08.12.1955
Efri deild: 27. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 243 í C-deild Alþingistíðinda. (1667)

85. mál, mannanöfn

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég skal ekki segja langt mál og ekki eyða miklum orðum í þetta. Það virðist vera ljóst mál, að n. og einhverjir margir fleiri vilja lofa þeim, sem þess óska, að breiða yfir nafn og númer og sýna ekki, hverjir þeir eru eða hvaðan þeir eru ættaðir. Og það skilur maður náttúrlega vel um ýmsa menn, að þeir vilji það, þó að ég sé aldrei hrifinn af því að reyna að fara huldu höfði með sig og sína ætt, sitt fólk. En það, sem ég vildi nú sérstaklega benda á, er það, að þeir geta ekki heldur fallizt á að setja inn í frv., að það skuli tilkynna nafnbreytingar. Það á að setjast í reglugerð. Það er í sjö ár, sem hefur verið ákveðið, að gera ætti reglugerð um ýmis lög hér á landi, og þær eru ekki komnar enn. Frá sjö árum er sú elzta reglugerð, sem átti að setjast eftir lögum, og er ókomin, og svo á hverju ári fleiri og færri lög, sem eftir er að setja um reglugerð, sumar komnar, margar ekki, og þær skipta tugum, sem aldrei hafa komið, en eftir því á að bíða. Hér er því gott tækifæri fyrir menn að fá ný nöfn hjá ríkisstj., tilkynna það hvergi, og svo veit enginn, hverjir þeir eru. Meira að segja þó að þeir skrifi nafnið sitt einhvern veginn öðruvísi en þeir eiga að gera, þá mundi bankastjórinn taka víxla þeirra alveg eins gilda fyrir því, bara flaska á því sama og sagt er að hafi verið flaskað á hér, þegar lánað hefur verið til fyrirtækis, sem aldrei hefur verið tilkynnt að væri til, og stjórnarmenn þess voru ekki heldur til.