22.03.1956
Efri deild: 90. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 351 í C-deild Alþingistíðinda. (1740)

191. mál, jafnvægi í byggð landsins

Forseti (GíslJ):

Út af ósk, sem komið hefur fram frá hv. þm. S-Þ. (KK) um að fresta þessari umr. til þess að gefa honum tækifæri til þess að semja brtt., þá er það að sjálfsögðu ekki nema eðlilegt, að orðið sé við þeirri ósk. En ég vildi í tilefni af því mega spyrja hv. form. fjhn., hvort hann sæi sér fært að taka málið til athugunar á ný í n. á þessum degi, þ.e. nú síðdegis. Ég hef hugsað mér, ef mögulegt væri, að þetta mál gæti orðið afgr. úr þessari d. í þessari viku, og mér finnst ekki, að þau atriði, sem hv. þm. S-Þ. hefur bent hér á, séu svo veigamikil, að ekki mætti komast e.t.v. að samkomulagi um það í n. Mér þykir ekki eðlilegt að halda áfram þessari umr. hér, eftir að sú ósk hefur komið fram og þær ábendingar, og vil því gjarnan vita, hvort hv. formaður n. sæi sér ekki fært að taka málið til athugunar nú í nefndinni.