05.12.1955
Efri deild: 25. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 228 í C-deild Alþingistíðinda. (1660)

85. mál, mannanöfn

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Það er að vonum, að mönnum sýnist nokkuð sitt hvað um þetta frv. Það er vitað, að það hefur löngum verið deiluefni, hvort hér ætti að hafa ættarnöfn eða ekki. Sjálfur er ég þeirrar skoðunar, að heppilegast sé að forðast ættarnöfn eftir föngum. Hins vegar verð ég að játa, að reynslan er sú, að ættarnöfn eru orðin þáttur af íslenzku máli og íslenzkri sögu. Það er ómögulegt að neita því. Það eru svo margir góðir Íslendingar, sem uppi hafa verið á seinni öldum og borið hafa ættarnöfn, að ekki er hægt að segja, að ættarnöfnin séu óþjóðleg lengur, hvað sem í fyrstu kann að hafa verið. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar, að betur færi, ef sem fæstir hefðu ættarnöfn og tækju ættarnöfn, og ég vona, að hættan á almennri upptöku ættarnafna sé úr sögunni, að menn telji það vera metnaðarmál og til sóma fyrir Íslendinga að halda sínum gamla nafnasið. Ég tel, að löggjöfin eigi að stuðla að því, að þeim nafnasið sé haldið, en ég held, að hún eigi ekki að færast það í fang, sem henni hefur reynzt ógerningur, að ætla að koma með einföldu lagaboði í veg fyrir það, að menn taki upp og haldi ættarnöfnum, þeir sem það endilega vilja, ef þeir gera það með þeim hætti, að fullnægt sé réttum lögmálum tungunnar. Ég vil engan veginn gera jafnlítið úr því og hv. þm. Barð. (GíslJ), hvort löggjöf er fylgt eða ekki. Ég held þvert á móti, að einn aðalvandinn, sem hvílir á löggjafa hverju sinni, sé að átta sig á, um hvað þýðir að setja lög. Það eru ýmis efni þjóðlífsins slíks eðlis, að löggjöf um þau verður dauður bókstafur. Löggjöfin verður að vera í samræmi við réttarhugmyndir þjóðarinnar, til þess að nokkur von sé til, að henni verði framfylgt í raun og veru. Og það er eftirtektarvert, að þótt nú sé búið að vera bann við ættarnöfnum í þrjá áratugi, hefur fjöldi manna tekið upp ný ættarnöfn á þessu tímabili og fjöldi manna látið undir höfuð leggjast að fella niður ættarnöfn, svo sem þeir hefðu átt að gera samkvæmt l. frá 1925. Og ég minnist þess ekki, að nokkru sinni hafi hér á Alþ. komið fram svo mikið sem aðfinning gegn því, að þessi háttur hefur verið hafður á. Að vísu var fyrir nokkru borin fram fsp. um framkvæmd laganna. Það var sagt þá, hver hún væri. Ég hygg, að ekki hafi verið að því fundið, ekki í umr., a.m.k. ekki með ályktun, að framkvæmdin hefur verið jafnlinleg og raun ber vitni. Og nú, þegar hafizt er handa um endurskoðun löggjafarinnar, kemur frumkvæðið að því ekki frá Alþingi eða þeim, sem óánægðir hafa verið með það, að linlega hafi verið að farið, t.d. af stjórnarandstöðu eða af áhugamönnum í andstöðuliði ættarnafna, heldur er það ráðherra, sem hefst handa, af því að honum er illa við að eiga að halda uppi löggjöf, sem allir vita að er gersamlega dauður bókstafur. Ég vil alls ekki fallast á, að þessi sjónarmið séu einskis eða lítils virði. Ég held einmitt, að þau sýni, að hér hefur löggjafinn færzt meira í fang en hann var maður til að annast um framkvæmd á. Ég geri hins vegar ekki ráð fyrir því að sannfæra þá, sem eru hatrammir á móti ættarnöfnum. Þetta er meira smekks- og tilfinningaratriði en beinar röksemdir hafi þar áhrif. Ég skal að vísu játa, eins og ég hef sagt, að sjálfur er ég á móti ættarnöfnum, en ég tel aðeins, að löggjöfin í því formi, sem hún hefur verið, sé gagnslaus og þess vegna eigi að breyta til. Aftur á móti játa ég, að það er dálítið til í því, sem hv. þm. Barð. sagði, að sú hætta kann að vera á, að þótt þetta frv. yrði samþ. og gert að lögum, kynnu menn að halda áfram að taka upp og halda ættarnöfnum, sem ekki væri leyfi fyrir. Einmitt þess vegna tel ég, að það þurfi að athuga brtt. hans betur, þær sem fjalla um viðurlög við því, ef menn hafa ólöglegt ættarnafn. Ég vildi biðja hv. n. um að athuga þetta, annaðhvort með því, að umr. nú yrði frestað, eða brtt. þessar yrðu teknar aftur til 3. umr. og þessi atriði rædd við n., sem undirbjó frv., og eftir atvikum haft samráð við mig um málið, ef nefndinni sýndist það réttara.

