24.10.1955
Neðri deild: 9. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 433 í C-deild Alþingistíðinda. (1796)

20. mál, verðlag, verðlagseftirlit og verðlagsdómur

Einar Olgeirsson [frh.] :

Ég var víst að svara hv. 3. þm. Reykv., ef ég man rétt, og hann hafði verið að spyrja meðal annars, hvar kaupfélögin kæmu inn til þess að hafa eftirlit viðvíkjandi verðlaginu, og ég hafði verið að upplýsa hann um það og hafði endurtekið þá yfirlýsingu, sem hv. 1. landsk. gaf hér, að kaupfélögin hér í Reykjavík og smákaupmenn hér hefðu ekki hækkað sína álagningu. Heildsalarnir höfðu hækkað sína álagningu um 30%. Það lá fyrir og var staðfest. En smásalarnir, þ.e. kaupfélagið og smákaupmennirnir, höfðu ekki hækkað sina álagningu.

Ég hafði verið að ræða í þessu sambandi nokkuð við hann um aðstöðu kaupfélaganna, t.d. ekki sízt kaupfélagsins hér í Reykjavík, til að heyja baráttu til að stjórna verðmyndun hérna, og ég hef aflað mér ofur lítilla upplýsinga í þeim málum síðan, sem mér þykir fróðlegt að leggja fyrir Alþingi.

Það var upplýst, að það hefði orðið allmikil hækkun hjá heildsölunum á þeirra álagningu, sem sé 30%, og um það var verið að deila, hvernig það væri allt saman til komið og hvort það væri réttlátt. Og ég minntist nokkuð í því, sem ég sagði, á aðstöðumuninn fyrir t.d. kaupfélagið að berjast fyrir því að reyna að halda verðlaginu niðri, samanborið við þá aðstöðu, sem heildsölunum væri gefin.

Ég skal upplýsa það t.d. hvað lánin snertir, að á árinu 1953 aukast útlán bankanna þriggja til verzlunarinnar um 74 millj. kr., á árinu 1954 um 42 millj. kr., og það hefur ekkert af allri þessari lánaaukningu farið til dæmis til kaupfélagsins hér í Reykjavík, en það hefur vafalaust þorrinn af því runnið til heildsalanna. Ég skal ekki segja, hvað smákaupmenn fá mikið lán, ég efast um, að það sé sérstaklega mikið. En það er eflaust, að sömu heildsalarnir sem fá 74 millj. kr. i aukningu á lánum á árinu 1953, eru þeir, sem taka síðan til að hækka álagninguna hjá sér um 30%. En þeim, sem í smáverzluninni eiga að reyna að vinna eitthvað að því að halda niðri verðlaginu eða halda því í skefjum, eru engin lán veitt. Ég ætla, ef hv. heildsalar þessarar deildar ætla að fara að gera þessi mál þannig að sérstaklega miklu umtalsefni, að óska eftir því, að það verði þá farið að rannsaka, hvaða aðilar það eru, sem fá lánin í bönkunum, og það yrði lagt fyrir hér á Alþ., svo að við sjáum það.

