17.11.1955
Neðri deild: 20. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 561 í C-deild Alþingistíðinda. (1940)

93. mál, bifreiðalög

Flm. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Í þessu frv., sem áður hefur verið flutt á Alþingi, en er nú flutt af hv. 7. landsk. og mér, segir svo í 1. gr., að svo hjá bæjar- og sveitarfélögum sem hjá íslenzka ríkinu skuli konum greidd sömu laun og körlum við öll störf, embætti og sýslanir, sem þær gegna hjá hinu opinbera.

Í 2. gr. frv. eru sett skýr ákvæði um það, að sömu reglur skuli gilda fyrir konur sem karla, þegar starfsfólk er fært milli launaflokka í þjónustu hins opinbera.

Í 3. gr. frumvarpsins segir, að við skrifstofustörf og afgreiðslustörf, þ.e.a.s. í þjónustu viðskiptalífsins, skuli konum greitt sama kaup og körlum.

Og í 4. gr., sem tekur til hins mikla fjölda á hinum almenna vinnumarkaði, segir, að fyrir öll störf í hraðfrystihúsum og við hvers konar iðju og iðnað skuli greitt sama kaup, hvort sem vinnan sé unnin af karli eða konu. Er ætlunin, að við gildistöku þessara laga skuli þessi lagaákvæði framkvæmast þannig, að sérákvæði í samningum milli stéttarfélaga og atvinnurekenda um lægri kaupgjaldsákvæði til handa konum skuli þá falla úr gildi.

Þegar ég var enn ungur, las ég fyrirlestur eftir einn af merkustu klerkum landsins, séra Ólaf Ólafsson. Í þessum fyrirlestri, sem mun hafa verið haldinn hér í Reykjavík nokkru fyrir seinustu aldamót, ræddi hann um réttindamismun konunnar og karlmannsins í íslenzku þjóðfélagi. Hann lét þar meðal annars ræðast við gáfaða stúlku og móður hennar, og stúlkan spurði um það, hvernig á því stæði, að þegar væri skammtað, fengi hún hálfa köku, þegar bróðir hennar fengi heila köku. Góður matur fyrir börn, nýbakaðar kökur. En það var þá algengt, að telpukrakkarnir fengju hálfan skammt á móts við piltana og kvenfólkið hálfan skammt á móti karlmönnunum, vinnumönnunum. Þá var það líka í lögum, að dæturnar skyldu fá hálfan arf eftir foreldra sína móti fullum arfi bræðranna. Þá var það líka svo, að stúlkur, hversu gáfaðar sem þær voru, áttu ekki aðgang að íslenzkum skólum, sem íslenzka ríkið kostaði, höfðu þar ekki námsrétt. Svo nokkrum áratugum síðar, þegar það hafði verið lögfest, að stúlkur mættu ganga í íslenzka skóla, sem kostaðir voru af ríkisfé, var það lengi svo, að þær máttu ekki ganga undir próf í þeim sama skóla sem þær höfðu lokið námi við. Auðvitað höfðu konur á þessum tíma ekki kosningarrétt og því siður kjörgengi hvorki til sveitarstjórnar né til Alþingis, og allt þetta þótti góð latína í hinu íslenzka þjóðfélagi. Þetta fannst öllum eiga að vera svona, af því að það hafði alltaf verið svona. Og hvert var nú svarið hjá móðurinni, þegar dóttirin spurði hana um þetta, hvernig á því stæði, að hún fengi ekki nema hálfa köku, þegar bróðir hennar fengi heila? „Það er af því, elskan mín,“ sagði móðirin, „að þú ert stúlka, en hann er piltur.“ Og það var skýringin á öllu málinu.

Nú segið þið, hv. alþingismenn: Það er nú ekki til neins að vitna í þetta, því að þetta er úr liðinni tíð og svona gengur það nú ekki til lengur. Konur hafa fengið rétt til að ganga í íslenzka skóla og mega nú ganga undir próf eins og piltar, sanna þekkingu sína. Þær hafa líka fengið kosningarrétt og kjörgengi, og þeim er ekki lengur skammtað hálft kaup á við karlmenn, svo slæmt er það ekki. — Og þetta er allt saman rétt. En samt sem áður er það svo, að við fjöldamörg störf, hvort sem þau eru unnin hjá ríkinu eða bæjar- og sveitarfélögum, hjá opinberum atvinnurekanda, eða hjá einstökum atvinnurekanda, er verulegur kaupmismunur, sem ekki verður skýrður með neinu öðru en því, að það sé og skuli greitt lægra kaup konu en karli án tillits til þess, hvort hún skilar sama vinnuverðmæti og karlmaðurinn, enda er það svo, að það virðist vera nokkuð algild regla, að kvenmannskaupið sé frá 25 og upp í 40% lægra en kaup karla.

