20.01.1956
Efri deild: 44. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 296 í C-deild Alþingistíðinda. (1710)

116. mál, Iðnaðarmálastofnun Íslands

Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Það er nú sýnilegt af þeim umr., sem hér hafa farið fram, að ástæðan fyrir því að vísa málinu frá er byggð á hreinum misskilningi, eins og kom skýrast fram í ræðu hv. frsm. minni hl. í gær.

Aðalástæðan var talin vera ákvæði 2. gr. í 1. tölulið. Og eftir að marglýst hefur verið hér yfir, að meiri hl. n. sé fús á að hafa samvinnu um að breyta orðalaginu þannig, að það geti ekki verið um misskilning að ræða, hefur hv. frsm. hopað í því máli og raunverulega alveg gefizt upp að ræða það atriði frekar, en hefur aðallega snúið sér að ákvæðum 11. gr. og talið, að það sé nú höfuðástæðan fyrir því, að vísa eigi málinu frá, þar sem beint sé ákveðið í 11. gr., að Iðnaðarmálastofnunin skuli hafa yfirráð yfir atvinnudeild háskólans. En einnig þessi ummæli eru byggð á hreinum misskilningi. Mér þykir rétt að ræða ofur lítið efnislega það atriði, vegna þess að mér, sem átti sæti í mþn., er vel kunnugt um, hvers vegna greinin er orðuð eins og hér er gert í frv. Þar stendur, með leyfi hæstv. forseta:

„Iðnaðarmálastofnuninni er rétt að hafa samstarf við atvinnudeild háskólans og aðrar opinberar rannsóknarstofnanir um þær tilraunir og rannsóknir, sem hún telur nauðsynlegt að framkvæma, og skulu rannsóknarstofnanir þessar veita henni þá aðstoð, sem þeim er unnt. enda komi fullt gjald fyrir.“

Þetta er beinlínis sett í frv. vegna þess, að það er ekki ætlazt til þess, að Iðnaðarmálastofnunin setji sjálf upp neina rannsóknarstofu, hvorki efnarannsóknarstofur né aðrar rannsóknarstofur, sem nauðsynlegar eru í sambandi við hennar starf, þess vegna sé haft fullt samstarf á milli Iðnaðarmálastofnunarinnar annars vegar og atvinnudeildar háskólans og rannsóknaráðs ríkisins og annarra opinberra stofnana hins vegar. En að sjálfsögðu er ekki hægt að skylda þessar stofnanir til þess að vinna verk fyrir Iðnaðarmálastofnunina, nema því aðeins að ákveðið sé, að fullt gjald komi fyrir.

Þetta sýnir, að Iðnaðarmálastofnunin vill hafa og ætlar sér að hafa fullt samstarf við þessar rannsóknarstofur og ætlar ekki að ganga neitt á þeirra hlut, nema síður sé, og ekki heldur að setja upp neina rannsóknarstofu, sem sé í samkeppni við þær. Og það skýtur ákaflega skökku við, að hv. frsm. skuli einmitt nota þetta ákvæði sem aðalrök fyrir að vísa málinu frá, þegar hann á sama tíma viðurkennir, að það sé stórkostleg bót á frv. að samþykkja 2. brtt. meiri hl., nefnilega þá að setja inn viðskiptadeildina, þannig að Iðnaðarmálastofnunin skuli hafa rétt til þess að hafa samstarf við viðskiptadeild og atvinnudeild háskólans, því að ef það væri réttur skilningur hans á gr., eins og hann þóttist hafa hér í gær, þá verður það til hins lakara að setja einnig inn viðskiptadeildina, en ekki til bóta. Þetta þýðir sýnilega, að hv. frsm. meiri hl. hefur annaðhvort ekki sett sig inn í málið eða hann meinar ekki það, sem hann hefur haldið fram hér í þessu máli.

