03.02.1956
Neðri deild: 62. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 306 í C-deild Alþingistíðinda. (1721)
116. mál, Iðnaðarmálastofnun Íslands
Viðskmrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir um Iðnaðarmálastofnun Íslands, er komið frá Ed. Samþykkti Ed. frv. næstum óbreytt eins og það var lagt fyrir hana á þessu þingi. Vænti ég, að svo megi einnig verða í þessari hv. deild. Frv. þetta er dálítið öðruvísi en það frv., sem lagt var fram á síðasta þingi, ýtarlegra og betur frá málínu gengið en þá var.
Hv. þm. er nokkuð ljóst, hvernig þessu máli er farið. Það hefur verið rætt um það í Ed., það hefur verið skrifað um það í blöðunum, og ýtarleg grg. fylgir frv. Það er þess vegna ástæðulítið að fara að halda hér við þessa umr. langa framsöguræðu um málið, af því að það er nokkuð rætt, en ég vil benda á, að Iðnaðarmálastofnunin starfar nú án laga, en hún hefur nú miklu verkefni að gegna, og það er tæplega sæmandi annað en að skapa henni lög til þess að fara eftir.
Úr þessu var nokkuð bætt á s.l. sumri með því að setja stofnuninni starfsreglur. En þær starfsreglur styðjast ekki við lög og eru samdar af því ráðuneyti, sem stofnunin heyrir undir. Ég geri ráð fyrir, að hv. alþm. þætti eðlilegra, að stofnunin starfaði eftir reglugerð, sem sniðin væri eftir lögum um stofnunina, en ekki eftir starfsreglum, sem ráðherra: einn hefur sámið án nokkurs stuðnings við lög. Hlutverk Iðnaðarmálastofnunarinnar er margþætt, og það er enginn vafi á því, að það er þörf á að taka þau verkefni til gagngerðrar athugunar, sem Iðnaðarmálastofnuninni eru ætluð sérstaklega.
Samkvæmt 1. gr. frv. er markmiði stofnunarinnar lýst í 12 liðum, og má segja, að verkefnin séu enn fjölþættari en hér er upp talið. Ég sé ekki ástæðu til að fara að lesa þessi atriði upp. Hv. þm. hafa það fyrir sér. Það er gert ráð fyrir, eins og tekið er fram í frv., að stofnunin hafi nána samvinnu og samstarf við rannsóknaráð ríkisins, við iðnaðardeild atvinnudeildar háskólans og aðra þá aðila, sem um gæti verið að ræða í sambandi við samstarf og samvinnu.
Iðnaðarmálastofnunin er ekki sett yfir aðra þá aðila, sem starfa í landinu að sumu leyti að skyldum verkefnum; að sumu leyti, segi ég, því að að mörgu leyti og að flestu leyti starfar Iðnáðarmálastofnunin að verkefnum, sem öðrum aðilum hefur ekki verið falið að vinna að hér í landinu. Ég skal ekki fara nánar út í þetta atriði að svo stöddu, ekki við þessa umr. Málið fer vitanlega í nefnd til athugunar, og það er eðlilegt, að þáð séu ýtarlegri umr. við 2. umr. en þá fyrstu.
Ég vil taka fram, að með þessu frv. er gert ráð fyrir, að skipuð .verði 7 manna stjórn, en eins og núna er, þá er skipuð fimm manna nefnd til þess að stjórna stofnuninni. Stjórnin er skipuð eingöngu eftir till.. frá iðnmrh. Það hefur verið valinn maður frá Félagi ísl. iðnrekenda, frá Sambandi ísi. samvinnufélaga, frá Verzlunarráði Íslands, frá iðnsveinaráði Alþýðusambandsins og frá Landssambandi iðnaðármanna. Gert er ráð fyrir að bæta við einum fulltrúa frá Vinnuveitendasambandi Íslands. Ég hygg, að með þessari 7 manna stjórn sé tekið tillit til þeirra starfsgreina sérstaklega, sem stofnunin á að vinna fyrir. Það mætti segja, að það væru fleiri aðilar, sem þarna ættu að komast að, en ég hygg, að það sé nægjanlegt til að byrja með að hafa hér 7 manna stjórn, sem sérstaklega ér tilnefnd af fyrrnefndum aðilum.
Ég sé ekki ástæðu til, eins og ég sagði áðan, að hafa þessa ræðu lengri að svo komnu máli. Ég geri ráð fyrir því, að í þessari hv: d. eins og þeirri efri séu skoðanir manna kannske nokkuð skiptar um það, hvort frv. á að verða að lögum á þessu þingi eða síðar.. Ég geri ráð fyrir því, að allir hv. þm. séu sammála um, að Iðnaðarmálastofnunin sé góð stofnun, þörf stofnun, nauðsynleg stofnun, sem beri að efla og það sé þess vegna sjálfsagt að setja henni lög. En ég er ekki í nokkrum vafa um, að það fer bezt á því að draga ekki að setja lög um þetta, og ég tel, að með svo merka stofnun sem Iðnaðarmálastofnunina sé ekki sæmandi eða verjandi að láta hana starfa án laga og án reglugerðar, sem styðst við lög.
Það er því ekki til neins að fresta því til morguns, sem hægt er að gera í dag, þegar um það er að ræða að vinna gott verk.