20.01.1956
Efri deild: 44. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 304 í C-deild Alþingistíðinda. (1713)
116. mál, Iðnaðarmálastofnun Íslands
Viðskmrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Það er nú aðeins örlítið, sem ég vil segja, og ekki bein ástæða til. En það er leiðinlegt að heyra það, hvað tveir hv. síðustu ræðumenn misskilja frv. alveg gersamlega. Þeir eru alltaf að tala um, að Iðnaðarmálastofnunin ætli að fara að hafa með höndum rannsóknir, ætli að fara að setja sig yfir atvinnudeild háskólans og rannsóknaráð ríkisins. Það er þó bót í máli, að hv. 1. þm. N-M. (PZ) játar, að hann viti í rauninni ekki, hvort rétt sé að samþykkja frv. eða að fresta því. Ég álít, að það hefði þá verið eðlilegri afstaða hjá honum að taka ekki þátt í afgreiðslu málsins, því að hann veit ekki nema hann sé að spilla fyrir málinu með því að gerast flm. að frávísunartill. Þetta er heiðarleg játning hjá þessum hv. þm. og ber vott um samvizkusemi. og það ætti þá ekki að verða þessu máli til trafala, þótt hann hafi af nokkrum misskilningi rætt þetta mál.
Hv. frsm. minni hl. (HermJ) talaði um það hér áðan, að Iðnaðarmálastofnunin yrði sett yfir rannsóknaráðið og atvinnudeild háskólans, ef þetta frv. yrði að lögum.
Þetta er alger misskilningur. Ég vil taka það fram, að ég hef ekki í þessum umræðum reynt að gera lítið úr atvinnudeild háskólans eða rannsóknaráðinu. Ég hef ekkert um það sagt. En hér í þessu frv. er gert ráð fyrir samstarfi við þessa aðila. Það er gert ráð fyrir samstarfi, en það er ekki gert ráð fyrir því, að Iðnaðarmálastofnunin verði sett yfir atvinnudeildina eða rannsóknaráðið. Það er ekki heldur gert ráð fyrir því, að Iðnaðarmálastofnunin hafi rannsóknir með höndum, nema þá ef sérstaklega stæði á í atriðum eða málum, sem rannsóknaráðið og atvinnudeildin vilja ekki sinna. Það er sagt hér í 2. gr.:
„Stofnunin skal fylgjast með eða hafa forgöngu um rannsóknir á skilyrðum til fullkominnar hagnýtingar á þeim hráefnum, sem landið á yfir að ráða, og skila árlegri álitsgerð til ríkisstjórnarinnar um þessi mál.“
Ég sé ekki, að það geti leitt til annars en góðs, að Iðnaðarmálastofnunin fylgist með í þessum efnum, hafi samráð og samvinnu við þá sérfræðinga, sem eru í rannsóknaráði ríkisins og veita atvinnudeild háskólans forstöðu. Við skulum gera ráð fyrir, að þar séu ágætlega menntaðir menn og vel færir í sínu starfi, og þá er enginn vafi á því, að samvinna og samstarf við Iðnaðarmálastofnunina getur leitt til góðs, getur leitt til þess, að rannsakað verði það, sem áður hefur verið látið ógert að rannsaka.
Það var sagt hér áðan, að við hefðum ekki efni á því að vera að dreifa kröftunum. En ég spyr: Höfum við efni á því að láta það ógert að rannsaka þau auðæfi, sem landið á, og gera okkur grein fyrir því, hvernig þessi auðæfi verða bezt hagnýtt? Iðnaðarmálastofnunin er ekki sett á stofn til þess að verða eyðslustofnun, heldur til þess að eiga þátt í aukinni starfsemi, bættum vinnubrögðum og hagnýtingu á því, sem verið er að glíma við og hægt er að taka í notkun. Ég held, að við höfum ekki efni á því að láta það ógert, sem Iðnaðarmálastofnuninni er ætlað að vinna, og það er ákaflega margt, sem henni er ætlað að vinna, sem er algerlega óskylt því, sem rannsóknaráðið og atvinnudeildin fjalla um.
Það er líka sagt í 11. gr. alveg skýrum stöfum, svo að ekki verður um villzt, og er ég þess vegna alveg undrandi á þeim misskilningi, sem fram kemur:
„Iðnaðarmálastofnuninni er rétt að hafa samstarf við atvinnudeild háskólans og aðrar opinberar rannsóknarstofnanir um þær tilraunir og rannsóknir, sem hún telur nauðsynlegt að framkvæma, og skulu rannsóknarstofnanir þessar veita henni þá aðstoð, sem þeim er unnt, enda komi fullt gjald fyrir.“
Það er, eins og ég sagði áðan, í þeim tilfellum, sem rannsóknaráð ríkisins og atvinnudeildin vilja ekki hafa forgöngu um að rannsaka. Og við skulum segja: Atvinnudeildin er ágæt stofnun, og þeir menn, sem stjórna henni, eru ágætir menn. — Við skulum líka segja: Rannsóknaráð ríkisins er ágæt stofnun og þeir, sem í því eru, alveg prýðilegir menn. — En við skulum viðurkenna, að það er svo margt ógert á þessum sviðum hér í landi og svo mikil þörf á því, að við notum möguleikana betur en við höfum gert áður, að það er nauðsynlegt, að fleiri menn komi til og að kraftarnir verði samstilltir, og það er það, sem þetta frv. fer fram á. Verði það að lögum, styrkir það þessa ungu stofnun, Iðnaðarmálastofnunina, og skapar aukna möguleika á því, að hér verði tekin upp hagnýtari vinnubrögð á mörgum sviðum, að ýtt verði undir það, að þeir möguleikar, sem þjóðin á ónotaða í auðlindum landsins, verði notaðir sem fyrst.
Ég er sannfærður um, að hv. alþm. hafa gert sér fulla grein fyrir þessu, og svo góðan hlut vildi ég óska hv. 1. þm. N-M. til handa, að hann dragi ekki lengur að reyna að gera sér grein fyrir því, hvort er betra að fá þessi lög afgreidd eða láta þau verða óafgreidd, og ég sé ekki annað en að hann verði til þess að vera í samræmi við sjálfan sig að sitja hjá í atkvgr. um dagskrártill. og um frv.