Svo talaði hv. 3. þm. Reykv. um, að það væri nú ekki aldeilis svartur markaður í vörunum núna, það væri eitthvað annað. Ég var að því kominn að minna hann á, hvers konar svartur markaður væri kominn í staðinn fyrir svarta markaðinn í vörunum, sem einu sinni hefði verið, að nú væri svartur markaður á peningum, þannig að hann væri sjálfur í sérstakri nefnd til þess að rannsaka, hve víðtækur hann væri, og ég var að minna hann á um leið, hvernig svarti markaðurinn væri i húsnæðinu, þannig að það væru þverbrotin öll þau lagaákvæði, sem nú eru í gildi viðvíkjandi því, hvaða verð eigi að taka fyrir húsnæðið, og yfirvöldin gera enga tilraun til þess að láta lögin vera í gildi viðvíkjandi þessu. Hverjum er þessi svarti markaður að kenna? Hann er þeim að kenna, sem afnámu húsaleigulögin, en bönnuðu samtímis mönnum einu sinni að byggja yfir sig, og síðan hafa verið að gera bæði einstaklingum og heildarsamtökum erfiðara og erfiðara að byggja nauðsynleg íbúðarhús. Hvergi á Norðurlöndum hafa húsaleigulög verið afnumin. Alls staðar hefur þetta verið látið haldast til þess að reyna að halda í hemilinn á verðlaginu og til þess að reyna að hindra, að verðið á útflutningsframleiðslunni þurfi að vera allt of hátt. Það er skiljanlegt, að ef húsaleiga hækkar mjög mikið, þá þýðir það, að verkamenn hljóta að hækka sitt kaup á eftir, og það, að verkamenn síðan hækka sitt kaup, lendir auðvitað á útflutningsframleiðslunni, eins og gefur að skilja, og það er það, sem vissir aðilar, sem koma hér oft, kvarta yfir. Hvað hafa þeir sjálfir svo gert hvað húsnæðismálin snertir í þessum efnum?

Ég hef sýnt fram á það hér og hv. 3. þm. Reykv. hefur ekki reynt að mótmæla því, að fyrir tíu árum var þriggja herbergja íbúð í Reykjavík leigð á 150 kr. Nú í vor kostaði hún 1500 kr. Nú eru jafnvel slíkar íbúðir leigðar á 2000 kr., í gömlum húsum, byggðum fyrir stríð. Það var óhugsandi að gera þetta án þeirra laga, sem Sjálfstfl. og Framsfl. settu hér i gegnum þingið um afnám á húsaleigulögunum. Hvað hefur þetta þýtt? Það hefur þýtt það, að þar sem verkamannakaupið var t.d. 1946, Dagsbrúnarmannskaupið hér í Reykjavík. kr. 8.03 á tímann, þá er það núna 16 kr. rúmar. Sem sé: húsaleigan hefur tífaldazt fyrir tilstilli stjórnarflokkanna. Kaup verkamannsins hefur tvöfaldazt. Svo eru til í þessu þjóðfélagi og það í stjórnarstólunum menn, sem leyfa sér að halda því fram, að það sé kauphækkun verkamanna, sem veldur dýrtíðinni. Sömu mennirnir sem skipuleggja dýrtíðina, sömu mennirnir sem kipptu burt öllum hömlum á dýrtíðinni og virðast síðan æsa braskarana í þjóðfélaginu út í það að auka dýrtíðina sem mest og lána þeim peninga þjóðarinnar, til þess að þeir geti unnið að því að auka dýrtíðina sem mest, koma og leyfa sér svo að halda því fram, að það sé kauphækkun verkamanna, sem valdi dýrtíðinni, þegar húsaleigan er tífölduð, á sama tíma sem kaup verkamanna er tvöfaldað. Það er skiljanlegt, að það fari að verða hálferfitt fyrir slíka menn að standa fyrir sínu máli hér á Alþingi.

Ég held yfirleitt, fyrst það er farið að ræða svona mikið verðmyndunina í sambandi við þessi mál, að það væri nauðsynlegt, að við gerðum ráðstafanir til þess að rannsaka, hve mikið það er, sem milliliðirnir taka í sinn hluta af þeim þjóðartekjum, sem myndaðar eru á Íslandi, hve mikið það er, þegar verðmyndun er að eiga sér stað hér, sem rennur til í fyrsta lagi skipafélaganna. Við höfum tekið eftir því, að það hefur ekki verið nokkur skapaður hlutur, sem hefur verið eins arðbær á undanförnum árum og að eiga skipafélög og eiga flutningaskip, — ég tek fram, að það eru flutningaskipafélög, — enda er það svo, að flutningaskipunum hefur fjölgað á undanförnum árum, og er það út af fyrir sig gott, á sama tíma sem togurunum hefur fækkað. Ég held það mætti nú rannsaka það, hvernig stendur á því, að fjármagnið skuli streyma svona ört í flutningaskipin og þau félög, sem hafa með þau að gera. Það mundi þá ef til vill koma í ljós, að það væri nokkuð mikil gróðamyndun þar, og þeir, sem eru að reyna að kenna verkamönnum um vöxt dýrtíðarinnar, ættu að taka fyrir rannsóknirnar á því atriði.

