16.02.1956
Neðri deild: 71. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 197 í C-deild Alþingistíðinda. (1640)

152. mál, sjúkrahúsasjóður og talnahappdrætti

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Mér þykir leitt, að hæstv. ráðh. skuli ekki vera viðstaddur nú, því að umr. um þetta mál var frestað síðast að hans ósk, af því að hann vildi vera við áframhaldsumr.

Það voru aðeins nokkur orð í því, sem hann sagði út af minni ræðu, sem ég vildi minnast á. Hann vildi telja, að ég hefði verið á móti tilgangi þessa frv., sem sé stofnun Sjúkrahúsasjóðs. Það var ekki rétt hjá honum, ég var mjög samþykkur því, ef hægt væri að stofna slíkan sjóð, en það, sem okkur greindi á um, var tekjuöflunin. Og það held ég að sé um þá, sem gagnrýnt hafa þetta frv., að þeir telji út af fyrir sig flestir, að gott væri, að svona sjóður væri stofnaður, en spurningin sé, hvernig teknanna skuli aflað. Ég held, að sú tekjuöflun, sem hér er farið fram á með þessu talnahappdrætti, sé auk þeirra galla, sem hún hefur í för með sér og hér voru gagnrýndir frá siðferðislegu sjónarmiði, mjög óöruggur grundvöllur fyrir sjóð, sem á að vinna eins mikilvægt verk og hæstv. ráðh. vill vera láta með þessu. Ég held, að sé til einn sjóður, sem á að lifa á svona hlutum. Í sambandi við íþróttasjóðinn á að afla tekna meðal annars með getraunum, og ég held, að það hafi gengið frekar erfiðlega, þannig að ég held, að hæstv. ráðh. megi mjög alvarlega athuga það, að ef hann heldur, að þetta sé tryggasta leiðin til að afla Sjúkrahúsasjóði tekna, að þá fari hann þar villur vegar.

Þá talaði hæstv. ráðh. um happdrættisfyrirtæki eins og háskólans, S.Í.B.S. og dvalarheimilis aldraðra sjómanna. Ég lagði alveg sérstaklega til í minni ræðu, að sú hv. n., sem fær þetta til athugunar, ræddi við stjórnir þessara happdrætta um, hvort það sé bætandi þarna á, því að meiningin var þó af hálfu Alþingis að vinna að þessum fyrirtækjum, þegar þeim voru gefin einkaleyfi viðvíkjandi happdrættum, en ekki að spilla fyrir þeim með því.

Þá vil ég enn fremur benda á viðvíkjandi stjórninni, að hér á að setja af stað tvær stjórnir, eina stjórn happdrættisins samkv. 5. gr., aðra stjórn sjóðsins samkv. 7. gr. Verður þá aldrei komið nóg af þessum stjórnum? Eftir því sem mér skildist nú, á nú að bregða út af þeirri einu föstu heilögu reglu, sem stjórnin hefur haft fram að þessu með skipun stjórna í þessu tilefni, það eiga ekki að vera helmingaskipti. Hæstv. ráðh. sagði, að það ættu að vera þrír menn þarna í, en það er þá reglugerðaratriði. Nú er farið að ganga það langt, að það getur þá hver ráðh. haft þetta eftir því, sem hann vill. Má ég nú spyrja: Hefur einum ráðh. aldrei dottið það í hug, þegar hann ætlar t.d. að setja af stað svona fyrirtæki eins og eitt happdrætti, að það væri nóg að setja einn forstöðumann í þetta og enga stjórn? Er það þá svona alveg fjarri lagi, að slíkt væri hugsanlegt, að ráðh. bara skipaði einn forstöðumann fyrir happdrætti, sem stjórnaði því?

Svo vildi ráðh. segja, að hann réði raunverulega engu með þessu. En má ég þá benda honum eða stólnum hans á 6. gr.? Þar stendur, með leyfi hæstv. forseta: „Úr Sjúkrahúsasjóði skal veita styrki til að reisa ný sjúkrahús og á annan hátt til eflingar heilbrigðismálum landsins eftir ákvörðun heilbrmrh., að fengnum till. stjórnar Sjúkrahúsasjóðs og landlæknis.“

Heilbrmrh. getur sem sé ákveðið hvað sem vera skal, sem hann álítur vera til eflingar heilbrigðismálum landsins, fyrir utan það að verja fé til að reisa ný sjúkrahús; hann fær til umráða, ef vel gengi með þetta allt saman, milljónasjóð, sem hann getur varið úr eftir því sem honum þóknast, og hvorki stjórn sjóðsins né stjórn happdrættisins hefur nokkurt vald yfir því, hvernig því er varið. Þetta er sem sé fé, sem ráðh. getur ráðstafað sjálfur. Þetta getur verið mjög hentugt, t.d. fyrir kosningar. Ég get skilið það ákaflega vel, að það finnist hæstv. ráðh. mjög þægilegt, og ég skal ekki bera á móti því, en hvort það komi að bezta haldi fyrir sjúkrahúsmál landsins, er ekki alveg jafnvíst. Það væri t.d. hugsanlegt, að einhver þm. Sjálfstfl., sem stæði mjög tæpt í sínu kjördæmi, fengi slíkt veitt í sitt kjördæmi til þess að koma þar upp sjúkrahúsi, en einhver, sem stæði alveg öruggur, fengi ekki neitt, þó að héraðið þyrfti þess með, vegna þess að flokkurinn þyrfti ekki á því að halda til þess að slá sér upp á því. Ég vil því benda á: Svona frv. á ekki að leggja fyrir og þá sízt af öllu reiðast, þegar þm. leyfa sér að gagnrýna það.

Ég ætla svo ekki, af því að ég hef bara athugasemdartíma, að segja fleira um þetta, en benda hv. n. á m.a., að það er ekki einu sinni talað um, til hve margra ára eigi að skipa stjórnir þessara sjóða, ekki minnzt á það. Ráðh. getur sem sé skipað mennina til næstum 30 ára, ef hann vill. Frágangurinn á þessu er því allur þannig eins og þetta væri búið til í eins konar happdrætti innan ríkisstjórnarinnar.