16.12.1955
Efri deild: 30. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 162 í B-deild Alþingistíðinda. (170)

86. mál, laun starfsmanna ríkisins

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég geri ráð fyrir því, að málið almennt hafi nú ekki mikla þýðingu gagnvart því að koma fram brtt. við það, ef meiningin er að gera það að lögum í dag eða á morgun. Þó vil ég, að fram komi það sérsjónarmið, sem ég hef á málinu og ég tel að ekki hafi verið gætt nægjanlega, þegar þetta frv. hefur verið samið og lagt fyrir og við þá meðferð, sem það hefur að öðru leyti fengið til þessa dags.

Ég vil þá fyrst og fremst benda á það, að ég tel ákaflega misfarið, að ekki skuli vera teknir upp í launalög allir þeir menn, sem eru starfsmenn þess opinbera, ríkisins, enda þótt þeir séu í einhverjum deildum, sem taldar eru meira og minna sjálfstæðar. Á ég þar við banka, Fiskifélag, Búnaðarfélag og heilan hóp af stofnunum, sem standa í jaðrinum á ríkisstj. og eru reknar fyrir ríkissjóðsfé að sumu leyti og ríkissjóðsábyrgð að öðru leyti. Þegar þessir menn sumir hverjir og í sumum af þessum stofnunum eru til muna hærra launaðir en launalögin gera ráð fyrir, að sambærilegir menn fái, sem er beint borgað úr ríkissjóði, en ekki gegnum millikassa, eins og hinir eru, þá kann það ekki góðri lukku að stýra, það gerir áframhaldandi óánægju, sem ekki verður tekið fyrir með lögunum. Það er vitnað í þennan mann í þessari stofnun, hann hefur sömu menntun og ég, hann hefur svipað starf og ég, en hann hefur miklu hærri laun. Og þessir menn allir saman þyrftu þess vegna að takast inn í launafrv. Ég veit, að það er dautt mál um að tala nú. Ég veit, að sú n., sem fær málið til meðferðar nú og búin er að vera með það áður hér á þinginu ásamt n. í hv. Nd., hefur ekki tíma til þess héðan af. Það er útilokað, ef það á að ná fram að ganga fyrir áramótin, en ég vil láta þetta sjónarmið koma skýrt fram, því að ég tel þetta mjög misfarið, og ég tel, að það fáist aldrei viðunanleg launalög, fyrr en þau ná yfir þessa menn alla.

Annað, sem ég vil benda á í þessu sambandi, er það, að í þessum lögum hefur ekki verið tekið neitt tillit til þeirra embætta, sem fylgja sérstaklega mikil fríðindi. Það eru nokkur embætti, sem hafa ókeypis bíl á kostnað ríkisins. Þeir menn, sem hafa þau og sitja annars í sams konar embætti og aðrir, sem hafa þau ekki, fá alveg sömu laun. Það er ekkert tekið tillit til þess. Það eru nokkrir embættismenn ríkisins, sem fá ókeypis húsnæði, ljós og hita og sitja annars að öðru leyti alveg við sömu laun í þessu frv. og aðrir, sem hafa það ekki. Það eru enn fremur nokkrir embættismenn, sem hafa með ráðherraúrskurði aukagreiðslur fyrir ákveðin verk fram yfir þeirra föstu laun í lögum. Það hefur ekkert verið tekið tillit til þess hér.

Nú vil ég spyrja hæstv. ríkisstj.: Er meiningin með þessum launalögum, að þessi aukafríðindi, hvort sem þau eru borguð beint í peningum, í húsnæði, í bílfríðindum eða öðru þess háttar, haldist og að það haldist sá mismunur, sem fram kemur í lögunum, þegar maður annars vegar lítur á laun mannanna, eins og þau koma þar fyrir, og hins vegar hina við hliðina á, sem hafa sömu embættum að gegna, en hafa fríðindin? Eða er meiningin, að þau falli niður með lögunum? Er ætlazt til þess, að sá rektorinn, sem aldrei hefur verið látinn borga húsaleigu af sinni íbúð, haldi áfram að búa þar ókeypis með ljós og hita og þægindi, en hinn áfram að borga húsaleigu og báðir hafi svo sömu laun? Er ætlazt til þess, að þeir forstöðumenn, sem núna hafa bíl til fullra umráða að öllu leyti á ríkisins kostnað, haldi honum, en hinir, sem aldrei hafa fengið það og verða að kaupa bíl til hvers sem vera skal, hafi það ekki, en að öðru leyti sömu föstu laun eftir frv.?

Tillit til þessara fríðinda hefur ekki verið tekið á neinn hátt í frv. Og þó hefur það nú verið gert, því að ein heil stétt af embættismönnum landsins, prestarnir, býr við hér um bil fjórða hluta af húsaleigu, miðað við aðra, sem hjá ríkinu eru og búa í húsum, sem ríkið á, og þurfa að borga húsaleigu eftir það. Þeir hafa verið hækkaðir, þó að þeir hafi þessi fríðindi fyrir fram yfir alla aðra embættismenn. Þetta var annað, sem ég vildi benda n. á. Ef hún sæi sér fært að laga það, þá gerir hún það. Ég geri ráð fyrir, eins og málið nú er komið, úr því að sú mþn., sem hafði málið til meðferðar, hefur ekki séð sér fært að fara í þetta, og úr því að n., sem hefur haft það til meðferðar í þinginu, hefur ekki heldur reynt að laga það, þá verði það varla lagað hér eftir. En þá spyr ég aftur: Er meiningin, að þessi aukafríðindi haldist hjá sömu mönnunum, sem annars eru í sama launaflokki og aðrir, eða eiga þau öll að afnemast, þegar þessi lög koma til framkvæmda? Það langar mig til að fá að vita afdráttarlaust.