Við skulum þá í öðru lagi athuga, hve mikið það er, sem fer til bankanna. Við vitum, að gróði bankanna á ári er ekki minni en milli 40 og 50 millj. kr., sem sé margfaldur við það, sem allt tapið er á togurunum, sem mest er talað um. Og við skulum alveg gera okkur ljóst, að þetta er eitt af því, sem ræður verðmynduninni í þjóðfélaginu, og eitt af því, sem ræður því, hvernig auðurinn skiptist.

Sama máli gegnir viðvíkjandi olíufélögunum, viðvíkjandi vátryggingarfélögunum, viðvíkjandi heildsölunum, eða — svo að við tökum aðra hluti — húsbyggingarfélögunum og þeim aðilum, sem gera að gróðavegi að byggja íbúðarhús og selja þau alldýrt eða að leigja þau út. Það væri líka gott í þessu sambandi að framkvæma rannsókn á verðmynduninni á lóðunum t.d. hér í Reykjavík og hve mikið fé það er, sem runnið hefur í hrein braskverðmæti í sambandi við lóðirnar.

Ég held, að þegar menn eru að tala svona mikið um þessi mál og hlut verkamanna í því að auka dýrtíðina, veitti ekki af, að það væri rannsakað og það alveg ofan í kjölinn, hvernig er um alla þessa milliliði og hvað mikið af því þjóðarverðmæti, sem skapað er með vinnu verkalýðs á hverju ári, rennur til þeirra.

Nú vil ég taka eitt fram í þessu sambandi, og það er, að hæstv. ríkisstj. hefur sjálf með sinni pólitík, ekki sízt í húsnæðismálunum, mjög mikil áhrif um það, hvaða kröfur verkamenn verða að gera til kaups. Eitt af því, sem alveg sérstaklega veldur því, að verkamenn hafa á undanförnum árum orðið að gera kröfur í þessum efnum, er hækkunin á húsnæðinu, ekki aðeins vegna þess, að menn verði að leigja svo miklu dýrara en fyrr, eins og ég gat um áðan, heldur líka vegna annars. Verkamannastéttin gerir í vaxandi mæli kröfur til þess að eignast sínar íbúðir, og það hefur sýnt sig, að það er erfiðara og erfiðara fyrir menn að fá þak yfir höfuðið öðruvísi en að eignast íbúðirnar sjálfir, koma sér upp þaki sjálfir. Á sínum tíma var reynt að vinna að þessu með lögunum um verkamannabústaðina. Löggjöfin upp á síðkastið hefur ekki verið þeim sérstaklega hliðholl. Verkamenn hafa farið inn á aðrar leiðir til að reyna að bæta þarna úr sínum brýnustu nauðþurftum, en þetta hefur verið gert þeim erfiðara og erfiðara. Baráttan hjá verkamönnum fyrir því að fá að eignast íbúð og þá um leið að borga þá íbúð hefur af hálfu stjórnarvaldanna verið gerð þeim æ erfiðari. Hún hefur verið gerð þeim erfiðari á tvennan hátt. Hún hefur annars vegar verið gerð þeim erfiðari með því, að þeim hefur verið neitað um lán til þess að byggja, og í öðru lagi hafa peningarnir verið gerðir miklu dýrari, vextirnir hafa verið hækkaðir. Hafi þeir hins vegar fengið lán, þá er það venjulega til svo skamms tíma, að þeir verða að borga þessar íbúðir upp á tiltölulega skömmum tíma. Þetta þýðir hins vegar allt saman, að verkamaðurinn, sem verður að borga sína íbúð niður kannske á 10–20 árum, verður eðlilega að gera meiri kröfur viðvíkjandi kaupgjaldi en svo framarlega sem hann gæti alltaf fengið sér tryggðar íbúðir, þannig að hann þyrfti ekki að borga fyrir þær nema það sem samsvaraði 10% af sínu kaupi. Nú er það svo, að hjá fjöldanum af verkamönnum fer helmingurinn af kaupi Dagsbrúnarmanns, sem vinnur átta tíma á dag, í að borga húsnæði. En hver hefur nú verið afstaða hv. 3. þm. Reykv., sem hér var að tala til okkar í þessu máli, áður fyrr og það meðan hann var ráðherra? Meðan hann var ráðherra, lagði hann einmitt fyrir hönd Sjálfstfl. það sérstaklega fyrir bankana að lána ekki til íbúðarhúsabygginga, sem sé að reyna að koma í veg fyrir það, að verkamenn gætu fengið lán til íbúðarhúsabygginga. Það er glöggt, hvernig núverandi stjórnarflokkar einmitt hvað lánin snertir hafa hagað sér í þessum málum.