Við þurfum ekki að fara út fyrir veggi Alþingis til þess að verða þessa mismunar varir. Það er víst fjarri því, að konurnar, sem vinna hér niðri í fatageymslunni, vinni þar fyrir sama kaupi og fúslega mundi verða greitt fyrir sama starf, ef það væri karlmaður, sem rétti okkur frakka og yfirhöfn yfir borð. Og alveg eins er það auðvitað utan við veggi alþingishússins, því að Alþingi fer eftir hefðbundnum venjum og siðum, og það, sem tíðkast utan veggja alþingishússins, þykir vera í sínum fulla rétti hér innan veggja líka. Dálítill ruglingur hefur þó komizt á þessa gömlu venju við það, að endrum og eins hefur það komið fyrir, að kona hefur setið á þingbekk, og þá hefur ekki þótt hæfa annað en að borga henni sama kaup og þingfréttaritara og alþingismönnum.

Þannig er það líka í einstökum tilfellum hjá ríkinu, að þess eru dæmi, að í vel launuðum embættum, t.d. læknisembættum, hefur komið fyrir, að kona hefur tekið embættispróf og farið í slík embætti, og þá hefur íslenzka ríkið látið sér sæma að greiða kvenlækni sama kaup og karlmanni, sem gegndi læknisembættinu á undan henni, og er það auðvitað ríkinu til sóma, en ekki til vansa, En þetta eru hinar hreinu undantekningar, sem þó eru í algeru ósamræmi við hina algildu reglu.

Eins og okkur er augljóst mál, að þeir menn, sem beittu sér á móti því, að konur fengju rétt til náms í skólum og að þær fengju kjörgengi og kosningarrétt, hefðu helzt viljað, að um það sæist enginn stafur í Alþingistíðindum, og hefðu helzt viljað, að þeir hefðu aldrei beitt sér á móti þessum mannréttindum, sem nú þykja sjálfsögð, eins er ég sannfærður um, að sú tíð kemur, að þeir menn á Alþingi nú, sem annaðhvort láta sig hafa það að mæla gegn þessum mannréttindum, sem hér er farið fram á, algerum launajöfnuði kvenna og karla, annaðhvort með því að mæla gegn því eða með því að rétta upp puttana á móti því eða með því að reyna að taka þátt í því að þegja það í hel, munu síðar helzt óska þess, að þeir hefðu ekki valið sér þetta hlutskiptið, heldur stutt að því, að þessar leifar gamals ranglætis yrðu afnumdar.

Ég skal draga hér fram nokkur skýr dæmi þess, hvað enn vantar á, að menn séu búnir að vaxa sig frá hinum gamla vana og hinum gömlu fordómum á þessu sviði, með því að rifja upp, að hjá opinberum aðilum, ríkisstofnunum og bæjar- og sveitarfélögum, er konum yfirleitt haldið frá hinum betur launuðu stöðum og störfum og þær eru alls ekki fluttar milli launaflokka eftir sömu reglum og karlmenn. Þannig er það í nálega hvaða ríkisstofnun sem við komum, að þar eru konur, sem jafnvel eru búnar að vera i þjónustu þessarar stofnunar í 20–30 ár, þær eru enn í þeim launaflokkum, þar sem lægst launuðu karlmennirnir eru. Þurfum við ekki að fara nema hringinn hérna í kringum Austurvöll, í þær stofnanir, sem þar eru, til þess að geta sannfært okkur sjálfir um það á þeirri göngu.

Þegar við litum á, hvernig þessu er háttað í iðnaðinum og við alls konar iðjustarfsemi, sem er þess eðlis, að kvenmaðurinn innir af hendi sízt minna verk eða verk, sem minna er um vert en þó að karlmenn stæðu í þeirra sporum, þá er það niðurstaðan, að þar er kvenfólkið yfirleitt með um 30% lægra kaup en karlmenn.

Og á hinum almenna vinnumarkaði, þar sem ófaglærðar verkakonur og ófaglærðir verkamenn ganga að störfum, er munurinn að vísu ívið minni. Hér í Reykjavík er kaup verkakonunnar 24% lægra en kaup verkamanna. Það er kr. 7.70 í grunn hjá kvenfólkinu, en kr. 10.17 í grunn hjá karlmönnum. Og að viðbættri vísitölu er mismunurinn milli karls og konu dálítið á fimmtu krónu á hverja unna klukkustund. Röksemdin er i langflestum tilfellum þessi ein, sem Ólafur Ólafsson gat um: Þær eru konur, þeir eru karlmenn. Sé það stúlka, þá er það af því, að hún er stúlka, en drengirnir, sem vinna við hliðina á henni, eru piltar. Og þá er það ósköp eðlilegt, eins og móðirin sagði, að áliti flestra enn í dag.

