16.12.1955
Efri deild: 31. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í B-deild Alþingistíðinda. (181)

86. mál, laun starfsmanna ríkisins

Frsm. meiri hl. (Bernharð Stefánsson):

Herra forseti. Ég þarf ekki miklu að svara hv. þm. Barð., þó að hann héldi hér langa ræðu. Þeirri ræðu hans hefur þegar verið svarað af hæstv. fjmrh., hv. 4. þm. Reykv. og nú síðast af hæstv. dómsmrh. Það eru því aðeins örfá atriði úr ræðu hans, sem ég skal minnast á.

Hann fann að því, að n. sú, sem undirbjó þetta frv., hefði verið valin úr hópi launamanna. Það kann að vera, að það hefði verið réttara að hafa auk þess fulltrúa atvinnuveganna í nefndinni, ég skal ekki segja um það. En það virðist sem það hefði ef til vill ekki orðið til þess að ná því marki, sem hv. þm. vill, að lækka launin, því að við vitum það, að í fjhn. d. eru yfirleitt ekki launamenn, a. m. k. ekki starfsmenn ríkisins í meiri hl., ekki heldur í hv. Nd. Samkv. till. fjhn., sem hv. þm. Barð. á sæti í, eru færðir til menn og starfsgreinar í launaflokkum, svo að áætlað er, að það baki ríkissjóði rúmlega 2 millj. kr. aukin útgjöld, og ég get upplýst það, að hv. þm. Barð. tók alveg fullan þátt í afgreiðslu málsins eins og við hinir nefndarmenn. Þó að hann lýsti að vísu yfir því fljótt, að hann mundi endanlega verða á móti öllu málinu, þá hafði hann sín áhrif á það, hvernig afgreiðslu málið fékk, m. a. hækkunin í launaflokkum. Ég hygg því, að þessi reynsla bendi ekki á, að það hafi verið til stórskaða, þó að nefndarmennirnir í milliþn. væru valdir eins og gert var.

Margt af því, sem hv. þm. Barð. sagði um efnahagskerfi þjóðarinnar, var réttilega fram tekið og einnig mikilvægi þeirrar aðvörunar, sem hv. fjvn. hefði gefið þingi og þjóð. En efnahagskerfi þjóðarinnar grundvallast ekki fyrst og fremst á launum embættismanna. Eins og hefur verið margtekið fram af öðrum, er launalagafrv., sem nú liggur fyrir, afleiðing kauphækkana, sem orðið hafa nú undanfarið á frjálsum vinnumarkaði, og hefur því ekki og mun ekki valda neinni sérstakri þenslu.

Hv. þm. Barð. gagnrýndi þann samanburð, sem gerður hefur verið á launum opinberra starfsmanna samkv. frv. og launum manna á frjálsum vinnumarkaði, og taldi hann fráleitan. Þessu hefur verið svarað. Hæstv. fjmrh. svaraði þessu allvel í ræðu sinni og nefndi þá sérstaklega ýmis hærri laun og bar þau saman við laun á frjálsum vinnumarkaði. Hv. 4. þm. Reykv. svaraði þessu einnig og sýndi fram á það með óyggjandi rökum, að launamenn í lægstu flokkum launalaganna eru sízt betur launaðir en verkamenn og ýmsir starfsmenn á hinum frjálsa markaði. Svona rétt til dæmis mætti spyrja hv. þm. Barð. að, hvort t. d. forstjóri Eimskipafélagsins hefði lægri laun en ráðh., hvort skipstjórar hefðu lægri laun en ráðh. eða hvort fulltrúar og ýmsir starfsmenn, sem þurfa að hafa lögfræðilega menntun, hefðu hærri tekjur en ýmsir málflutningsmenn hér í bænum og annars staðar o. s. frv.

Hv. þm. sagði í sambandi við þetta: Hvað segir almenningur um þetta? — Ja, hvað segir almenningur? Það kann vel að vera, að almenningur segi a. m. k. fyrst í stað, að það hafi verið óþarfi að bæta laun opinberra starfsmanna. En hvað gerir almenningur sjálfur? Hverjir eru það nú orðið, sem ekki krefjast þess, sem þeir álíta að mögulegt sé að fá? Standa bændur landsins vel að vígi að gagnrýna þetta mikið? Ég veit ekki betur en að verð á afurðum þeirra fari eftir því, hvað almennt kaupgjald er hjá vinnandi fólki, og það hækki alltaf þegar kaupgjald hækkar. Standa útgerðarmenn vel að vígi að gagnrýna þetta? Ég veit ekki betur en að þegar þeim finnst útgerðin ganga illa, þá geri þeir alltaf meiri og meiri kröfur til ríkissjóðs um eins konar laun fyrir að stunda útgerðina. Og standa þeir, sem eru í verkalýðsfélögum, vel að vígi að gagnrýna launalagafrv.? Ég held síður, því að það er ekki langt síðan almennar kauphækkanir urðu upp úr verkfalli, sem þeir gerðu.