Ég skal láta þetta nægja um það atriði. Hv. þm. sagði út af ummælum mínum í sambandi við atvinnudeild háskólans og rannsóknaráð ríkisins, að ég hefði sagt, að þar hefði vantað allt annað en fjárframlag, og taldi, að það hefði verið nærri ósæmilegt af mér að setja fram slík ummæli hér í umr.; ég væri þar með, að mér skildist, a.m.k. að gefa tilefni til að taka upp víðtækari umr. um þessi mál. Ég vil nú út af þessum ummælum hv. frsm. leyfa mér að benda á, að á árinu 1955 eru veittar til atvinnudeildar háskólans nærri 780 þús. kr., til fiskideildarinnar rúmlega 940 þús. kr., til landbúnaðardeildarinnar tæpar 640 þús. kr., að viðbættum nærri 80 þús. og að viðbættum nærri 100 þús. kr., og sameiginlega til allra deildanna tæpar 500 þús. kr., svo að framlag til atvinnudeildar háskólans er hvorki meira né minna en rúmlega 3 millj. kr. Ég segi, að hér vanti eitthvað og hafi vantað eitthvað annað en fé til þess að framkvæma ýmsar rannsóknir.

En þetta eru ekki einu fjárframlögin. Auk þess eru veittar til rannsóknaráðs rúmar 200 þús. kr. Auk þess eru veittar á 16. gr. fjárlag. anna til þess að koma upp sýningarreitum í jarðrækt 750 þús. kr. og enn fremur 450 þús. kr. til brennisteinsrannsókna og annarra rannsókna á hagnýtingu jarðhita til iðnaðar.

Mér þykir mjög vænt um að sjá, að hv. fjvn. hefur ekki skorið neitt niður af þessum fjárframlögum, frá því að ég var formaður nefndarinnar, en þá var mér vel kunnugt um, að það var mætt með fullum skilningi hverri þeirri ósk, sem kom frá þessum stofnunum, fylgdu einhver rök fyrir því, að viturlegt væri að leggja fram fjárupphæðir. Og auk þess, sem ég hef talið fram hér, eru raunverulega 150 þús. kr., sem eru veittar til kolarannsókna og 50 þús. kr. til biksteinsrannsókna.

Þá hefur verið veitt hér, sýnist mér, eitthvað á sjöttu milljón króna til þessara rannsókna, sem hefðu þá átt að fara í gegnum hendurnar á atvinnudeildinni og þessum stofnunum, ef þeim hefði að fullu verið trúað fyrir þessu fé.