Og þá skulum við líta á eitt svið þjóðlífsins, það er viðskiptalífið, og leiða hugann að því, hvernig hagað sé launum og störfum í skrifstofunum og í verzlunarbúðunum. Þar eru piltar og stúlkur að starfi, og störfin eru þess eðlis, að hver maður getur fljótlega gengið úr skugga um það, að allar líkur benda til, að stúlka rétti svipað magn af vöru fram yfir búðarborðið og karlmaður, og skrifstofustörfin eru líka þess eðlis, að allar líkur benda til, að konur með sömu menntun og þekkingu og karlmenn inni þar af hendi jafnverðmætt starf. Og þá skyldi maður ætla auðvitað, að kaupið væri hið sama við slík störf. En þótt undarlegt sé, þá er þar meiri kaupmismunur milli kvenna og karla en nokkurs staðar annars staðar í þjóðfélaginu og ákvæði um það, sem atvinnurekendur standa fast á og hafa knúið inn í samninga við stéttarfélög verzlunarmanna, að í hæst launuðu flokkunum skuli alls ekki vera neinar konur, þau störf skuli eingöngu vera unnin af karlmönnum. Ég skal taka hér nokkur atriði upp úr samningunum, sem nú eru í gildi og um þetta fjalla. Þar segir, að fyrsta flokks fulltrúi aðalbókari, fulltrúar annars flokks og bréfritarar fyrsta flokks svo og sölustjórar og aðalgjaldkerar skuli vera í hæsta launaflokki eingöngu karlar, þ.e.a.s., starfsfólkið í fjórum efstu launaflokkunum skuli eingöngu vera karlar. Það er fyrst þegar komið er niður í b-lið fjórða flokks, sem fjallar um laun aðstoðarfólks á skrifstofum, að gert er ráð fyrir bæði konum og körlum í sama launaflokki. Þetta er engin þjóðsaga. Þetta er úr hinu daglega lífi núna á árinu 1955 samkv. nýgerðum samningi atvinnurekenda og verzlunarmanna hér í Reykjavík.

Röksemdin þarna getur ekki verið önnur en eingöngu að menn séu þrælbundnir á klafa vanans og hafi ekki opin augu fyrir því, hvert gildi starfsins er, sem konur inna þarna af hendi, auðvitað nákvæmlega með sama árangri og karlmenn.

Í búðunum er þetta alveg eins. Þar geta konur komizt það hæst að vera annars flokks deildarstjórar samkv. samningunum. Og að því er launin snertir, fá stúlkur, sem eru með sérfræðipróf í viðskiptum frá Verzlunarskóla Íslands, en þar hafa þær orðið að stunda fjögurra ára sérfræðinám, lægra kaup en piltar, sem aldrei hafa í verzlunarskóla komið. Þar eru réttindi prófsins ekki einu sinni virt, ekki einu sinni lagt neitt upp úr gildi þekkingarinnar, staðgóðrar þekkingar og sérmenntunar, og það virðist mér þó vera það allra harðasta, því að ríkið hefur viðurkennt um þá, sem hafa lokið embættisprófi, að þar skuli greidd sömu embættislaun til kvenna og karla, en á þessu sviði er það ekki komið í gildi enn þá. Mér finnst, að þessu verði að breyta, og ég trúi því aldrei, að til sé nokkur maður á Alþingi Íslendinga, sem vill standa gegn því, að þessu verði breytt, og samt hef ég þreifað á því ár eftir ár, síðan þetta frv. var fyrst flutt árið 1947.

