03.02.1956
Neðri deild: 62. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 319 í C-deild Alþingistíðinda. (1723)
116. mál, Iðnaðarmálastofnun Íslands
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Ég er dálítið hissa á því, að þetta mál, sem ég álít vera þýðingarmikið mál, mál, sem eigi skilið að vera afgreitt að þm. viðstöddum, en ekki að þeim fjarverandi, skuli vera tekið til umræðu nú á síðdegisfundi, sem ég hygg að flestir þm. viti ekki um á þessu augnabliki að sé haldinn, því að svo stóð á, að svo sem að undanförnu voru allir ráðherrar fjarverandi í dag, að undanteknum einum, hæstv. utanrrh., sem hins vegar er nú fjarverandi, og flestir þm. voru fjarverandi á hinum rétta fundartíma, þar af áreiðanlega meiri hluti af liði hæstv. ríkisstj. En svo er með stuttum fyrirrvara boðað til þess, að fundi skuli fram haldið frá kl. 5 og fram til kvöldverðar, kannske verður kvöldfundur líka. Þetta stingur alveg í stúf við vinnubrögð þingsins að undanförnu, því að að undanförnu hefur það verið svo, að suma daga hefur verið fundarfall núna fyrir nokkru vegna verkefnaskorts og að nefndir höfðu ekki lokið störfum og málin lágu þar. En nú er sá fítonskraftur hlaupinn í stofnunina, að síðdegisfundir eru haldnir að nýafstöðnum fundum langt fram yfir miðnætti í sambandi við afgreiðslu fjárlaganna. Eitthvað hlýtur að reka á eftir, og skil ég þó ekki, hvað það mætti vera, þar sem allar líkur eru til, að Alþ. eigi að halda áfram störfum fram í marzmánaðarlok, fram undir páska.
En látum þetta nú vera. Það koma sjálfsagt skýringar á því, hvers vegna hæstv. ráðh. leggur svona mikið kapp á, að málið sé annaðhvort afgreitt mjög fljótt eða rætt án áheyrenda, og gæti það náttúrlega haft sínar skýringar. Þetta hefði ekki verið svo undarlegt, ef þetta mál hefði verið algerlega ágreiningslaust mál og því talið alveg sjálfsagt, að það færi átakalaust gegnum þingið. En það er fjarri því, að svo sé. Það er búið að gera hvert tilhlaupið á fætur öðru til þess að afgreiða þetta mál, ekki aðeins núna á þessu þingi, heldur í fyrra einnig og ég held í hittiðfyrra líka, og nú þegar það kemur enn, eftir að búnar eru að starfa að undirbúningi þess tvær mþn., þá er ágreiningur í þeirri fyrri deild, sem málið fær til meðferðar, þannig, að ágreiningurinn er um fleiri en eitt atriði.
Í fyrsta lagi virðist vera mjög mikill ágreiningur um það í n. í hv. Ed., hvernig stjórn fyrirtækisins skuli skipuð, og það er sá skoðanamunur, sem veldur því, að n. klofnar. Annar meiningarmunur kemur svo þar fram, og hann er sá, að tveir nm. í hv. Ed. vilja auk þess alls ekki, að málið sé afgreitt á þessu þingi.
Ágreiningurinn um málið núna, eftir að búið er að kokka það tvisvar í milliþn., er sem sé tvenns konar. um það, hvort það sé rétt að afgreiða löggjöf á þessu þingi um málið, og hins vegar um, hvernig stjórn fyrirtækisins skuli skipuð.
Þetta allt kemur greinilega fram í nefndarálitunum frá Ed. Í nál. meiri hl. segir í upphafi: „Frv. það, sem hér um ræðir, er flutt sem stjfrv. og var undirbúið og samið af mþn., er ráðh. skipaði til þess á s.l. ári. Er meginatriði frv. að lögfesta þær reglur, sem stofnunin starfar nú eftir og ráðh. hefur sett. Hafði mþn. orðið sammála um ákvæði frv., að undanskildum ákvæðum 5. gr. um stjórn stofnunarinnar, þar sem einn nm., Gísli Jónsson, gerði fyrirvara um það atriði.“
Einmitt þetta ágreiningsatriði minni hl. í mþn. hefur svo aftur fengið meiri hl. í n. í hv. Ed. með sér, því að það er einmitt ágreiningsatriði hv. þm. Barð., sem felst í brtt. meiri hl. nefndarinnar.
