28.03.1956
Efri deild: 104. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 557 í C-deild Alþingistíðinda. (1925)
83. mál, félagsheimili
Forseti (GíslJ):
Ég vil í sambandi við þetta mál leyfa mér að benda hv. d. á, að á þskj. 389 er samþ. í þessari hv. d. ágreiningslaust rökstudd dagskrá frá hv. fjhn. um, að lögin, sem hér eru til umr. nú, nr. 77 5. júní 1947, verði endurskoðuð á næsta ári, og í trausti þess var því máli, sem þá var til umr., sem var 45. mál þingsins, vísað frá ágreiningslaust 1 þessari deild. — Þetta þykir mér rétt að láta koma fram, áður en málið er til 1. umr. hér.