Ég hef hér fyrir mér og það frá ekki lélegri heimild frá sjónarmiði stjórnarflokkanna en Framkvæmdabanka Íslands, í riti hans Úr þjóðarbúskapnum, samanburð á því, hvernig ríkisstj. með sinni stjórn á bankapólitíkinni hefur farið að annars vegar gagnvart heildsölunum með að veita þeim lán og hins vegar gagnvart þeim, sem eru að byggja íbúðarhús, með að veita þeim lán. Það stendur í þessari skýrslu Framkvæmdabankans, að á árinu 1953, svo að ég taki það ár eitt, sé aukningin á útlánum Landsbankans, Útvegsbankans og Búnaðarbankans til verzlunarinnar 74.6 millj. kr. Á sama tíma, á árinu 1953, er aukning á lánum til íbúðarhúsabygginga 3.4 millj. kr. Það er það, sem lánin til íbúðarhúsabygginganna jukust, á sama tíma sem verzlunin fékk 74.6 millj. kr. Á árinu 1953 var hins vegar það, sem Framkvæmdabankinn hér kallar fjármögnun, þ.e. framlag einstaklinganna og heildanna til íbúðarhúsabygginga í sveitum og bæjum, alls 129 millj. kr., viðhaldið á því 26 millj. kr., kostnaðurinn 155 millj. kr., á þessu sama ári sem þeir fá frá þessum bönkum 3.4 millj. kr. til þessa. M.ö.o.: Mönnunum, sem eru að reyna að byggja yfir höfuðið á sér, er svo að segja neitað um lán af þessum bönkum. Þó að þeir byggi fyrir 155 millj. kr. eða haldi við sínum húsum, þá eru lánin aðeins aukin um 3.4 millj. kr. En verzlunin fær 74 millj. kr. til viðbótar fyrri lánum á sama ári. Þannig er fjármagnið veitt út úr bönkunum til heildsalanna, á sama tíma sem einn aðalheildsalinn og Sjálfstæðisflokkurinn bannar að lána til íbúðarhúsabygginga. Svo er komið hér ár eftir ár og sagt við menn, að þessir flokkar hafi alveg sérstaka umhyggju fyrir því að gera mönnum kleift að eignast sjálfir íbúð. Sjálfstfl. meira að segja segir: Hver einasti maður á að eiga sína eigin íbúð. — En þetta er framkvæmdin á hlutunum.

Ég þarf ekki að minna á í þessu sambandi, hvernig farið hefur verið að á öðrum sviðum, hvernig bæjunum hefur verið gert ómögulegt á sama tíma að byggja í staðinn fyrir þær heilsuspillandi íbúðir, sem versna ár frá ári, og hvernig haldið er í við byggingu verkamannabústaðanna og hvernig svo núna seinast í sumar voru smáíbúðalánin afnumin, án þess raunverulega að nokkuð kæmi í staðinn.

