20.01.1956
Efri deild: 44. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 302 í C-deild Alþingistíðinda. (1712)

116. mál, Iðnaðarmálastofnun Íslands

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég skal ekki tala langt mál, en ræða hv. þm. Barð. (GíslJ), frsm. meiri hl., gefur mér tilefni til að segja nokkur orð.

Ég vil þá fyrst taka það fram, að við höfum báðir haft þá von í nokkur ár, að það væri hægt að fá iðnaðarmennina, bæði verksmiðjuiðnaðarmennina og handiðnaðarmennina, til að vinna saman og starfa saman í félagsskap. Hann er sýnilega búinn að gefa hana upp. Ég er ekki búinn að því.

Ég skal þá líka benda á, að það, hvernig farið var með þá deild atvinnudeildar háskólans, sem átti að vera til þess að reyna fyrst og fremst að gera hér á landi jurtakynbætur, hvernig hún var hrakin frá einum stað í annan, varð til þess, að sá maðurinn, sem mesta sérþekkingu hafði á því hér á landi og sótzt var eftir frá öðrum löndum, hrökklaðist úr landi og fór til Kanada og vinnur þar. Og mér skildist, að þm. Barð. væri að hæla sér sem form. fjvn. fyrir að hafa gert þetta verk, að geta ekki látið hann fá þá aðbúð, að hann gæti starfað, og reyndi að flæma hann í burtu. Mér finnst það ekki vera hrósvert, langt frá því.

Ég er, eins og ég sagði í gær, alveg óviss í enn þá, hvort réttara er að fara inn á þá stefnu, sem er t.d. í Rússlandi, þar sem einn maður stjórnar ofan frá. Yfirstjórn t.d. nautgripakynbótanna ræður alveg, hvaða naut eru notuð um allt landið. Kýreigendur ráða engu um það. Eigum við að fylgja slíkri stefnu, byggja allt upp ofan frá, lofa þeim, sem fyrst og fremst eiga að starfa, engu að ráða? Eigum við að stjórna öllu ofan frá, eða eigum við að lofa þeim mönnum, sem eru í starfinu, framleiðslustarfinu, að hafa hlutdeild í því, og hvernig er bezt að koma þeirri hlutdeild fyrir? Þetta er það, sem ég segi, að ég eigi eftir að átta mig á. Ef við förum í Norðurlöndin, hefur þróunin orðið sú, að það hefur færzt meira og meira yfir í frjálst form félagsskapar úr viðjum ríkisstjórna. Ég skal engu spá um þróunina hér. Bæði Búnaðarfélaginu og Fiskifélaginu er nú falið að vinna fjölda verka fyrir ríkisstjórnina, enda hafa þau sitt starfsfé þaðan, en þó hafa hvorugu verið sniðin lög af Alþingi, heldur hafa félagsmenn sett þau sjálfir. Ég er ekki viss um, að við eigum að setja einn mann eða eina stofnun, sem eigi að stjórna öllu ofan frá, eða hvort við eigum að hafa þátttöku bændanna meira og minna með í því og þá hvernig sé heppilegast að koma því fyrir. Bæði Búnaðarfélagið og Fiskifélagið reyna með búnaðarþingi og fiskiþingi, sem haldin eru árlega, að fá áhrifin þar inn frá framleiðendunum sjálfum. Það er líka þarna hugsað, að það geti komið nokkurs konar iðnaðarþing, en eftir tillögum forsetans okkar átti Alþingi að skipa alla stjórnina að stofnuninni. Nú er hann þó horfinn frá því að vísu. Nú vill hann lofa félagsheildum að kjósa hana sjálfar, og þá fá iðnaðarmenn náttúrlega dálítið áhrifavald í gegnum það, en meðlimir eða þátttakendur verða þeir ekki.

Þetta er enn þá allt saman svífandi, hvernig bezt er að hafa það, og ég skammast mín ekkert fyrir að vera ekki búinn að taka afstöðu til þess enn.

