24.03.1956
Neðri deild: 93. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 578 í C-deild Alþingistíðinda. (1949)
94. mál, bifreiðalög
Björn Ólafsson:
Herra forseti. Hv. flm. gat þess í ræðu sinni, að talsverður dráttur hefði orðið á því í n. að afgr. frv. Það er rétt, það varð talsverður dráttur á því af þeirri einföldu ástæðu, að n. þurfti talsverðan tíma til þess að gera það upp við sig, hvort hún teldi ástæðu til, eins og sakir standa, að fylgja þeim till., sem þarna voru bornar fram, eða svipuðum till. í öðru formi. Það varð þó niðurstaða hjá n. að afgr. frv. á þann hátt, sem nú er fram komið.
Það er að sjálfsögðu ekki um það deilt, að nauðsynlegt sé að ganga eins vel lagalega frá þessum málum og unnt er til þess að forðast slys og önnur óhöpp, sem nú eru orðin mjög tíð. Við erum allir á sama máli um það. Hitt er svo annað, að menn eru ekki alveg sammála um, hvern veg beri að fara í því efni og hvaða leiðir séu heppilegastar til þess að ná þeim árangri, sem menn stefna að.
Ástæðan fyrir því, að hv. þm. Siglf. og ég höfum ekki getað átt samleið með meiri hl. n. um að bera fram þær till., sem hér liggja fyrir, er sú, að stjórnskipuð nefnd vinnur að því að endurskoða þessi lög í heild, og við teljum ekki þrátt fyrir þá brýnu nauðsyn, sem telja má á því, að breytingar verði gerðar á lögunum í því skyni að koma í veg fyrir slys og önnur óhöpp, unnið við að fara að breyta lögunum nú til bráðabirgða og að það séu ýmsar heimildir í lögum, sem vel megi notast við, ef framkvæmdar eru, þangað til þessi endurskoðun kemur fram, sem nú er verið að vinna að. Þess vegna leggjum við ekki til, að þessar till. verði samþ., teljum heppilegra, að lögin í heild verði endurskoðuð og þá einnig þessi hlið málsins, þannig að það verði gert með hliðsjón til málsins í heild og af mönnum, sem hafa aflað sér staðgóðrar þekkingar á málinu.