Ég held þess vegna, að í þeim umræðum, sem hér hafa orðíð í sambandi við þetta mál um verðmyndunina, orsakirnar til hennar og annað slíkt, sé ástæða til þess að rannsaka allmiklu betur en gert hefur verið einmitt þann gífurlega þátt, sem hinir svokölluðu milliliðir og þá fyrst og fremst stórlaxarnir hér í Reykjavík og þær stofnanir, sem ríkisstj. sjálf getur raunverulega stjórnað, hafa átt í því að auka dýrtíðina og hrifsa til sín í vaxandi mæli ávöxtinn af þeirri vinnu, sem verkalýðurinn skapar.

En svo að síðustu út af þeim ummælum, sem hvað eftir annað hafa fallið í þessum málum um, að verkamennirnir megi ekki hækka sitt kaup, vil ég leyfa mér að spyrja þessa menn, sem alltaf eru að tala um, að þeir, sem geti ráðið því, hvernig verkfallsvopninu sé beitt, ættu ekki að beita því til kauphækkunar, hvernig þeir ætlist til, að við beitum því. Í vinnulöggjöfinni er alveg skýrt fyrir mælt, að það sé til kauphækkana og annarra slíkra kjarabóta, sem verkamenn hafa rétt til að beita því. Þar segir í 17. gr., 2. tölulið, með leyfi hæstv. forseta:

„Óheimilt er að hefja vinnustöðvun, ef tilgangur vinnustöðvunarinnar er að þvinga stjórnarvöldin til að framkvæma athafnir, sem þeim lögum samkvæmt ekki ber að framkvæma, eða framkvæma ekki athafnir, sem þeim lögum samkvæmt er skylt að framkvæma, enda sé ekki um að ræða athafnir, þar sem stjórnarvöldin eru aðili sem atvinnurekandi. Gildandi lög um opinbera starfsmenn haldast óbreytt þrátt fyrir þetta ákvæði.“

Því er hvað eftir annað haldið fram, að verkamenn ættu að beita sinum samtökum til þess að knýja fram, að ákveðið verð sé lækkað á ákveðnum hlutum eða breytt sé um viðvíkjandi stjórnarstefnu jafnvel í vissum greinum, og þetta sé það, sem fyrst og fremst ætti að nota verkfallsréttinn til. Þetta ætti m.ö.o. að þýða það í fyrsta lagi, að verkamenn ættu með verkfallsvopninu að ákveða t.d. farmgjöld skipanna á ákveðnum vörutegundum, að þeir ættu að ákveða vaxtafót bankanna á ákveðnum lánum, að þeir ættu að ákveða, hve mikið bankarnir gera að því að lána út til t.d. íbúðarhúsabygginga verkamanna og til hvað langs tíma, að það séu gerð verkföll til þess að ákveða, að nú skuli lánaðar út svona og svona stórar fúlgur, og það sé ekki látin nein vinna fara fram hér í þjóðfélaginu, fyrr en bankarnir séu búnir að fallast á það, að svona mikið skuli nú lána og gegn svona vöxtum, að verkamennirnir geri verkföll til þess að ákveða, hvort heildsalarnir skuli t.d. fá að leggja á vöruna eða t.d. hvort öll verzlunin skuli aðeins fara fram í gegnum ríkið eða í gegnum Samband íslenzkra samvinnufélaga, sem væri kannske ódýrara, vegna þess að það sé ætlazt til, að verkamennirnir ákveði, hvernig verðið skuli myndast, og að verkamenn eigi þá að gera verkfall til þess að ákveða, hver skuli vera húsaleigan, og þá væntanlega líka, að verkfallsnefndirnar, jafnvel verkfallsverðirnir, eigi kannske að taka að sér að sjá um framkvæmdir á þeim ákvörðunum, sem settar væru samkv. slíku um, hver húsaleigan skyldi vera. M.ö.o.: Allt, sem stjórnarvöldin vanrækja að gera, eiga verkamenn að sjá um að gera með verkföllum. Það virðist vera kenning þessara manna, sem prédika, að verkamennirnir eigi að stjórna verðmynduninni í þjóðfélaginu, en þeir megi bara ekki gera það eina, sem lögin .heimila þeim, að hækka sitt kaup.