Hæstv. ráðh. virðist hafa þá skoðun, að það sé bráðnauðsynlegt, að þessi stofnun starfi samkv. löggjöf. Nú virðist það þó ekki breyta starfseminni í stofnuninni mikið, þar sem hann upplýsir, að eiginlega sé frv. staðfesting á þeim reglum, sem stofnunin starfi nú eftir. Og ef vitnað er til annarra landa, sem komið hafa upp sams konar stofnunum og þessari, þá er það upplýst, að í sumum löndum og það meira að segja á sumum Norðurlöndum, þar sem þessar stofnanir eru komnar í fast form og búnar að starfa árum saman með miklum ríkisframlögum, er ekki til nein löggjöf um þessar stofnanir. Þær starfa ekki samkvæmt lagasetningu, en fá þó stórar fjárveitingar frá þjóðþingi viðkomandi þjóða eftir sem áður. Vitanlega væri hægt að smíða þessari stofnun okkar alveg sama form, og það virðist hafa verið gert í raun og veru með þeirri ráðherrareglugerð, sem stofnunin starfar nú eftir.
Ég fæ því ekki séð, að nokkur rök hafi verið færð fram fyrir því, að það sé nauðsynlegt að samþ. þetta frv. nú. Reglugerð ráðherrans liggur fyrir, stofnunin hefur þegar vikum og mánuðum saman starfað eftir þeirri reglugerð, og reglugerðin er samhljóða frv. í öllum aðalatriðum.
Mér finnst, að það ætti meira að segja heldur að letja hæstv. ráðh. þess að leggja áherzlu nú á afgreiðslu frv., þar sem nú eru komnar fram till. um, að stjórn fyrirtækisins verði skipuð á allt annan veg en hæstv. ráðh. hefur gert ráð fyrir í sínum reglum, og geri ég þó ráð fyrir, að þær séu frekar að hans vilja en einmitt þetta nýja stjórnarform, sem einn af 5 milliþn. mönnum lagði til að yrði tekið upp.
Ég skal þá víkja að ágreiningnum um það, hvort rétt sé að afgreiða frv. nú.
Það er óneitanlega nokkuð gild ástæða, sem færð er fram í bréfi frá atvinnumálanefnd ríkisins um það, að málinu verði frestað, þar sem bent er á, að sú opinbera nefnd, hin nýja Rauðka, eigi að gera till. um nýjar atvinnugreinar og hagnýtingu náttúruauðæfa og að þessi n. hafi orðið sammála um það á fundi sínum þann 10. jan. s.l. að beina þeim eindregnu tilmælum til iðnn. Ed. Alþ., að afgreiðslu laga um Iðnaðarmálastofnun Íslands verði frestað, þangað til n. hafi skilað áliti. En n. er einmitt ætlað að gera till. um samræmingu og starfsemi þeirra rannsóknarstofnana, sem nú vinna að rannsóknum á náttúruauði landsins, og leita úrræða til að auka og endurbæta afköst í ýmsum atvinnugreinum. Þetta er einmitt nákvæmlega það sama sem Iðnaðarmálastofnunin á að fást við. Þar af leiðandi segir atvinnumálanefndin, að það sé hætt við, að það valdi tvíverknaði, ef samþykkt séu fyrst lög um Iðnaðarmálastofnun Íslands, en áfram haldi svo skipulagsnefnd atvinnumála að gera sínar tillögur um, hvernig eigi að haga rannsóknarstofnunum, sem starfa nú hlið við hlið í landinu.