Er þetta nú kannske einhver sérkredda úr mér og okkur flm., að það eigi að vinna að því að útrýma kaupmismun kvenna og karla? Nei, það er fjarri því. Hin alþjóðlega verkalýðshreyfing leggur á það höfuðáherzlu, að þessum launamismun sé útrýmt, og hefur barizt fyrir því árum saman, og íslenzka verkalýðshreyfingin hefur átt í stríði við nálega hverja samningagerð við atvinnurekendur um að reyna að minnka kaupmismuninn milli kvenna og karla, þoka því úr því að vera helmingsmunur áður og upp í það, að það eru nú 24% mismunur. Við erum enn þá aðeins á miðri leið, og það er áreiðanlegt, að það tekur mörg ár, kannske áratugi enn þá, ef á að leysa það í baráttu milli verkalýðssamtaka og atvinnurekenda á samningagrundvellinum. Svo hart standa atvinnurekendur á móti því, að þetta réttlætismál nái fram að ganga. Á s.l. sumri voru hvorki meira né minna en háð tvö verkföll af verkakonum til þess að reyna að minnka bilið örlítið milli kvennakaups og karlakaups, og það megum við því vita alveg fyrir víst, að verkakonurnar una ekki lengur þessum skiptum og eru búnar að fá augun opin fyrir því sjálfar, að þær eru beittar rangindum, sem ekki verður við unað, og eru því einráðnar í því að knýja fast á i samningum og fylgja þeim þá auðvitað eftir með vinnustöðvunum, þegar atvinnurekendur fást ekki til að verða einu sinni við smávægilegum umbótakröfum á þessu sviði. Það má því sannarlega búast við því, að á næstunni verði ekki hvað sízt hætta á vinnustöðvun og verkföllum út af þessu ranglæti, ef atvinnurekendurnir láta ekki verulega undan síga í þessum efnum. En þá er til önnur leið til þess að komast hjá þessu, firra atvinnulífið óþægindum af þessu og ganga til móts við verkakonur í þessum efnum og kvenfólk yfirleitt, af því að það er alls staðar meira og minna ranglæti að því er snertir launagreiðslur, og lögfesta réttlætið á Alþingi. Og það er einasta leiðin, sem sæmir íslenzkri þjóð, og einasta leiðin, sem sæmir Alþingi Íslendinga, nákvæmlega á sama hátt og Alþingi Íslendinga lét sér sæma að verða einna fyrst allra þjóðþinga til þess að veita konum atkvæðisrétt og kjörgengisrétt og veita konum rétt til þess að stunda nám í íslenzkum skólum og fá tekin gild þau próf, sem þær tóku þar, eftir að þær fengu þann rétt.

En eru nokkrir fleiri aðilar, sem mark er á takandi, sem tala og láta heyra til sin í þessu máli, sem íslenzka ríkið mætti taka tillit til? Jú, þar vil ég nefna sérstaklega tvo aðila. Það er í fyrsta lagi Alþjóðavinnumálastofnunin, sem Ísland er aðili að. Hún hefur fyrir mörgum árum gert samþykkt á sínum þingum, þar sem íslenzkir fulltrúar hafa verið, og ekki, svo að mér sé kunnugt um, greitt mótatkvæði, heldur hreint og beint tekið þátt í að afgreiða þessar ályktanir um sömu laun kvenna og karla fyrir sama vinnuverðmæti. Þessi samþykkt hefur legið ár eftir ár hér hjá íslenzku ríkisstjórninni, og íslenzka ríkisstj. hefur ekki getað fullgilt hana, af því að hér er ekki launajafnrétti milli kvenna og karla, og ríkisstj. gerir sér það ljóst. Þessa jafnlaunasamþykkt kvenna og karla frá Alþjóðavinnumálastofnuninni er ekki hægt að fullgilda hér, fyrr en annað hvort hefur gerzt, að samningar hafa náðst milli verkalýðssamtaka og atvinnurekendasamtaka um sömu laun kvenna og karla eða að Alþingi Íslendinga hafi lögfest sömu laun til handa konum og körlum við öll störf hjá hinu opinbera og hjá einkaatvinnurekstrinum. Þó eru a.m.k. þrettán þjóðir búnar að fullgilda þessa samþykkt, og væri því ekkert einsdæmi, þó að Ísland gerði það einnig og hagaði málinu svo, að það væri hægt.

Þá eru Sameinuðu þjóðirnar sjálfar. Þær byggja í sinum grundvallaratriðum á því, að afmáður skuli allur mannréttindamismunur milli karla og kvenna, milli fólks af ólíkum litarhætti og með tilliti til þjóðerna. Sameinuðu þjóðirnar hljóta því að leggja fast að öllum þátttakendum sínum, öllum meðlimaríkjum, að afmá slíkan mismun, þar sem hann fyrirfinnst, og hafa þingað um launamál kvenna á þingum sínum. Einkanlega voru þar framarlega í fylkingu frú Roosevelt og núverandi ambassador Dana á Íslandi, frú Bodil Begtrup, sem störfuðu í nefndum um þessi mál og fengu fram samþykktir um það, að Sameinuðu þjóðirnar skyldu beita sér fyrir launajafnrétti kvenna og karla.

Ég geri ráð fyrir því, að íslenzka ríkisstj. vilji taka tillit til bæði Alþjóðavinnumálastofnunarinnar og Sameinuðu þjóðanna í þessu efni og taki það a.m.k. sem fullkomna bendingu um, að straumur tímans stefnir óðfluga í þá átt, að þetta gamla og hróplega misrétti verði afnumið.

Fleiri orð skal ég ekki hafa um þetta mál að sinni. Mér er ljóst, að það er eitt af þeim málum, þar sem rökum verður ekki við komið, svo að þingmenn skynji. Það virðist hingað til hafa verið frosið fyrir skilningarvitin á þeim, að því er þetta snertir, og er vonandi, að góð og mikil hláka fari i hönd, svo að það ástand breytist.

Ég vil leggja til, að þetta mál fari til hv. heilbr - og félmn., þegar umræðunni lýkur.