Svo var annað, sem ég benti á, og það var það, að ég er ekki víss um enn þá, hvort við höfum efni á því að dreifa eins mikið störfunum og gert er með frv. Ég nefni sem dæmi fiturannsóknir. Það þarf ekki neitt stórt eða mikið „apparat“ til þess, það þarf aðeins að kosta nokkra tugi þúsunda króna. En hver rannsókn stendur yfir í sex eða átta tíma. Sami maðurinn getur haft undir í einu 10–20 rannsóknir, ef hann lætur þær inn svona á stundarfjórðungsfresti. Hann getur alltaf haft fjórar á hverjum klukkutíma. Hann getur annað því, því að þær þurfa bara að standa sinn tíma í sínum skáp. Ég er ekki viss um, hvort við eigum að láta gera þetta bæði uppi í Fiskifélagi, suður í atvinnudeild, uppi í háskóla, uppi á Keldum og suður hjá Dungal o.s.frv. Það er ekki nokkur þörf á því. Rannsóknirnar eru ekki meiri en það, að einn maður geti komizt yfir þær allar saman í einni og sömu stofnuninni.

Ég sagðist ekki vera búinn að átta mig á því, hvort við hefðum efni á því að vera að dreifa kröftunum, en þessi stofnun dreifir kröftunum alveg tvímælalaust frá því, sem nú er, — hvort ekki væri réttara að sameina þá, hvort ekki ætti, ef þessi stofnun ætti að koma upp, að leggja niður eitthvað af hinum, sem núna eru og gera það sama. Ég var ekki heldur búinn að átta mig á þessu. Ég held sjálfur, að við höfum ekki efni á því að gera stofnkostnaðinn margfaldan við það, sem hann þarf að vera. Ég held það sjálfur og vil fara þær leiðir, sem verða til þess að gera hann sem lægstan og ná þó sama árangri.

Þegar ég svo var með því að fresta frv., þá var það af því, að nákvæmlega sama starfi nær stofnunin á þessu ári, hvort sem því er frestað eða ekki. Frv. breytir ekki einu atriði í starfi stofnunarinnar frá því, sem nú er. Þess vegna gerði ekkert til, þó að það væri beðið, þangað til búið væri að átta sig til fullnustu á þessum atriðum, sem ég tel að ekki sé búið að enn. Það skiptir engu máli fyrir gagnið, sem þjóðin hefði af stofnuninni, engu máli fyrir starfsemi stofnunarinnar, ekki nokkru, hvort það er samþykkt núna eða að ári, en það gæti orðið til þess, ef því væri frestað, að það yrði hægara að ná að ári heildarniðurstöðum, sem yrðu ódýrastar og hagkvæmastar fyrir alla þjóðina, heldur en ef það verður stofnað.

Ef þessi stofnun fer af stað eftir lögum núna og fer að fara inn á starfssvið annarra stofnana og af því kynni að stafa einhver óánægja milli þeirra innbyrðis, þá er ekki þægilegra að koma því aftur á rétta kjölinn en ef ekki væri búið að festa það með lögum áður. Það er alveg víst. Ef þessi stofnun fer að fara inn á svið rannsóknaráðsins, sem hún verður að gera, ef hún verður samþykkt að lögum, ef rannsóknaráðið sættir sig ekki við það og ef það svo á næsta þingi verða sumir menn, sem telja rétt, að rannsóknaráðið hafi þetta, aðrir, að Iðnaðarmálastofnunin hafi það, og ef það er komin óeining og hiti í það, þá er ekki hægara að rétta það af aftur eins og bezt verður heldur en ef hún er látin standa áfram við sama borð og nú er, við reglugerðina, sem hún nú starfar undir, og allt gengur ljúft og greitt þetta árið, en ekki kastast neins staðar í kekki. Þetta tel ég enn eina ástæðu til þess að fara gætilega í þær breytingar, sem í frumvarpinu felast.