Þeir menn, sem færðu fram þessar ástæður og fjölluðu um þær í n. í Ed., fallast á þessi rök og leggja til, að málinu sé nú vísað frá með rökst. dagskrá. Það tel ég a.m.k. mjög svo eðlilegt, meðan ágreiningur er um það, hvernig stofnunin skuli byggð upp. Ef fengist alger lausn á því og samkomulag um, hvernig stjórn fyrirtækisins skyldi skipuð, þá gæti verið að einhverju leyti fallin í burt ástæðan til þess að fresta afgreiðslu málsins.
Ég mun síðar koma að því, að það er út fyrir veggi Alþ. ágreiningur um það, hvernig stjórn fyrirtækisins skuli vera skipuð. Þrjú fylgiskjöl eru birt með þessu frv. Það er í fyrsta lagi frv. til l. um Iðnaðarmálastofnun Íslands, eins og það var lagt fyrir þingið í fyrra, og í því frv. er stofnuninni ætlað að ýmsu leyti allt annað form en í frv., sem lagt er fyrir þingið í ár. Þar stendur í 6. tölulið, að stofnunin skuli vinna að eflingu framfara í íslenzkum iðnaði, m.a. með því, sem segir í 6. liðnum, „að hafa samband og samstarf við hliðstæðar erlendar tæknistofnanir, og stofnunin skal vera ríkisstj. til ráðuneytis í tæknilegum vandamálum, er iðnaðinn varða, öðrum en fiskiðnaði“. Þarna í aths. við þetta frv. er svo skýrt frá því, að ríkisstj. hafi bætt þessu aftan við liðinn: „öðrum en fiskiðnaði“. Og hvers vegna vildi hæstv. ríkisstj. ekki, að Iðnaðarmálastofnun Íslands fengist neitt við að rannsaka vandamál íslenzks fiskiðnaðar? Það er af því, að það eru fleiri en ein stofnun, sem eru einmitt að rannsaka íslenzkan fiskiðnað. Það er komin stór og mannfrek og dýr stofnun hjá Fiskifélagi Íslands, sem vinnur að þessu að því er snertir fisk veiddan úr söltu vatni. Og svo er uppi á háskólalóðinni önnur rannsóknarstofa, sem á að rannsaka fisk, sem veiddur er í ósöltu vatni. Og hvað þýðir þetta? Þetta upplýsir það fyrir okkur, að það er ástæða til, að atvinnumálanefndin, sem á að skipuleggja slíka rannsóknarstarfsemi hjá þjóðinni, fjalli um þetta allt í einu, til þess að svona árekstrar verði ekki, að það sé verið að gugta við rannsókn á sama verkefninu á mörgum stöðum. Slíkt eru auðvitað engin vinnubrögð, sízt af öllu í vísindastofnunum, og í annan stað er þetta svo fjárfrekt, að okkar fámenna þjóð rís ekki undir því.
Þetta eitt, þessi samanburður á frv. frá í fyrra og svo aftur núna, sýnir okkur það í einni sjónhendingu, að það er fyllsta ástæða til að fresta afgreiðslu þessara mála, þangað til atvinnumálanefnd ríkisins hefur lokið sínum störfum og lagt fram sínar samfelldu tillögur um, hvernig eigi að skipa þessum málum öllum saman.
