27.03.1956
Neðri deild: 98. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 388 í C-deild Alþingistíðinda. (1764)

191. mál, jafnvægi í byggð landsins

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Það hefur ekki unnizt tími til þess að halda fund í fjhn. um þetta mál í dag sökum margvíslegra annarra anna þingsins, og liggur því ekki fyrir enn þá neitt nál. Það hefur verið útbýtt brtt. í málinu, þar sem blandað er inn í þetta mál öðrum mjög mikilvægum málum og óskyldum, og er það mín skoðun, að það að taka upp umr. um það núna að fella þær inn í þetta mál sé sama sem af ásetningi að reyna að koma þessu máli fyrir kattarnef á þessu þingi. Eins og nú er komið, þegar við erum á næstsíðasta degi þingsins, tel ég allt annað en að samþykkja þetta frv. óbreytt eða með sáralitlum breytingum sama sem að stefna málinu í voða. Ég fyrir mitt leyti legg mikla áherzlu á, að málið nái fram að ganga, og hef gert ráðstafanir til þess fyrir mína hönd og hv. þm. A-Húnv. (JPálm) eftir viðræður okkar í dag að gefa út nál. um það og leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt. En eins og ég segi, þá er ekki enn vitað um það, hvaða afstöðu aðrir nm. kunna að hafa til slíkra till., þar sem tími hefur ekki unnizt til fundar í fjhn.