07.02.1956
Neðri deild: 64. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 333 í C-deild Alþingistíðinda. (1728)
116. mál, Iðnaðarmálastofnun Íslands
Pétur Ottesen:
Þegar frv. um Iðnaðarmálastofnun Íslands var lagt fyrir á síðasta þingi, nokkru fyrir áramótin, var svo ákveðið í 1. gr. þess frv. m.a., að Iðnaðarmálastofnun Íslands skyldi vera ríkisstj. til ráðuneytis í tæknilegum vandamálum, er iðnaðinn varða, öðrum en fiskiðnaði. Hann var undantekinn og að sjálfsögðu með tilliti til þess, að fyrir er stofnun í landinu, sem hefur þetta hlutverk með höndum, sem er Fiskifélag Íslands, enda kemur þetta skýrt fram í þeirri greinargerð, sem fylgdi því frv. Það frv. var samið af 7 manna nefnd, og eftir að n. hafði gengið frá frv., var það sent til ríkisstj. eða iðnmrh., sem gerði á því nokkrar breytingar, og að því er þetta atriði snertir er vikið að þessu í greinargerðinni fyrir frv., með þessum orðum, með leyfi hæstv. forseta:
„Ríkisstj. hefur gert örfáar breytingar á frv. Sú veigamesta er við 1. gr., næstsíðustu málsgrein, þar sem bætt er við orðunum: „öðrum en fiskiðnaði“. Er breytingin til komin vegna þess, að svo er til ætlazt, að Fiskifélag Íslands sé ríkisstj. til ráðuneytis í þessum málum, og er það samkvæmt vilja stærstu samtaka fiskiðnaðarins.“
Nú er í frv., sem hér liggur fyrir nú um þetta efni, þessi undantekning alveg felld niður og gert ráð fyrir því, að fiskiðnaðurinn heyri undir starfsemi Iðnaðarmálastofnunarinnar eins og annar iðnaður í landinu. Er þetta að því leyti einkennilegt, að sem greinargerð með þessu frv. er tekin upp sama greinargerð og fylgdi frv., sem lagt var fram á síðasta þingi, og inniheldur það, sem ég var að lesa upp áðan, að þessi breyting hefði verið gerð, að undantaka fiskiðnaðinn í landinu. Mér virðist þess vegna, að þetta hljóti að verða tekið til athugunar við meðferð þessa máls, úr því að sézt hefur yfir að gera það í meðförum málsins í Ed., og þetta atriði fært til þess horfs, sem var í því frv., sem lagt var hér fyrir á síðasta þingi.
Fiskifélag Íslands hefur á hendi það hlutverk fyrir sjávarútveginn og á sviði sjávarútvegsins, sem Iðnaðarmálastofnun Íslands er ætlað að hafa fyrir annan iðnað í landinu. Það er stór stofnun, sem tengd er við Fiskifélag Íslands, sem vinnur að þessum málum. Hún hefur í sinni þjónustu 5 sérfræðinga, sem vinna að þessu, og eins og kunnugt er, er verið að reisa byggingar fyrir þessa starfsemi, og er það verk nokkuð á veg komið. Fiskifélagið hefur á hendi að vera á verði um allar nýjungar í nýtni og nýtingu sjávarafurða. Það hefur á hendi alla leiðbeiningarstarfsemi varðandi fiskiðnaðinn og bætta vinnutækni á því sviði og betri og hentugri aðferðir við nýtingu fiskiðnaðarins. Auk þess hefur Fiskifélag Íslands á hendi alla efnagreiningu á útfluttum sjávarafurðum, þar sem þess er krafizt, eins og t.d. lýsi, fiskimjöli og öllu slíku, og sömuleiðis rannsakar það allar niðursuðuvörur, sem fluttar eru á erlendan markað.
Ég vil með skírskotun til þess, sem ég nú hef sagt, vænta þess, að iðnn., sem fær þetta mál nú til meðferðar, taki þetta atriði til meðferðar og athugunar, og vænti þess, að þessu verði kippt í það horf, sem áður var í flutningi þessa máls, að gengið sé út frá, að Fiskifélag Íslands sjái um þennan þátt iðnaðarins í landinu, svo vel sem sú starfsemi er líka á veg komin. Vildi ég mega vænta þess, að það yrði niðurstaðan af athugun n. á málinu.