Hv. þm. Barð. hefur víst misheyrt það, sem ég sagði á einum stað í minni framsöguræðu. Hann hafði eftir mér, að embættismenn hefðu lægri laun en aðrir. Það sagði ég aldrei, að svo væri almennt. Ég sagði, að samkv. frv. yrði minni hlutfallsleg hækkun hjá þeim en hefði orðið upp úr verkfallinu í vor, og við það stend ég. Þær tölur, sem hv. þm. nefndi í sambandi við þetta, eru settar fram á þann hátt, að þar kemur ekki réttur samanburður fram hjá henum. Hann hélt því fram, að samþykkt launalagafrv. mundi kosta ríkissjóð 40 millj. kr. árlega. Þeir menn, sem áætlað hafa þetta, ættu að vera um það færir og hafa miklu betri aðstöðu til þess en hv. þm. Barð. Þeirra áætlun var sú, að frv., eins og það var lagt fyrir, mundi hafa í för með sér rúml. 20 millj. kr. útgjöld, að þær brtt., sem samþ. voru við 2. umr. málsins í Nd., mundu hafa rúml. 2 millj. kr. útgjöld í för með sér og þær brtt., sem samþ. voru við 3. umr. í Nd., mundu hafa í för með sér tæplega ½ millj. kr. útgjöld. Þetta eru engar 40 millj. kr. Hitt er rétt, að útgjöld ríkissjóðs vaxa við þetta að öllum líkindum, þó að ég sé alveg sannfærður um, að það hefði verið samþ. á þessu þingi aukin uppbót á laun embættismanna, þó að ný launalög hefðu ekki verið sett, þannig að aukning útgjaldanna er ekki eins mikil og virðast kann í fljótu bragði.

Ég get alveg tekið undir það, að í einstökum atriðum hafi verið framið ranglæti, þegar flutt var á milli flokka. Hæstv. dómsmrh. nefndi eitt atriði í þessu sambandi. Honum þótti óviðkunnanlegt, að rektor menntaskólans væri í lægri flokki en prófessorar við háskólann. Mér þykir líka óviðkunnanlegt, að forstöðumenn helztu vísindastofnana þjóðarinnar séu í lægri launaflokki en prófessorar háskólans. Ég bar fram till. um að samræma þetta. Hún var felld, og hv. þm. Barð. greiddi atkv. á móti henni.

Ég tek alveg undir það, sem hann sagði um það, að Alþingi megi ekki láta kúga sig. En ég sé ekki, að það sé verið að kúga Alþingi í þessu máli, ég hef ekki orðið var við nokkra kúgun í því efni. Ég hygg, að þm. almennt séu um það sammála, að það þurfi að setja ný launalög og með svipuðum hætti og hér stendur til, þó að menn hafi auðvitað misjafnar skoðanir á einstökum atriðum. Og það sýnir sig, að ekki hefur Sjálfstfl. lagt nein bönd á hv. þm. Barð., ég fullyrði, að það hafa ekki nein bönd verið lögð á nokkurn mann í Framsfl. o. s. frv. Ég mótmæli því alveg, að hér sé verið með nokkra kúgun.

Hv. þm. Barð. leggur til, að þessu máli sé vísað frá með því, sem hann kallar rökstudda dagskrá, en það er töluverður galli á þeirri rökstuddu dagskrá, að þar eru fullyrðingar, sem hafa verið hraktar, í staðinn fyrir rök. Þessi till. hans byrjar þannig: „Með því að augljóst er, að frv. veldur, ef að lögum verður, vaxandi verðbólgu í landinu og framkallar jafnframt kröfur um hækkandi laun annarra launþega.“ Þetta eru fullyrðingar, en ekki rök. Að vísu má segja, að kaupgeta þessara manna, sem hér fá launahækkun, vaxi og þar af leiðandi geti þeir varið meiru til vörukaupa, en þetta eru ekki svo margir menn, að ég hugsa, að það hafi ekki mikil áhrif um verðbólgu í landinu. Hitt er aftur alrangt, að þetta geti á sanngjarnan hátt framkallað kröfur um hækkandi laun annarra launþega, þar sem frv. er beinlínis afleiðing af þeim kauphækkunum, sem aðrir launþegar hafa þegar fengið.