Nú vil ég benda hv. frsm. minni hl. á, að síðast þegar ég var í fjvn., komu fram till. og óskir frá landbúnaðardeild atvinnudeildarinnar í sambandi við jarðræktartilraunir og m.a. í sambandi við tilraunabúið, sem síðar var sett upp á Varmá. Fyrsta óskin í sambandi við það var að kaupa hér fasteign í Mosfellssveitinni fyrir rúma eina milljón króna. Það voru ekki færð fram af viðkomandi aðilum, sem fóru með þessi mál og voru bæði deildarstjórinn, Halldór Pálsson, og svo Áskell Löve, nægilega sterk rök til þess, að hægt væri að mæta þessum óskum. Óskin var ekki rökstudd með neinu öðru en því, að hér væri um að ræða stað, þar sem væri nægilegur hiti og hann væri nauðsynlegur til rannsókna. Það var þá bent á, að ríkið ætti land í Hveragerði, þar sem starfræktur væri skóli ríkisins, og þar væri nógur hiti, og fjvn. sýndist, að það væru engin vandkvæði á því að flytja þangað þær rannsóknir, sem þurfti að gera í sambandi við jarðhita. En það strandaði á því, að þeir aðilar, sem höfðu með þetta mál að gera, töldu, að það væri allt of langt frá Reykjavík. Það var ekki sannað fyrir nefndinni, að þessi rök væru byggð á neinu öðru en því, að starfsmönnunum sjálfum þætti of langt að fara frá Reykjavík til þess að hafa rannsóknirnar austan fjalls og vildu ekki flytja sig austur til þess að gera rannsóknir þar á staðnum. Þess vegna var ekki mætt þessari ósk atvinnudeildarinnar. Þá var ákveðið að taka land til tilraunanna í Kópavogi. Átti það þá að vera eina landssvæðið á landinu, sem hægt væri að gera þessar tilraunir á, eftir því sem kom fram frá deildinni á þeim árum, og krafizt var mjög mikils fjárframlags til þess að byggja þar upp tilraunastöð, sem sýndist mundu nema milljónum. Gat fjvn. ekki fallizt á það og benti á, að ef þessi staður hefði slíka sérstæða mold eða sérstakan jarðveg, þá væri mjög vafasamt, að það væri rétt að gera tilraunir á slíkum stað, ef það yrði að flytja tilraunirnar út í allt annan jarðveg og miklu lakari. Og af því að ekki var hægt að hrekja þessi rök fjvn., fékkst ekki fé til þess að byggja þetta fyrirtæki upp á þeim stað, en þá var hlaupið til og keypt Úlfarsá og þar sett upp vísindastarfsemi sú, sem að framan greinir. Við vitum, hvernig það fór. Hér fór allt í mola, ekki af því, að það vantaði fé, heldur, eins og ég hef sagt, eitthvað annað, til þess að hægt væri að fá þar fullan árangur. Úlfarsá var síðan gerð að drykkjumannaheimili í staðinn fyrir að gera hana að tilraunastöð í jarðrækt, og þá hopar deildin með sínar rannsóknir yfir á land, sem ríkið á ekki, þ.e. yfir á Varmá, og þar sitja þessar tilraunir enn.

Þetta er saga þessa máls, og veit ég, að hv. frsm. minni hl. er kunnugt um þetta, því að hann hefur m.a. verið yfirmaður þessarar stofnunar nokkurn þann tíma, sem þessi sorgarsaga hefur átt sér stað.

En það er annað, sem upplýstist í sambandi við þetta mál, að deildarstjórinn í þessari deild atvinnudeildarinnar er á fullum launum hjá deildinni, en á hálfum launum hjá allt annarri stofnun og þar af leiðandi á hálfum öðrum launum og er búinn að sitja við það í fjöldamörg ár. Þegar ég var í fjvn., krafðist ég þess af þáverandi búnaðarmálastjóra að fá upplýst. hvers vegna þessu væri hagað þannig. Hann upplýsti þá og færði fyrir því rök, að Búnaðarfélag Íslands hefði ráðið þennan mann til ákveðinna starfa í Búnaðarfélaginu, sem líka er opinber stofnun, og fyrir þau hálfu laun, sem hann fengi í Búnaðarfélaginu, fengi stofnun sú fullt starf, og ég geri ráð fyrir, að núverandi búnaðarmálastjóri viðurkenni það einnig. Hitt var svo aldrei upplýst, hvaða starf atvinnudeild háskólans fengi fyrir það að hafa þennan mann á fullum launum, og ég hygg, að það sé ekki upplýst enn í dag. Það var aldrei hægt að fá það upplýst á þeim tíma, sem ég var í fjvn., og ég hygg, að það sé óupplýst enn. En á meðan stofnunin er rekin þannig, að hægt er að hafa þar menn til þess að vera í hálfu starfi með hálfum launum annars staðar og fá að ganga fram hjá sínu aðalstarfi, þá vantar eitthvað annað í þessa stofnun heldur en fé, og segi ég þetta að gefnu tilefni frá hv. frsm. minni hl. í gær.

