24.10.1955
Neðri deild: 9. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 138 í C-deild Alþingistíðinda. (1570)
16. mál, kjörskrá í Kópavogskaupstað
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég er hræddur um, að hv. þm. V-Húnv. ætti að hlusta ofur lítið betur á þær ræður, sem haldnar eru hérna. Ég byrjaði í þeirri ræðu, sem ég hélt um þetta mál, að skýra einmitt mjög greinilega frá því, að þó að þessi brbl. væru felld hérna á þinginu, þá stæðu jafnt þær kosningar, sem fram hefðu farið í Kópavogi, þær hefðu alveg jafnt sitt gildi, svo að ef hv. þm. V-Húnv. er farinn að hafa áhyggjur út af því, að það yrðu nú kannske einar kosningarnar enn í Kópavogi, — og hann hefur nú fram að þessu ekki sýnt mikinn áhuga á að forða Kópavogsbúum frá kosningum, — þá skal ég alveg losa hann við þær áhyggjur. Þó að þetta frv. verði fellt og þó að það verði gert þannig, að það væri ríkisstj. mjög til smánar, þá þurfa Kópavogsbúar þess vegna ekki að fara út í einar kosningar enn. Þeir eru búnir samkv. þessum brbl., sem höfðu lagagildi í sumar, að kjósa sér sína bæjarstjórn. Ef nú hins vegar hæstv. ríkisstj. skyldi detta í hug, að fyrst það tókst ekki með þessum ofbeldisbráðabirgðalögum hennar í sumar að fá kosna bæjarstjórn í Kópavogi, þannig að henni væri að skapi, og henni dytti þess vegna í hug að semja nú á þinginu enn ein ný lög um, að nú skuli fara fram kosning í Kópavogi eftir manntalinu, sem kosningarnar máttu ekki fara fram eftir, þegar þessi brbl. voru sett, þá skal ég segja hv. framsóknarmönnum og sjálfstæðismönnum, að það mundi ekki heldur þýða fyrir þá, því að þó að þeir færu að kjósa eftir því manntali og kjörskrá á grundvelli þess, sem sé einu löggildu kjörskránni, sem var í fyrra, þá mundu þeir líka liggja í því og miklu verr en núna. Þess vegna, þó að þessi brbl. séu felld, þá stendur bæjarstjórnin í Kópavogi. Hins vegar er það gefið, og það er — og það vona ég nú, að hv. þm. V-Húnv. komi til með að skilja — það eina, sem Alþ. á að gera, þegar svona nokkuð kemur fyrir, ekki bara að fella svona brbl., heldur líka að fella þá ríkisstj., sem leyfir sér að haga sér svona.