Hv. 1. þm. N-M. spurðist fyrir um það, hvort meiningin væri að fella niður ákvæði gildandi launalaga viðvíkjandi húsnæði, jarðarafnotum og öðrum hlunnindum, sem sumir opinberir starfsmenn hefðu, en aðrir ekki. Þetta fellur að vísu niður úr launalögunum, ef frv. verður samþ,, enda er það óþarft, því að þau hin sömu ákvæði, sem um þetta eru í gildandi launalögum, eru komin í önnur lög, sem eru lögin um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Þar stendur í 22. gr. þeirra laga: „Þegar einhver hluti launa er greiddur í fríðu, svo sem jarðarafnotum, húsnæði, ljósi, hita, fæði og öðru, skulu þessi hlunnindi metin árlega af yfirskattanefnd í því umdæmi, sem starfsmaður er búsettur í, og matsverðið dregið frá heildarlaununum.“ Og svo eru nánari ákvæði um það, að skjóta megi matinu til æðra stigs.

Ég get tekið undir það, sem hv. 1. þm. N-M. sagði um, að það væri óviðkunnanlegt, þegar um mikilsverð mál væri að ræða, að sú deild, sem hefur málið síðar til meðferðar, sé svo að segja sett upp við vegg og eigi ekki annars kost vegna tímaleysis en annaðhvort að samþykkja málið óbreytt eða fella það, eins og hér á sér stað. Það er rétt, sem hann sagði, að ég hef oft vítt þetta, því að þetta hefur oft komið fyrir áður. En það gegnir töluvert öðru máli nú en um ýmis frumvörp, sem svo hefur staðið á um áður, sökum þess að sú nefnd deildarinnar, sem um þetta mál átti að fjalla, vann að athugun málsins með n. í fyrri deildinni algerlega, og þess vegna hefur málið fengið eins mikla athugun í n. hér í d. og það hefði annars fengið að öllum líkindum. Og hvað einstaka hv. þingmenn snertir, þá hafa þeir auðvitað haft nægan tíma til þess að kynna sér málið og ákvarða sig um það, hvort þeir væru með því eða móti, og eins um einstök atriði, því að nokkuð er langt síðan frv. lá hér fyrir með ýtarlegri grg.

Ég get játað það, að ég hefði nokkra tilhneigingu til þess að taka undir sumar af till. hv. 4. þm. Reykv., en af þeim ástæðum, sem ég hef þegar greint í framsöguræðu minni, tel ég þó ekki ráðlegt að vera að breyta frv. En þess vil ég geta í sambandi við þetta, að það er talinn vera nokkur munur á pósti og síma. Símamenn þurfa sérstakt nám til þess að geta innt sitt starf af hendi, en póstmenn þurfa ekki, svo að ég viti til, annað en sæmilega góða almenna menntun, sem símamennirnir þurfa líka að hafa, áður en þeir leggja út í sérnámið, og annað það, að starfið við póstinn er meira almenns eðlis, þannig að menn, sem vinna við póstinn, geta miklu frekar komizt í önnur störf, ef þau bjóðast og þeir hafa löngun til eða álíta kjör sín betri með því móti, en símritarar og símamenn hafa það miklu síður. Þetta voru þau rök, sem fram voru færð í n. fyrir að gera þarna mun á. En þó finnst mér, hvað sem um þetta má segja að því er snertir símritara og aðra fagmenn í símanum og svo aftur póstmenn, að þá geti þessi rök ekki gilt að því er snertir sendisveina, hvort heldur sendisveina símans eða bréfberana. Þar finnst mér vera um ákaflega lík störf að ræða. En eins og hér hefur verið tekið fram af öðrum, þá verða aldrei sett svo launalög, að einhver smíðagalli sé ekki á.

Hv. 2. landsk. þm. þarf ég ekki að svara, það gerði hæstv. dómsmrh. nægilega og benti á þær veilur, sem í hans röksemdafærslu voru. Benda má á það í þessu sambandi, þar sem honum finnst, að þeir lægst launuðu hafi ekki fengið mikla réttingu sinna mála, að allmargir þeirra eru færðir í hærri launaflokk, og lægsti launaflokkurinn, sem er í núgildandi lögum, er nú með öllu afnuminn, enda talið, að það hafi engir í seinni tíð tekið laun samkv. honum.