Ég vil einnig leyfa mér að benda á, að það hafa verið gerðar hér mjög ýtarlegar rannsóknir á undanförnum árum í sambandi við saltvinnslu á Reykjanesskaga. En hver hefur gert það? Ekki rannsóknaráð ríkisins, ekki atvinnudeild háskólans, þó að iðnaðardeild hennar hafi til umráða stórfé, heldur er þetta gert af allt öðrum aðilum, þ.e. af jarðborunardeild ríkisins. Skýrslurnar, sem liggja fyrir um það frá Baldri Líndal, sýna, að það eru þeir, sem hafa gert það, og aðrir ekki komið þar nálægt. Þar vantaði þó ekki verkefni til þess að vinna að. Mér var kunnugt um, að þegar um það var rætt að setja upp drykkjumannahæli í Krýsuvík eða á Reykjanesskaga, þá urðum við, sem með það mál fórum, að leita allra þessara upplýsinga utan atvinnudeildarinnar, sem ekkert gat upplýst um þessi mál. Það er sumpart jarðborunardeildin, sumpart saltvinnslunefnd Hafnarfjarðar og sumpart Iðnaðarmálastofnun Íslands, sem hafa þokað því máli áfram á það stig, sem það er komið á í dag.

Nákvæmlega sama er að segja um þær rannsóknir, sem farið hafa fram á þara- og þangvinnslu fyrir landið. Það hefur ekki verið gert. af þessum stofnunum, sem fyrir voru, eins og hefði mátt vænta, heldur hafa aðrir orðið að grípa þar inn í til þess að ýta þar á eftir, svo að það er full ástæða til þess að láta þá 2. gr. standa í frv„ þ.e., að Iðnaðarmálastofnunin verði að fylgjast með og hafa forgöngu um rannsóknir, ef það er ekki gert af öðrum aðilum.

Ég vil enn fremur að síðustu í sambandi við þetta benda á, að samkomulagið hefur verið slíkt í atvinnudeildinni, að það hefur raunverulega verið alveg óþolandi. Það var lengi vel, að hver sérfræðingur vildi vera sjálfstæður og sjálfráður og hafa fullt af skrifstofufólki í kringum sig. Þarf ekki annað en að benda á, hvernig ástandið var í iðnaðardeild atvinnudeildarinnar, — eða er hv. frsm. minni hl. ókunnugt um, hvernig samkomulagið var á milli deildarstjórans og Vestdals? Og hvernig hefur þetta verið í öðrum deildum stofnunarinnar? Ég lít svo á, að það sé meiri ástæða fyrir bæði hæstv. ríkisstjórn og jafnvel fyrir fjvn. að láta gera róttækar tilraunir til þess að laga það ástand, sem ríkir í þessari stofnun, heldur en að vera að gefa stofnuninni meira vald en gert hefur verið eða meira fé en gert er í dag, á meðan ekki er hægt að koma þessum málum í betra horf en virðist hafa verið hingað til.

Ég skal svo láta útrætt um þetta atriði hér; en aðeins segja nokkur orð í sambandi við ummæli hv. 1. þm. N-M. Ástæðan fyrir því, að hann fylgir frávísunartill., er fyrst og fremst sú, eins og hann sagði í gær, að hann er ekki búinn að átta sig á því enn þá, hvort slíkum félagsskap eigi að skipa með lögum. Ég skal viðurkenna, að þetta er ekkert nýtt. Þessi skoðun hefur komið fram hjá hv: þm. allan tímann og öll árin, sem þetta hefur verið til umr. hér í þessari hv. d., en hann hefur bara haft nærri 9 ár til þess að átta sig á þessu máli. Þessi skoðun kom fram fyrst 1947. Hann setti þá fram nákvæmlega sömu skoðun sem: hann setti hér fram í gær, að hann væri ekki búinn að átta sig á því, hvort það væri ekki réttara að skipa þessu á sama hátt og með Fiskifélagið og Búnaðarfélag Íslands, og ég verð að segja, að ef það á að vísa máli frá af þeim ástæðum, að sérhver þm. af 52 í þinginu getur krafizt þess, að málið sé látið bíða, þangað til hann sé búinn að átta sig á því, hvort það sé rétt að láta það ná að ganga fram eða ekki, og þurfi til þess meira en 9 ár, þá verður lítið um afgreiðslu mála á þinginu. Það er a.m.k. ekki að mínu áliti frambærileg ástæða til þess að vísa máli frá.