Eins og hv. 2. þm. Reykv. (EOI) drap hér á áðan, sér maður það við lestur frv. frá í fyrra, að þá hefur sanngirni manna verið þó á því stigi að ætla hinu vinnandi fólki, þ.e.a.s. ófaglærðum verkamönnum, fólki, sem vinnur við iðju og iðnað, og fólki með fagréttindum, þ.e.a.s. iðnsveinum í íslenzkum iðnaði, að eiga að sjálfsögðu minni hl. í stjórn slíkrar stofnunar, 3 menn af 7, og atvinnurekendurnir þó ekki nema 4 þá. En nú er búið að breyta þessu til hins verra, minnka rétt hinna vinnandi manna, sem í iðn- og iðjufyrirtækjum vinna hér á landi, þannig að þeir eigi ekki nema 2 fulltrúa í 7 manna stjórn; hitt liðið skal vera frá atvinnurekendum. Ef til vill er það þetta, þessi endurbót á frv., sem hæstv. ráðh. leggur áherzlu á að fáist lögfest, þ.e.a.s., að fyrirtækið verði mótað enn frekar en ætlunin var fyrir ári sem tæki atvinnurekenda, þar sem sjónarmiða hins vinnandi fólks gæti sem allra minnst. Það þarf engan að furða á því, þó að þetta eitt nægði til þess, að fulltrúi Alþýðusambands Íslands óskaði eftir því, að málið yrði athugað frekar og leitað ákveðið eftir því við hæstv. ráðh. og hæstv. ríkisstj., hvort ekki fengist a.m.k. fært til sama horfs þetta ákvæði um skipun stjórnarinnar, að í 7 manna stjórn ætti a.m.k. Alþýðusambandið 2 fulltrúa og iðnsveinaráð Alþýðusambands Íslands 1 fulltrúa, þannig að þar sætu fulltrúar fyrir almennt verkafólk, fyrir fólkið í iðju og iðnaði og fulltrúi fyrir iðnsveinana, og þá atvinnurekendur að öðru leyti, fulltrúar þeirra samtaka, t.d. Félags ísl. iðnrekenda, sem er atvinnurekendasamtök, Landssambands iðnaðarmanna, einnig iðnaðarmannasamtök atvinnurekenda, Sambands ísl. samvinnufélaga og Vinnuveitendasambands Íslands. Hugsanlegt er, að þá væri nær því, að verkalýðssamtökin gætu fellt sig við að eiga hlut að afgreiðslu frv.
Þó vil ég benda á það, að samkv. öðru fskj. hér með þessu frv., sem er samþykktir fyrir Norsk Produktivitetsinstitut, þ.e.a.s. hina norsku iðnaðarmálastofnun, sjáum við, að þeirri stofnun, sem ég held að sé ekki skipað með lögum, er stjórnað af 24 manna ráði. Hún hefur enga sérstaka stjórn í þeim skilningi, en hefur 24 manna ráð. Alþýðusambandinu norska, Arbejdernes faglige Landsorganisation, eru ætlaðir 7 fulltrúar þar. Verkafólki er ætlaður líka fulltrúi þar, og félögum, sem svara til Iðju hér, einnig ætlaðir 2 fulltrúar, þannig að i raun og veru er hinu vinnandi fólki þarna ætlaður fullur helmingur ráðsins. Og þó er betur búið um aðstöðu þessa fólks í ákvæðum 8. gr. samþykktanna fyrir hina norsku iðnaðarmálastofnun. Þar er ákvæði um 9 manna framkvæmdanefnd úr ráðinu, og hún skal skipuð form. ráðsins og 9 meðlimum af þar til greindum félagssamtökum. Af þeim fulltrúum á alþýðusambandið norska að eiga 3 fulltrúa, iðjuverkafólkið, við iðjustarfsemi, einn fulltrúa, iðnsveinar, lærðir fagmenn, einn og menntastofnanirnar einn, og atvinnurekendurnir verða þar í algerum minni hluta, sem og rétt er, því að þessar produktivitetsstofnanir, sem þeir vilja kalla á íslenzku framleiðnistofnanir, eiga fyrst og fremst að vinna að því, að verkafólkið, sem vinnur störfin, sé menntað þannig, að það geti aukið afköst sín og framleitt betri vörur. Og það byggist í raun og veru allt á því, að verkafólkið leggi sig fram í þessu starfi og auki framleiðslumagn þjóðarinnar. En svo á að ganga fram hjá rétti þess, þegar stofnuninni er valið stjórnarform, og atvinnurekendasjónarmiðin látin vera yfirgnæfandi og þeirra fulltrúar hafðir í meiri hl. í stjórn fyrirtækisins. Það er eins og Jónas Hallgrímsson sagði: „Öllu er snúið öfugt þó, aftur og fram í hundamó.“
Það er ómögulegt að segja annað en að það er snúið öfugt, þegar atvinnurekendunum, eigendum fjármagnsins og stjórnendum fyrirtækjanna, er gert hærra undir höfði en öllu hinu starfandi fólki í fyrirtækjunum.
