16.12.1955
Efri deild: 31. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 186 í B-deild Alþingistíðinda. (178)

86. mál, laun starfsmanna ríkisins

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Ég er samþykkur meginstefnu þessa frv. og hef því mælt með því ásamt öðrum meirihlutamönnum í fjhn., að það verði samþ. í aðalatriðum eins og það liggur fyrir. Ég tel það meginstefnu frv. að færa laun opinberra starfsmanna í áttina til þess, sem launakjör almennt eru nú í landinu, og ég tel, að það sé gert í þessu frv., þó ekki þannig, að fullu samræmi sé náð, sem ég tel eðlilegt, þegar tillit er tekið til þess, að atvinnuöryggi opinberra starfsmanna er mun meira en annars launafólks og að nokkur fríðindi eru þeim tryggð sérstaklega, eins og lífeyrisréttur, sem launamönnum almennt er ekki tryggður. Þó tel ég, að ummæli hv. minni hl. um það, hversu mikils virði þessi fríðindi séu, geti ekki verið rökum studd, þær tölur, sem hann nefndi í því sambandi, eru að minni hyggju allt of háar.

Fjölmennustu launahóparnir hjá opinberum starfsmönnum munu vera í X., XI., XII., XIII. og XIV. launafl., og byrjunarlaunin hjá þessum flokkum eru frá 23700 kr. og niður í 12900 kr. á ári, en tilsvarandi hámarkslaun, eftir að þeim er náð, eru frá 30 þús. og niður í 19 þús. kr. Ég verð að segja það, að þegar þessar upphæðir eru bornar saman við launakjör almennings í landinu, þá er augljóst, að þetta er undir þeim almennu launakjörum, en ekki yfir þeim, og talsvert mikið undir. Ástæðan til þess er sú, eins og ég áðan greindi, að atvinnuöryggið er meira í þessum störfum og nokkur fríðindi fylgja. Ég hef hér í höndum Hagtíðindin, sem birta skýrslur um meðaltekjur í ýmsum byggðarlögum landsins, ekki nýrri en árið 1953, þegar vísitalan var ætluð 157 eða 158 og ekki komin sú almenna launahækkun, 10–11%, sem fékkst á s. l. vori. Samkvæmt því yfirliti eru tekjurnar á einstakling nokkuð breytilegar, hér í Reykjavík tæplega 16 þús. kr., sem mundi svara til meðalheimilis með 3–3½ manni milli 50 og 60 þús. kr., í Keflavík, sem er langhæst, eru meðaltekjurnar á íbúa 77 þús., sem með sama reikningi gæfi rösklega 50 þús. kr. Þetta var árið 1953 með miklu lægri vísitölu en nú er um að ræða og með a. m. k. 10–11% lægri grunnlaunum en nú eru almennt.

Ég hygg, að ekki þurfi að benda á fleira til þess að sýna fram á, að það er fullkomlega ofmælt hjá hv. minni hl., þegar hann heldur því fram, að þessi lög mundu orka til hækkunar á launum almennt í landinu, því að þau hafa ekki enn þá samkv. þessu frv. náð sama marki og launakjör almennt munu vera í landinu. Ég veit ekki betur en að á einstökum búum hér í grennd við Reykjavík — og mun einnig vera nokkuð fjarri — sé ekki óþekkt, að ársmanni séu borgaðar 2000 kr. á mánuði eða jafnvel upp í 25 þús. kr. á ári í laun, auk húsnæðis með ljósi og hita, fæðis og annarrar umönnunar. Ég hygg, að í algengustu launaflokkunum hafi menn, sem eru búnir að vinna 3–4 ár, gjarnan lokið stúdentsprófi eða öðrum slíkum undirbúningi undir sín störf, hingað til verið á launum á milli 600 og 650 kr. á mánuði í grunnlaun, við það má nú bæta 30% og svo þrefalda upphæðina, og koma þá út úr því rösklega 40 þús. kr. Sé það borið saman við t. d. þau launakjör, sem ég nefndi áðan, þá er augljóst, að þau eru stórum rýrari en þær kaupgreiðslur, sem hér er um að ræða. Fleiri dæmi mætti tína upp og taka til, sem allir menn þekkja og sýna, að því fer fjarri, að þessi laun, sem hér eru ákveðin almennt, geti orkað til hækkunar á almenn laun í landinu.

Annað, sem einnig er stefnt að í þessu frv., er að fá betra samræmi innbyrðis á milli hinna einstöku launaflokka. Ég tel, að yfirleitt hafi heldur færzt í rétta átt frá því, sem er í gildandi launal., með þessu frv., sem hér liggur fyrir. Hitt skal þó játað, að það vantar að minni hyggju nokkuð á, að samræmi sé náð í þessu, enda skal það viðurkennt, að slíkt er ákaflega erfitt og jafnvel mjög mikið álitamál. Ýmis einstök atriði þessa frv. hefði ég kosið á annan veg en þau eru, en allt um það tel ég, að meginstefna frv. sé rétt, og fylgi því frv., en legg hér fram nokkrar brtt. á þskj. 223, sem að minni hyggju eiga að bæta nokkuð úr því misræmi sem ég tel að enn þá sé á hlutfallinu milli einstakra launaflokka frv. Skal ég þá víkja að þessum brtt.

