir — ja, ég veit ekki, hvað ég á að segja — þessari froðukenningu hans, sem var ekki nægilega rökstudd.

Hv. 2. þm. Reykv. gerði mjög mikla kröfu til þess, að ég sem félmrh. og hæstv. forsrh. yrðum að segja af okkur út af þessu máli. Að sjálfsögðu ætla ég ekki að fara að ræða um það hér, það er þingsins, eins og í hverju öðru máli. að skera úr um það. En séu stærstu afglöp, — ég get vel nefnt það, því að ég játa, að þessi ríkisstj. eins og aðrar geri afglöp, — en séu stærstu afglöp núverandi ríkisstjórnar að setja þessi brbl. um, að kjörskráin frá febr. 1955 skyldi gilda nú við nýafstaðnar kosningar í Kópavogshreppi, þá er ekki um auðugan garð að gresja um ásakanir á þá ríkisstjórn, sem nú situr.

Þá vil ég segja það, að ég er ósköp rólegur og tek örlögum mínum og ríkisstj. allrar með mestu rósemi, en þetta virtist, eftir því sem hv. þm. sagði, vera eitthvert allra versta og ég held versta áfallið, sem komið hefði af hálfu ríkisstj. um þetta atriði.

Hv. 2. þm. Reykv. lagði mikið út af því, að það væri með þessu verið að brjóta á móti anda stjórnarskrárinnar. Þetta held ég einhver mestu öfugmæli, sem hægt er að segja. Stjórnarskráin er eins og önnur mannanna verk, að það getur oft verið erfitt að fylgja því alveg út í æsar, og eitt af því er einmitt ákvæði í kosningalögunum, eins og þarna er um að ræða. En ég leyfi mér þá að segja, að það er einmitt að fylgja anda stjórnarskrárinnar að fara að eins og ríkisstj. gerði í þessu máli; það er einmitt í anda stjórnarskrárinnar, að þeir menn, sem raunverulega búa í Kópavogshreppi, en ekki einhvers staðar annars staðar, fái að greiða atkvæði og taka ákvörðun um sína afstöðu þar, og ég skal hvar sem er fylgja þessu eftir.

Þetta vildi ég leyfa mér sérstaklega að undirskrifa. En ég hygg, að menn, sem aðhyllast einræðisskipulag og kommúnisma, skilji ekki hluti eins og þessa. Og ég tel, að það sé miklu betra og réttara fyrir okkur, sem erum í ríkisstj., einmitt að taka áhættu af því að leggja mál eins og þessi, sem ég segi fyrir mig, að ég er sannfærður um að er rétt, svo rétt sem nokkurt mál getur verið, fyrir Alþingi og taka svo. afleiðingunum af því, hvernig Alþingi kann að líta á það.

Ég sé ekki ástæðu til að fara lengra inn á þetta. Ég vil aðeins að lokum, af því að hv. þm. talaði svo oft um það, hve mikil hætta væri að hringla með kjörskrá og kosningalög, taka það fram, að ég er honum algerlega sammála um það og tel, að þetta séu einir sterkustu hyrningarsteinar undir lýðræði og okkar þjóðfélagi. En ég tel, að hér sé ekki um neitt hringl að ræða, þar sem hér var algerlega um sérstaka aðstöðu að tala, og það er síður en svo, að hringlað sé með kjörskrána; það hefur engum dottið í hug og enginn borið fram, að það hafi verið hreyft við henni, hún er alveg eins og gengið var frá henni af stjórnendum Kópavogshrepps. Það eina er, að það er kosið eftir nýjustu kjörskrá, en ekki gamalli kjörskrá. Það er það eina, sem þurfti að breyta með þessum brbl.

Ég var búinn að taka það fram áður, og það er — ég vil nú segja óhæfileg illkvittni hjá hv. 2. þm. Reykv. að bera það fram, að þetta frv. muni aldrei fara út úr þinginu, að það muni vera ætlun ríkisstj., að það dagi uppi. Hvað sem að öðru leyti má segja um ríkisstjórn þá, sem nú situr, þá mun hún aldrei fara í felur við Alþingi um mál. Hún mun láta þau koma þar fram, segja sína skoðun á þeim, og hún mun svo taka afleiðingunum, eins og þær verða í hvert skipti. Þetta þori ég alveg að fullyrða, og það dettur engum manni í ríkisstjórn Íslands í hug að gera annað en þetta, hvað sem að öðru leyti má um hana segja.