27.10.1955
Neðri deild: 11. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 462 í C-deild Alþingistíðinda. (1835)

30. mál, hvíldartími háseta á botnvörpuskipum

Flm. (Gunnar Jóhannsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur nú fyrir til 1. umr. og er á þskj. 30, er flutt af þm. Sósfl. í tíunda sinn hér í hv. deild. Rökin fyrir frv. þessu hafa margoft verið sett fram, bæði í ræðu og riti, utan þings og innan, og nú siðast í allýtarlegri meðfylgjandi grg., sem er að mestu óbreytt frá því, sem áður hefur verið. Í grg. er saga málsins að nokkru rakin, frá því að frv. var fyrst flutt hér á Alþingi.

Ég mun nú í stuttu máli draga saman það helzta, sem grg. bendir á úr sögu málsins á Alþ. og utan þess.

Á sumarþinginu 1942 var frv. fyrst flutt. Flm. þess var þá einn af þm. Sósfl., þáverandi 2. landsk., Ísleifur Högnason. Sjútvn. fékk frv. til meðferðar, en nefndin sá sér þá ekki fært að afgreiða málið, og dagaði frv. uppi í þinginu.

Næst var frv. flutt á þinginu 1946 af tveimur þm. Sósfl., þeim Hermanni Guðmundssyni og Sigurði Guðnasyni. Aftur fékk sjútvn. málið til meðferðar. Þá tók nefndin málið til umr. á fundi sínum fyrir atbeina fulltrúa Sósfl. í n. Nefndin tvíklofnaði um málið, fulltrúar Sjálfstfl. og Framsfl. lögðu til, að frv. yrði fellt, fulltrúi Alþfl. taldi sig ekki tilbúinn til að taka afstöðu til málsins, en fulltrúi Sósfl. studdi frv. og lagði til, að það yrði samþykkt. En það merkilega gerðist þrátt fyrir þetta, að d. láðist að afgreiða frv., og enn dagaði málið uppi á því þingi.

Á þinginu 1947 fluttu sömu þm. frv. í þriðja sinn, en þá höfðu yfir 400 starfandi togarasjómenn samþykkt áskorun um að samþykkja frv. Sams konar áskoranir höfðu þá borizt frá þingi Alþýðusambands Íslands árið 1946 og áskoranir frá fjölda verkalýðsfélaga víðs vegar um allt landið. Andstæðingar frv. á Alþingi virðast hafa verið í töluverðum vanda staddir. Þeim hefur ekki fundizt það vera sérlega heppilegt að ganga beint á móti málinu og þar með á móti eindregnum vilja sjómannanna sjálfra og samþykkt Alþýðusambandsins og verkalýðsfélaganna. Það varð að finna út einhverja krókaleið. Fulltrúar Sjálfstfl. og Framsóknar í sjútvn. fundu leiðina. Nú lögðu þeir til, að frv. yrði vísað til ríkisstj. gegn loforði hennar um að athuga málið sjálf eða skipa nefnd til að athuga það. Fulltrúi Alþfl. í n. lýsti sig sammála þessari afgreiðslu. Fulltrúi Sósfl. var einn nm. fylgjandi frv. og lagði til, að það yrði samþykkt. Málinu var svo vísað til ríkisstj. í marzmánuði 1948.

Þremur mánuðum síðar skipaði þáverandi fors.- og félmrh., Stefán Jóh. Stefánsson, sex manna nefnd til að endurskoða gildandi löggjöf um hvíldartíma háseta á togurum. Tveir nm. voru skipaðir án tilnefningar, tveir tilnefndir af Sjómannafélagi Reykjavíkur og Sjómannafélagi Hafnarfjarðar og tveir af samtökum togaraeigenda.

Þm. Sósfl. voru á móti slíkri meðferð málsins. Þeir bentu á, að störf n. yrði til einskis annars en að tefja framgang þess um ófyrirsjáanlegan tíma, enda kom það á daginn. Í rúmt ár var nefndin að velta málinu fyrir sér, og að lokum klofnaði nefndin í þrennt. Fulltrúar sjómanna lögðu að sjálfsögðu til, að lögboðin yrði 12 klst. hvíld á togurunum. Fulltrúar útgerðarmanna lögðu hins vegar til, að frv. um slíka lögfestingu yrði fellt, en stjórnskipuðu fulltrúarnir virðast enga skoðun hafa látið uppi í málinu, a.m.k. ekki opinberlega. Hlutverk sitt í nefndinni töldu þeir hafa verið og hefði átt að vera að bera sáttarorð á milli fulltrúa sjómanna og útgerðarmanna, það hefðu þeir gert, en án árangurs.

Eftir að n. hafði lokið störfum haustið 1949, var frv. enn flutt snemma á næsta þingi. Meiri hluti sjútvn. lagði þá til, að málið yrði afgreitt með rökstuddri dagskrá þess efnis, að eðlilegt væri, að sjómenn semdu sjálfir við útgerðarmenn um kjör sín. Meiri hluti Nd. samþykkti þessa afgreiðslu málsins.