Það er aðeins eitt atriði enn, sem ég vil benda á viðvíkjandi launum, og skal ég ekki tefja umr. eða málið með öðru, enda þótt ég hefði dálitla löngun til þess. Það, sem ég þá vil benda á, er þetta. Það fór nú svo fyrir meiri og minni klaufaskap, að þegar tilraunastöðin á Keldum var stofnuð, var hún sett undir læknadeild háskólans og heyrir þar undir nú, þó að ekki væri ætlað þá og ekki hugsað, að hún ynni á neinn hátt að rannsóknum á mannasjúkdómum, enda önnur stofnun til, sem ætlað var að gera það. Það hefur að vísu ekki unnið þar nema einn dýralæknir, en það hafa unnið þar aðrir sérmenntaðir menn, t. d. biokemiker, sem sýndi þann þegnskap að fara ekki í Verkfræðingafélagið og gera ekki verkfall með verkfræðingunum, þegar þeir voru að þvinga upp sitt kaup, heldur standa utan við það og sætta sig við sitt lága kaup og vera áfram við það á Keldum. Hann sýndi þann þegnskap þá. Dýralæknir, sem ætlaði að vera á Keldum og hefur verið þar, hefur verið sonur minn, þess vegna hef ég ekkert um þetta talað eða viljað tala hingað til. Nú hefur hann sótt um yfirdýralæknisembættið, og þá tel ég alveg víst, að hann fái það, því að það er ekkert leyndarmál, að hann hefur með styrk frá Alþ. stundað tveggja ára framhaldsnám í dýralækningum, verið við það 8 ár, meðan hinir hafa verið við það 6, og tekið sitt próf með ágætiseinkunn, meðan hinir, sem nú eru starfandi hér á landi, hafa hangið í 2. og 3. einkunn. Því tel ég nú, að ég geti um þetta talað án þess að vera borin á brýn nein hlutdrægni, vegna þess að sonur minn eigi í hlut. Ég skoða hann sem, ja, ekki orðinn yfirdýralækni, en sama sem. En ég er alveg viss um, að það fæst ekki nokkur dýralæknir að Keldum fyrir þau laun, sem þar eru ætluð. Þetta þarf því að laga, ef menn vilja láta Keldur eiga við búfjársjúkdómana, en ekki fara að öllu leyti undir mannasjúkdóma, og á það er sótt af læknadeild háskólans, og það er ekkert undarlegt, því að Keldur hafa mörgum sinnum betri og fullkomnari verkfæri til þess að gera rannsóknir á hverju sem vera skal en t. d. háskólinn. Þess vegna er ekkert undarlegt, þó að læknarnir vilji nota sér það, og ég er viss um, að það fæst enginn dýralæknir að Keldum fyrir þessi laun. Þeir hafa allir hærri laun, ef þeir fara í embætti, því að þar fá þeir aukatekjur. Þar að auki verður að krefjast þess, að sá dýralæknir, sem fer að Keldum, hafi meira en almenna dýralæknismenntun. Almennur dýralæknir hefur ekki lært neitt til þess að geta tekið og búið til bóluefni og annað þess háttar. Hann þarf að læra það alveg sérstaklega. Hann hefur ekki fengið heldur þá æfingu, sem þarf til þess að geta skorið úr, um hvaða sjúkdóma sé að ræða í þetta og þetta skiptið, sem um er að ræða, og slík tilfelli koma fyrir vikulega og daglega. Almennur dýralæknir hefur ekki þá aðstöðu eða þá getu t. d., eins og sonur minn hafði eftir sitt aukanám, sem hann var studdur til af Alþ. með 6000 kr. í tvö ár og dvaldist í Svíþjóð, Englandi og Ameríku við það, að geta t. d., þegar maður hér í Reykjavík — og nú tala ég um mann — úthverfist af kýlapest og læknarnir standa ráðalausir, bera á hann joð og skera í hann o. s. frv., — þá hefur ekki sá dýralæknir, sem skipaður yrði að Keldum, möguleika til þess að taka „prufu“ af manninum og vera svo kominn eftir 2 daga með bóluefni, sem hann sprautar inn í hann, og öll kýlin eru horfin. Þetta hefur sonur minn gert, en til þessa vantar almennan dýralækni menntun. Það geta mannalæknarnir náttúrlega gert, ef þeir hafa aðstöðu til þess, en þeir hafa hana ekki nema á Keldum. Þess vegna er ekkert undarlegt, þó að þeir sækist eftir að hafa þá aðstöðu þar.

Ég er þess vegna alveg viss um það, að með laununum, sem ætluð eru að Keldum, dýralækninum fyrst og fremst, efnafræðingnum reyndar líka, kemur ekki aftur dýralæknir að Keldum, og það er sama sem að afhenda læknunum Keldur fyrir mennina og láta dýrin eiga sig.

Dómsmrh. er hér inni, og hann veit, að það er í mörg ár búin að standa deila um, hvernig reglugerð um starfsemina á Keldum eigi að vera, einmitt vegna togstreitu, sem er milli þeirra, sem vilja hafa hana fyrir mannalækningarnar, og hinna, sem vilja halda því áfram undir dýrunum. Ég mun ekki núna koma fram með brtt. við þetta, en annars mun ég seinna, ef n. ekki kemur fram með neina brtt., gera till. um það, bæði viðvíkjandi dýralækninum á Keldum og eins viðvíkjandi efnafræðingnum á Keldum, að þeir verði báðir hækkaðir um einn flokk, og mun ekki af veita, ef á að halda þeim þar og fá menn í stað þeirra, sem þar starfa nú, þegar þeir fara.