16.12.1955
Efri deild: 31. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 210 í B-deild Alþingistíðinda. (183)

86. mál, laun starfsmanna ríkisins

Brynjólfur Bjarnason:

Herra forseti. Aðeins nokkur orð út af orðum hæstv. menntmrh. — Hæstv. menntmrh. sagðist ekki bera á móti því, sem ég sagði í minni ræðu, að á einhverju stigi málsins í samningunum við verkalýðsfélögin í vor hefði verið léð máls á því af hálfu verkalýðsfélaganna að afnema ekki vísitöluskerðinguna með öllu gegn einhverjum öðrum fríðindum. Þetta er ekki rétt, og vegna þess að þetta mál hefur verið mikið notað í áróðri, þá tel ég nauðsynlegt, að þetta komi skýrt fram. Það var allan tímann lýst yfir af hálfu verkalýðsfélaganna, að það væri ekki þeirra krafa, að vísitöluskerðingin yrði afnumin með öllu, hversu há sem launin væru, og það var ekki krafizt neinna fríðinda á móti. Því var blátt áfram lýst yfir, að verkalýðsfélögin hefðu ekki áhuga á því, að vísitöluskerðingin á hæstu laununum yrði afnumin. Ég man, að það var sagt margsinnis, að verkamenn stæðu ekki í 5–6 vikna verkfalli fyrir hálaunamenn ríkisins og að verkamenn þvægju hendur sínar af allri ábyrgð á því, að sú ráðstöfun yrði gerð, sem verið er að gera nú. En þá brá bara svo undarlega við, að atvinnurekendur vildu ekki láta afnema vísitöluskerðinguna með öllu, og það bar ekki á öðru en að ríkisstj. væri á sama máli. Það er því hrein firra, að afnám vísitöluskerðingarinnar á hálaunum sé afleiðing af verkföllunum í vor. Ríkisstj. var í lófa lagið að koma því inn í samningana, að vísitöluskerðingin skyldi haldast á háu laununum, en hún vildi það ekki, og ég held, að hún hafi ekki viljað það vegna þess, að þá þegar var ákveðið að nota samninginn, sem gerður var, sem tilefni til stórhækkunar á launum mestu hálaunamannanna.

Þá fór hæstv. ráðh. að tala um launakjör í Sovétríkjunum og af lítilli þekkingu eins og fyrri daginn, en nú bregður bara svo við, að hann telur hina vondu bolsévika til fyrirmyndar. Nú er fjarri því, að ég vilji afnema allan launamismun, slíkt er ekki hægt í auðvaldsþjóðfélagi og ekki heldur í sósíalistísku þjóðfélagi og allra sízt á hinu fyrsta skeiði þess, og það var ekki heldur það, sem um var að ræða. Hins vegar held ég, að það sé mjög fjarri því, að launamismunurinn hér á landi sé í nokkru samræmi við það, sem menn leggja af mörkum.

Nú er það svo, að kaup almennra verkamanna fyrir átta stunda vinnudag hrekkur hvergi nærri fyrir brýnustu nauðsynjum manna, sem hafa nokkuð stóra fjölskyldu. Ef það er nú rétt, að þjóðfélagið hafi ekki ráð á því að greiða verkamönnum laun, sem eru nauðsynleg til framfærslu 5 manna fjölskyldu, hvernig hefur þá hið sama þjóðfélag ráð á því að greiða öðrum margföld verkamannalaun, sumum allt að 100 þús. kr. á ári og oft miklu meira, þegar öll fríðindi og aukagetur eru reiknaðar með? Ef þjóðfélagið átti að farast vegna þess, að hinir lægst launuðu fengu 10% hækkun í vor, hvernig getur þá hið sama þjóðfélag haft ráð á því að hækka laun hinna hæst launuðu um allt að 40% og raunar í sumum tilfellum um yfir 50%, þegar öll kurl koma til grafar? Hvernig hefur þjóðfélag, sem ekki hefur ráð á að hækka laun hinna lægst launuðu um 3000 kr. á ári eða rösklega það, ráð á því að hækka laun hinna hæst launuðu um yfir 30 þús. kr. á ári?