Á þeim tíma, sem Iðnaðarmálastofnunin íslenzka hefur starfað — hún hefur verið að mótast núna að undanförnu — er ekki heldur hægt að segja annað en að við höfum orðið þess varir, að það hefur verið stefnt fast og ákveðið að því, að þessi stofnun yrði undir flokkspólitísku merki. Ég er alveg sannfærður um, að það er ekki gæfulegt. Menn geta verið flokkspólitískt kappsfullir, en ráðherrar verða þó að gæta nokkurs hófs í því, og þó að þeir þreifi fyrir sér um að móta svona stofnun þannig, að hún verði ævarandi helzt undir merki einhvers pólitísks flokks, þá er áreiðanlegt, að það getur leitt til þess, að stofnunin missi alveg tilgang sinn, þ.e.a.s. verði ekki að því þjóðnytjagagni, sem henni er ætlað. Og ef við fáum hér Iðnaðarmálastofnun, sem eingöngu á að vera tæki atvinnurekendanna, þeirra, sem fjármagnið eiga, og réttur hins vinnandi manns verði þar fyrir borð borinn í reyndinni, þá er ég alveg viss um, að þetta verður allt saman misheppnað og að þessi Iðnaðarmálastofnun nær ekki þeim tilgangi sínum og mun ekki fá réttlætingu sinnar tilveru.
Ég held, að það séu ákvæði um það í frv., bæði eins og það var í fyrra og núna, að stofnunin eigi að stuðla að því, að hérlendir menn, sem starfa í þágu íslenzks iðnaðar, komist til framhaldsnáms erlendis í vísindalegum, verkfræðilegum og verklegum greinum og að erlendir kunnáttumenn á þessum sviðum heimsæki Ísland og að Iðnaðarmálastofnunin skuli ávallt nýta þekkingu og störf innlendra sérfræðinga eftir því, sem kostur er á, standa fyrir námskeiðum og fyrirlestrum, kvikmyndasýningum um vinnuvísindi og tækni. Til þess að fullnægja þessum tilgangi sinum mun Iðnaðarmálastofnunin þegar hafa gert nokkuð að því að kynna sér framfarir í iðnaði, tækni og vísindum og líka fengið hingað sérfræðinga til landsins. Ég held, að það hafi verið a.m.k. tvær, ef ekki þrjár nefndir sendar úr landi á s.l. sumri, og fyrst og fremst var valið í þær úr röðum atvinnurekenda, nema eina. Í hana voru valdir menn, að því er sagt var, úr röðum verkamanna. Aldrei barst þó Alþýðusambandi Íslands nein vitneskja um tilnefningu manna í þessa n., og um val þessara manna var farið undarlegar krókaleiðir. Iðnaðarmálastofnunin sneri sér þá til miðstjórna pólitísku flokkanna í landinu til þess að tilnefnda fulltrúa í verkalýðsmálanefnd til Ameríku. Um val á þessum mönnum var fjallað af stjórnum þriggja pólitískra flokka. Ég held, að tveir af pólitísku flokkunum hafi ekki notið þess trúnaðar að fá að velja verkamenn úr sínum liðskosti til þessarar farar. Þrír af pólitísku flokkunum voru teknir út úr af þessari vísindanna stofnun og þeir beðnir að velja verkamenn í sendinefnd til Ameríku. Það var ekki rætt um þetta við stjórn í einu einasta verkalýðsfélagi, hvað þeim sýndist um fulltrúaval, og ekki heldur Alþýðusamband Íslands. Það var af algerri tilviljun, að ég fékk vitneskju um þetta utan af landi, eftir að pólitísku flokkarnir voru búnir að ákveða sína fulltrúa.