Ég er því sammála, að það er tiltölulega þýðingarlítið að vera að setja nú löggjöf að nýju, ef hún á að verða sami dauði bókstafurinn og verið hefur. Ég tel raunar minni hættu á því með þetta frv. en lögin, vegna þess að hér er opnaður möguleiki til þess, að vísu takmarkaður, en þó opnaður, að menn geti tekið upp ættarnöfn, aðeins á að fylgjast með því, að þau séu rétt að lögmáli tungunnar. Og fyrir fram mætti mega vænta þess, að menn sættu sig við að lúta þeirri leiðbeiningu. Ég játa, að það er þó engan veginn víst og að öruggara getur verið að hafa einhverjar slíkar reglur, þær sömu og hv. þm. stingur upp á eða einhverjar hliðstæðar. Ég er að minnsta kosti fús til þess að athuga það af minni hálfu og vonast til þess, að hv. menntmn. beri sig saman við semjendur frv. um það. Vera kann þó, að þær séu of einstrengingslegar, ef svo mætti orða, og víss vandkvæði koma hér á. Ég játa það t.d., að ég er ekki alveg viss um, — og má þó segja, að skömm sé að játa slíkt, hvernig er með útgáfu vegabréfa nú. Það segir, með leyfi hæstv. forseta, í brtt., b-lið 4. töluliðar: „Eigi má rita ólöglegt nafn íslenzks ríkisborgara á vegabréf“ o.s.frv. Ég er ekki viss um, hvernig þessu er háttað nú, þegar menn fara með konum sínum til útlanda. Ég veit, að það kemur fyrir stundum, að þá er þar ritað föðurnafn mannsins einnig við nafn konunnar af mjög skiljanlegum ástæðum, vegna þess að það getur komið sér mjög illa að hafa konuna með allt öðru nafni en maðurinn, t.d. ef farið er inn á hótel, og a.m.k. á árunum fyrst eftir stríð var heimtað, að menn legðu þá vegabréfin með, og slík gerólík eftirnöfn hefðu getað valdið mönnum miklum erfiðleikum. Af þeim sökum hafa menn stundum, einmitt varðandi vegabréf, fengið sett föðurnafn sitt á eftir nafni konunnar á hennar vegabréf. Slíkt mundi verða algerlega bannað, ef till. hv. þm. yrði samþykkt. Þetta virðist mér þurfa að skoða betur, vegna þess að auðvitað á það ekki neitt skylt við ættarnöfn, þó að menn neyðist til þess með þessum hætti að auðkenna konuna erlendis. Við vitum, að fram hjá því verður mjög erfiðlega komizt. Fleiri slík atriði kunna að koma hér til greina.

En þó að ég sé ósammála meginatriðunum í till. hv. þm. Barð. og hv. 1. þm. N-M. (PZ), tel ég, að þessi atriði, sem ég nú drap á í till. hv. þm. Barð., þurfi frekari íhugunar við, og vildi þess vegna mega vænta þess, að n. annaðist um þá íhugun á milli funda.

Varðandi till. n. um það að heimila erlendum konum að hafa föðurnafn manns síns, þá treysti ég mér ekki til að greiða atkv. á móti þeirri till. Það getur oft verið, að föðurnafn konunnar sé svo annarlegt, að það sé ákaflega erfitt fyrir hana að taka það upp. Hennar fyrra ættarnafn eftir giftinguna brýtur algerlega á móti hennar eigin tilfinningum, þar sem venja er að breyta um nafn, þegar kona giftist, og ég get ekki séð, að það mundi valda miklu tjóni, þó að slík takmörkuð heimild, föðurnafn mannsins, yrði leyfð, heldur þvert á móti tel ég þá till. n. vera í samræmi við þá meginstefnu þessa frv. að reyna að finna reglu, sem haldi við hinum forna íslenzka nafnasið, en veiti þó heimild til undantekninga, þar sem ljóst er, að slíkar undantekningar hafa við sérstök rök að styðjast.