Nú gerist það, að sjómenn tóku málið í sínar hendur, og eftir margra vikna verkfall tókst þeim að fá í gegn 12 klst. hvíld á saltfisksveiðum, en gömlu vökulögin giltu eftir sem áður varðandi ísfisksveiðar. Í fimmta sinn fluttu sósíalistar frv. þetta á Alþ. 1950 og í sjötta sinn 1951, alltaf gegn sömu andstöðu meiri hlutans á Alþingi. En togarasjómenn voru ákveðnir í því að halda baráttunni áfram, og eftir langvarandi verkfali unnu sjómenn sigur í málinu. 12 klst. lágmarkshvíld háseta var tryggð með samningum við togaraeigendur á öllum veiðum togaranna. Sjómenn tryggðu sér því rétt til 12 klst. hvíldar á sólarhring þrátt fyrir andstöðu Alþingis gegn þessu mikla hagsmunamáli togarasjómanna. Það hafði alltaf verið á valdi Alþingis að verða við þessari sjálfsögðu kröfu og forða þar með þjóðfélaginu frá tveim langvarandi vinnustöðvunum á togaraflotanum, sem kostuðu þjóðina milljónatugi í erlendum gjaldeyri.

Í núgildandi kjarasamningum togarasjómanna er, eins og áður hefur verið bent á, tryggður réttur til 12 klst. hvíldar á sólarhring. Þrátt fyrir það þótt svo sé, er engin trygging fyrir því, að ekki verði reynt að breyta þessu ákvæði togarasjómönnum í óhag og málið enn á ný gert þar með að hörðu deilumáli með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir báða aðila og þjóðina í heild. Fyrir þá hættu á Alþingi að girða og samræma núgildandi togaravökulög við það, sem er í núgildandi togarasamningum. Það verður að teljast furðulegt af hv. Alþingi að hafa ekki fyrir löngu fallizt á jafnsjálfsagða kröfu og sjálfsagðan rétt og þann að tryggja þeirri stétt manna, sem mest leggur á sig af flestum, ef ekki öllum stéttum þjóðfélagsins, 12 klst. hvíld á sólarhring, þegar það er þá jafnframt haft í huga, að flestar starfsstéttir þjóðfélagsins vinna ekki meira en frá 7 klst. og upp í 8 klst. Það er óhrekjandi staðreynd, að togarasjómönnum er það mjög mikið áhugamál að fá lögfesta 12 klst. hvíld á sólarhring. Verður ekki séð, að nein frambærileg rök mæli á móti því, að Alþ. verði við þessari sjálfsögðu kröfu og ósk togarasjómannanna, heldur hið gagnstæða.

Í sambandi við þetta mál er ekki úr vegi að benda á þá staðreynd, að íslenzkir sjómenn afkasta sjö sinnum meira en nokkrir aðrir sjómenn í heiminum. Þessum mönnum, sem þannig skara fram úr öllu því, sem annars staðar þekkist, hefur Alþingi Íslendinga neitað um að samþykkja löggjöf, sem tryggði þeim viðunandi hvíld við störf sín á hafi úti. Slík afstaða er með öllu óskiljanleg. Svo langt hefur verið gengið i andstöðunni á móti málinu, að meiri hluti þeirrar nefndar, sem frv. hefur verið vísað til, sjútvn., hefur mörg undanfarin þing ekki fengizt til að ræða málið á fundum í nefndinni og því siður fengizt til að skila nokkru nál. Ég verð að segja það í fullri alvöru, að slík afgreiðsla á máli eins og þessu er í alla staði óforsvaranleg, og það væri þá miklu nær, ef hv. alþm. eru á móti frumvarpinu, að fella það þá strax frá því að fara í nefnd, heldur en að samþykkja það með þeim ásetningi, að það fáist ekki afgreitt frá nefndinni.

Sósfl. hefur haldið baráttunni áfram fyrir málinu á Alþ., og hann mun halda henni áfram, þar til yfir lýkur, í fullu trausti þess, að réttur og góður málstaður sigri ætið að lokum.

Í sjöunda sinn fluttu þm. Sósfl. frv. á Alþingi 1952, í áttunda sinn 1953 og í níunda sinn 1954, en alltaf hefur farið á sömu leið sem fyrr, Alþingi hefur ekki fengizt til þess að samþykkja frv.

Nú er frv. þetta flutt hér í hv. d. í tíunda sinn. Alþingi gefst því enn á ný tækifæri til þess að sýna, hvers það metur störf þeirra manna, sem vinna hin erfiðustu og lífshættulegustu störf á höfum úti.

Það er eindregin ósk okkar, sem erum flm. að þessu frv., að það fái nú á þessu þingi fljóta og góða afgreiðslu og að frv. verði samþ. sem lög. Með því bætti Alþ. að nokkru fyrir margra ára andstöðu og óvild í garð togarasjómanna í þessu mikla hagsmuna- og menningarmáli þeirra.

Að lokum vil ég aðeins benda á, að nú nýverið áttu samtök sjómanna hér í Reykjavík 40 ára afmæli. Það væri því vel við eigandi, að hv. Alþ. sýndi samtökum togarasjómanna í Reykjavík og annars staðar þá velvild og skilning að færa þeim sem afmælisgjöf löggjöf um 12 tíma hvíld við allar togveiðar. Ég trúi ekki öðru, fyrr en á reynir, þrátt fyrir það þótt hv. Alþ. hafi sýnt vítavert skilningsleysi og andstöðu við þetta mál, en að það nú á þessum merku tímamótum samtaka sjómanna sjái sér þó fært að samþykkja þetta frv. sem lög og sýni þar með, að það kunni að meta þau miklu þjóðnytjastörf, sem sjómannastéttin vinnur í þágu þjóðfélagsins sem heildar.

Ég vil svo að lokinni þessari umr. leggja til, að málinu verði vísað til 2. umr. og sjútvn., í fullu trausti þess, að sjútvn. sjái sér nú fært að afgreiða málið og liggi ekki á því eins og undanfarin ár.