Ég vil gjarnan fá umræður um svona mál á grundvelli, þar sem hægt er að ræða við menn af viti. Meina menn þetta? Meina menn þá ef til vill, að verkamenn eigi t.d. að gera verkfall til þess að setja núverandi ríkisstjórn af og koma á ríkisstj., þar sem hugsað sé almennilega um hag almennings i sambandi við allar verðlagsmyndanir í þjóðfélaginu? Á verkamannastéttin að fara að taka það að sér með verkföllum að stjórna verðlagsmynduninni i þjóðfélaginu? Það sjá allir menn, sem hugsa um þetta, að það er eins og hver önnur vitleysa að halda þessu fram, nema það sé ætlazt til þess, að við, sem gætum kannske haft áhrif þarna á, færum að beita verkfallsvopninu sem beinu hápólitísku vopni til þess að steypa ríkisstjórn og setja aðra, því að öðruvísi væri ómögulegt að hafa áhrif á þessar verðlagsmyndanir. Í þjóðfélagi, þar sem ríkið sjálft er farið að vera raunverulega aðalaðilinn í öllum verðmyndunum í þjóðfélaginu og sá, sem hefur mest áhrif á um það, yrði það að vera þannig. Þess vegna er þetta eins og hver önnur bábilja, og það er sérstaklega bábilja af þeim sömu mönnum sem sjálfir hafa með afskiptum ríkisins, eins og þegar þeir afnema húsaleigulögin, orðið til þess að skapa alveg gífurlega dýrtíð á hinum ýmsu sviðum. Ef við ætlum að fara að ræða þessi mál, þá skulum við sem sé ræða þessi mál í fullri alvöru og ekki bara eins og reynt er í vissum blöðum að þyrla upp ryki og blekkja almenning með áróðri á móti þeim aðferðum verkamanna, sem þeim eru einum svo að segja heimilaðar með vinnulöggjöfinni, að hækka sitt kaup.

Ég vildi svo að síðustu viðvíkjandi þessu frv. benda á, að það væri máske rétt fyrir n., sem það fer til, að athuga nokkuð um skipun nefndarinnar sjálfrar. Að ólöstuðum öllum þeim mönnum, sem lagt er til að þarna séu í, vil ég aðeins minna á það, að t.d. í frv. því, sem form. Framsfl. flutti 1948–49, voru þeir aðilar, sem skipuðu þá n., sem bæði réð verðlagsstjóra og átti að hafa mikil völd í verðlagsmálum, Alþýðusamband Íslands, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Kvenfélagasamband Íslands og stjórn Stéttarsambands bænda. Og ég tek eftir, að t.d. í tillögum, sem þm. Þjóðvfl. hafa flutt hér, leggja þeir til, að jafnvel alþýðusamtökin sjálf útnefndu alveg mennina í þetta. Ég gæti trúað a.m.k., að ef ætti að setja það meira yfir á ábyrgð almennings í landinu að hafa eftirlit með verðlaginu, af því að ríkisstj. gefist upp á að gera slíkt, þá mætti það gjarnan endurskoðast, hvort ekki væri rétt, að samtökin hefðu þar heldur meiri áhrif en gert er ráð fyrir í þessari 1. gr.

Ég vil svo, eins og ég hef áður tekið fram, mæla með þessu frv. og vonast til þess í sambandi við umræðurnar um það, að hægt verði almennt að ræða nokkru meira verðlagsmálin og gera upp sakirnar i þeim efnum.