Það komu hingað fulltrúar frá iðnaðarmálastofnunum Norðurlanda núna í haust, og þeir voru auðvitað fyrst og fremst undir leiðsögn manna frá Iðnaðarmálastofnun Íslands. En einhvern veginn atvikaðist það svo, að þeir óskuðu eftir því, þessir fulltrúar, að fá að ræða við mig um þessi mál og komu á skrifstofu Alþýðusambandsins þeirra erinda. Þeir ræddu um það, hvort Alþýðusambandið væri því hlynnt eða mótsnúið, að samstarf væri milli verkalýðssamtakanna og slíkra stofnana sem Iðnaðarmálastofnunarinnar. Ég lét eindregið í ljós, að ég hefði mikinn áhuga á því, að náið samstarf gæti verið milli slíkrar stofnunar og fólksins, sem starfaði í iðju og iðnaði og væri allt saman meðlimir í félögum innan Alþýðusambands Íslands, og teldi nauðsynlegt, að þetta fólk í iðju og iðnaði fengi að starfa í sem allra mestu og nánustu samstarfi við stjórnendur stofnunarinnar. En þá lét ég þess getið, að því miður hefði þessi stofnun farið svo af stað, að alþýðusamtökin litu á hana sem fyrirtæki eins pólitísks flokks í landinu, og gæti ég þar nefnt sem seinasta dæmi um það, að þessi stofnun hefði sent verkamannasendinefnd til Ameríku og gengið fram hjá Alþýðusambandi Íslands um val þeirra fulltrúa og látið velja mennina af miðstjórnum pólitísku flokkanna, sumra, en ekki allra. Þessir menn munu hafa verið af ýmsum pólitískum flokkum, þessir fulltrúar frá tæknistofnunum Norðurlanda, en þeir tóku allir til máls um þetta atriði og létu í ljós undrun sína og furðu á því, að byrjunin skyldi hafa verið gerð svona, og sögðust mundu leggja það til í sinni skýrslu og sínum tillögum, sem þeir gengju frá, þegar þeir kæmu heim, og mundu senda hingað til lands, að þess yrði gætt í uppbyggingu stofnunarinnar framvegis, að verkalýðssamtökin yrðu þar að öllu leyti jafnrétthár aðili og atvinnurekendur og samtök þeirra hér á landi, því að þannig væru allar þessar stofnanir uppbyggðar um víða veröld.
Þegar mennirnir voru komnir heim, sendu þeir sínar tillögur, þeir sendu mér samrit af þessum tillögum, og þær liggja nú hjá Alþýðusambandi Íslands. Mér er kunnugt um það af sjálfsýn, að þar leggja þeir ríka áherzlu á, að skipulag stofnunarinnar sé þannig, að fulltryggt sé, að jafnrétti sé tryggt milli samtaka atvinnurekenda og verkalýðsins, að réttur hvorra tveggja sé jafnvel tryggður og það sé þá eingöngu oddaaðstaða ríkisvaldsins, sem þar skeri úr.
Með frv., eins og það liggur hér fyrir, er ekki tekið tillit til þessara tillagna sérfræðinganna, sem komu frá Norðurlöndum. Það er enn þá staðið á því, að Alþýðusamband Íslands skuli eiga einn fulltrúa í stjórn fyrirtækisins fyrir hið ófaglærða fólk, sem starfar í íslenzku atvinnulífi að iðju og iðnaði, og að iðnsveinaráðið skuli eiga einn fyrir hina faglærðu iðnaðarmenn í 7 manna stjórn. Þetta er jafnréttið. Hinir fulltrúarnir eiga að vera frá atvinnurekendunum.
Ég vildi mjög leita eftir því í öllu bróðerni við hæstv. iðnmrh., að hann yrði til viðtals um að breyta þessum hlutföllum í stjórn fyrirtækisins á þá lund, sem norrænu sérfræðingarnir, sem hafa borið fram sínar tillögur, lögðu til.
