16.12.1955
Efri deild: 32. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 214 í B-deild Alþingistíðinda. (189)

86. mál, laun starfsmanna ríkisins

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Út af því, sem hv. 4. þm. Reykv. (HG) sagði, get ég ekki gefið honum neinar ráðleggingar, vegna þess að ég hef ekki náð til þess að ráðgast við hæstv. ráðh. pósts og síma. Hann verður því að gera það upp við sig, hvort hann heldur till. til streitu eða ekki.