1. brtt. mín er þess efnis, að í 18. gr., kaflann um póststofuna í Reykjavík, komi nýr liður, sem heiti deildarstjórar, og séu þeir settir í VII. flokk. Ástæðan til, að ég flyt þessa till., er sú, að við 3. umr. um málið í Nd. voru settir inn í 5. lið sömu gr. um landssímann sérstakir fulltrúar, sem einnig voru settir í VH. launaflokk. Nú er það svo, að póstur og sími eru í raun og veru ein og sama stofnunin í tveimur deildum og mjög hliðstæð störf hjá starfsmönnum í báðum deildum stofnunarinnar. Ég verð því að telja fullkomlega eðlilegt og auðvelt að koma á fullu samræmi innan þessarar stofnunar hjá þessum tveimur deildum hennar.

Það er alveg sérstök ástæða til þess, að ég hygg, á póststofunni hér í Reykjavík að hafa sérstaka deildarstjóra, a. m. k. jafnrík og að hafa þá hjá landssímanum. Póststofan hefur þegar 4 deildir, almenna bréfadeild, tollpóstdeild, böggladeild og ávísanadeild. Í hverri þessari deild út af fyrir sig eru nokkrir starfsmenn og sérstakur maður, sem er verkstjóri þar, svo að ég tel, að það sé alveg eðlilegt, að það sé deildarstjóri, sem sé verkstjóri þar og njóti sérstakra launakjara sem slíkur. Úr því að þetta var tekið upp og þótti rétt hjá ritsímanum, fæ ég ekki séð, að neitt geti mælt því í gegn, heldur allt með því, að slíkt hið sama sé gert í póststofunni í Reykjavík, þar sé a. m. k. jafnríkt tilefni til slíkrar breytingar og hjá ritsímanum.

Aðrar till. mínar um breytingar á 18. gr. eru einnig til samræmis við það, sem upp hefur verið tekið hjá ritsímanum. Hjá ritsímanum eða landssímanum er svo ákveðið, að símritarar skuli hækka eftir vissan starfstíma, 10 ár, úr X. fl. upp í IX. fl. Ég legg til, að slíkt hið sama verði látið gilda um póstafgreiðsluna, póststofurnar í Reykjavík og á Akureyri, og fæ ekki séð annað en að það sé bein afleiðing af því, sem hv. Nd. ákvað að setja inn í frv. varðandi símritara landssímans. Störfin eru alveg hliðstæð. Ef símritararnir eiga að hækka eftir visst árabil um einn flokk, þá virðist fullkomlega eðlilegt og sjálfsagt, að slíkt hið sama gildi einnig um póstafgreiðslumenn.

Að því er símann varðar hefur verið ákveðið, að sendimenn símans skuli vera í tveimur flokkum, almennir sendimenn og yfirsendimenn, eins og það er kallað, og þeir flokkar eru XI. og XII. fl. Til samræmis við þetta legg ég til, að slíkt hið sama verði látið gilda um sendimenn póststofunnar, sem eru bréfberarnir, að einnig þeir eigi þess kost að hækka eftir vissan starfstíma og með vaxandi ábyrgð við störfin úr X. fl. upp í IX. fl.

Þetta er efni 1. till. á þskj. 223 og eingöngu fram borið í þeim tilgangi að fá samræmi á launakjörum þessara alveg hliðstæðu starfsmannahópa hjá póststofunni við það, sem þegar hefur verið ákveðið að því er varðar starfsmenn landssímans.

Þá er 2. brtt. mín á sama þskj. þess efnis, að árslaun gagnfræðaskólakennara skuli ekki skert, nema skólarnir starfi skemur en 8 mánuði, en þá skuli þau lækka um 1/12 fyrir hvern mánuð, sem starfstími skólans sé skemmri.

Ég hygg, að það sé fullkomlega rétt mælt, sem sagt var í Nd. um þetta atriði, að yfirleitt eru laun kennara ekki miðuð við það, að raunverulegur kennslutími sé lengri en 8 mánuðir á ári, og þó að hægt sé að koma við að meta kennslutímann þannig hjá gagnfræðaskólunum á stundum sumum hverjum, þá sé það í raun og veru meira í orði en á borði, þannig að réttmætt sé að láta ekki ákvæðið um skerðingu koma til greina fyrr en kennslutíminn sé kominn a. m. k. niður í 8 mánuði, en allt hvað er milli 8 og 9 mánaða, þó að talið sé undir 9 mánuðum, þá sé ekki látið koma til skerðingar.

Þetta eru þær till., sem ég ber hér fram. Þær eru sem sagt til þess að bæta úr nokkrum af þeim ágöllum, sem eru á frv. að minni hyggju, að því er varðar hið innra samræmi í launakjörum starfsmanna svo nátengdra deilda sem hér er um að ræða, hvort sem það eru starfsmenn póstsins annars vegar eða símans hins vegar, og að því er snertir gagnfræðaskólakennarana í þeim tilfellum, að kennslutími sé ekki talinn nema 8 mánuðir á ári.