Ef ráðh. vildi fallast á að leysa það mál af fyllstu sanngirni og á þann veg, sem verður að leysa það, til þess að friður verði um þessa stofnun og hún nái tilgangi sínum og sé byggð upp eins og annars staðar í löndunum í kringum okkur, þá er ég ekki viss um, að ég telji nauðsynlegt að fresta afgreiðslu málsins. En í þessu formi, eins og það er núna, með þeim skarða rétti, sem verkamanninum er ætlaður í sambandi við stofnunina, og þeim sterka rétti, sem atvinnurekendum og fjármagni er markaður í frv., þá er ég miklu frekar á þessari stundu á því, að það eigi að víkja málinu frá með rökst. dagskrá og láta hina opinberu nefnd, atvinnumálanefndina, kanna það betur og sýna, hvað hún leggur til um heildarskipulag þessara mála allra saman.
Ef við fylgjum annarra þjóða dæmi um það að koma á fót hjá okkur svona stofnun, sem ég get vel fallizt á að sé okkur nauðsyn, verðum við, sem erum ekki eins tækniþróuð og tæknimenntuð þjóð og margar aðrar, að standa í sem allra nánustu samstarfi við aðrar þjóðir, sem lengra eru á veg komnar í þessum efnum, og njóta þeirrar aðstoðar, sem kostur er á, til þess að sérmennta okkar menn, okkar fagfólk og okkar verkafólk. Og það er sýnilegt, að það er ekkert smáfé, sem lagt er fram af erlendum aðilum til þessara stofnana. Norðmennirnir geta þess hér, að til þess að stofnunin kæmist á fót hjá þeim, hafi stórþingið norska veitt 15.6 millj. kr., þar af 5 millj. kr. samkvæmt fjárlagafjárveitingu, en 10.6 millj. kr. hafi komið af andvirði heildarframlags, að upphæð 4 millj. dollara, sem hin gagnkvæma öryggismálastofnun Bandaríkjanna veitti til framleiðsluaukningar samkvæmt samningi milli ríkisstj. Bandaríkjanna og ríkisstj. Noregs. Og þessi stofnun, Iðnaðarmálastofnun Íslands, hefur áreiðanlega notið góðs af sams konar fjárframlögum og mun vera ætlað það í framtíðinni, og um það er ekki nema gott eitt að segja, ef fénu er varið af réttsýni til þess að mennta og fræða hið vinnandi fólk alveg eins og sérfræðingana og til þess að rétta hjálparhönd um þýðingarmikil, tæknileg atriði þeim fyrirtækjum, sem alls ekki eru eins tæknilega þróuð orðin hjá okkur og hjá þjóðum í kringum okkur, sem við eigum margs konar viðskipti og stöndum jafnvel í samkeppni við.
Í útskýringunum við frv. er lögð áherzla á, að það sé mikil þörf á miðstöð eins og Iðnaðarmálastofnun Íslands til milligöngu um kynnisferðir íslenzkra manna til erlendra ríkja, þar sem tæknin er talin vera á fullkomnustu stigi. Og för verkamannanna í sumar var einmitt þess eðlis. Ég er alveg sannfærður um, að slíkar sendiferðir eru gagnlegar, og ég lét það í ljós aðspurður við hina erlendu sérfræðinga frá iðnaðarmálastofnunum Norðurlanda, að Alþýðusambandið mundi með miklum fögnuði taka á móti slíkum boðum um að senda fulltrúa frá verkalýðshreyfingunni, einkanlega til Evrópulanda og Norðurlanda, en alveg eins til Ameríku eða hvert í veröldina sem kostur væri gefinn á, til þess að íslenzkir verkamenn og verkakonur fengju að sjá fyrir sér fullkomnari vinnubrögð og fullkomnari vinnuaðstöðu. Einnig lét ég í ljós, að ég væri þess mjög fýsandi, að verkalýður landsins yrði þátttakandi og ráðgefandi aðili um stjórn fyrirtækja, annaðhvort eftir því, sem um kynni að semjast milli verkalýðssamtaka og atvinnurekenda, eða með lagaákvæðum um þátttöku verkamanna í stjórnum fyrirtækja. [Frh.]