Það getur vel verið, að það sé rétt út af fyrir sig, að þessari stofnun sé skipað á líkan hátt og Búnaðarfélaginu, um það skal ég ekki á þessu stigi málsins deila. En hv. þm. átti að vera búinn að gera það upp við sig fyrir löngu, hvort það væri rétt eða ekki, .og nota það ekki í dag sem frávísunaratriði.

Ég vil þó í sambandi við þetta leyfa mér að benda á, að ég sé ekki ákaflega mikinn mun á því. Búnaðarfélagið er stofnað og starfrækt af búnaðarfélögum eða bændastéttinni, en hverjir bera þunga af kostnaðinum af félaginu? Af 2 millj. kr. fjárframlagi, sem látið er til Búnaðarfélagsins á s.l. ári, eru 2000 kr. greiddar af þeim mönnum, sem eiga þarna réttinn og ráða yfir öllu. Er það sú stefna, sem við eigum að fara inn á yfirleitt, að láta einhverja aðila greiða 2000 kr. til ákveðinnar stofnunar og gera kröfur til ríkisins allt að 2 millj. kr.? Er þetta réttari stefna en hér er farið inn á? Ég efa það, og ég er tilbúinn hvenær sem er að taka upp umr. um það við hv. þm. Nákvæmlega sama er með Fiskifélagið. Framlag til þess er litlu minna frá ríkinu, en það er ekkert meira frá þeim, sem hafa stofnað í félagið og eiga að bera ábyrgð á rekstrinum. Og það er komið svo nú, að báðar þessar stofnanir eru raunverulega ríkisstofnanir, þótt þessi háttur sé hafður á, þ.e. meira og minna deildir í ráðuneytunum, og þess vegna er miklu eðlilegra frá mínu sjónarmiði að skipa þessu með lögum heldur en að fara lengra inn á þá stefnu, sem hefur verið farin hvað snertir hinar tvær stofnanir, sem ég hef minnzt hér á.

Ég vildi óska þess, að fyrir 3. umr. gæti hv. 1. þm. N-M. áttað sig á þessu máli. Hann hlýtur að vera búinn að kryfja það til mergjar allan þennan tíma og geta þar af leiðandi áttað sig á því, hvorri stefnunni hann fylgir, og sett þá einhverjar aðrar frambærilegri ástæður fyrir því að vera á móti málinu en komu fram hjá honum í gær. Verður þá eðlilegast að taka dagskrána aftur til 3, umr. og láta fyrst ganga atkvæði. um hana á síðara stigi málsins.

Ég vil svo aðeins að síðustu benda á, að ef hér er um einhverja pólitíska refskák að ræða, en ég hef ekki látið orð liggja að, að svo væri, en um það var deilt hér í gær, þá vil ég eindregið benda á, að í mþn. átti sæti maður frá þeirri stoðinni, sem sterkast rennur undir Framsfl. í landinu, þ.e. Sambandi íslenzkra samvinnufélaga, með öllum þeim undirdeildum, sem þeir hafa, og þeirra fulltrúi óskaði alveg eindregið eftir því, að þetta mál næði fram að ganga óbreytt eins og það er í frv. Þeir eiga líka og hafa frá fyrstu átt fulltrúa í stjórn stofnunarinnar, og því meira sem þeir hafa kynnt sér þetta mál, því eindregnari hafa verið kröfur þeirra um það, að málið næði fram að ganga. Ég hygg því, að hv. minni hl. ætti að átta sig meira á þessu máli en hann hefur gert hingað til, áður en hann heldur fast við till. um að vísa málinu frá með þeim rökum, sem þar eru sett fram, því að þau rök fá ekki staðizt eftir allar þær umr., sem hér hafa verið frammi í sambandi við málið.