17.11.1955
Neðri deild: 20. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 580 í C-deild Alþingistíðinda. (1960)
98. mál, kvikmyndastofnun ríkisins
Flm. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Ásamt hv. 1. landsk. og hv. 7. landsk. flyt ég frv. á þskj. 112 um kvikmyndastofnun ríkisins.
Í þessu frv. eru nokkur nýmæli, m.a. þau, að allur innflutningur kvikmynda til landsins skuli vera á hendi ríkisins og vera annar meginþáttur í starfsemi kvikmyndastofnunar ríkisins. Aðrir meginþættir stofnunarinnar eiga að vera þessir: Að keppa að því að gera kvikmyndir að sem almennustu og þjóðlegustu menningartæki, hliðstæðu útvarpi og skólum, og í þessu skyni er kvikmyndastofnuninni ætlað í fyrsta lagi að reka kvikmyndahús sem viðast um landið, en halda uppi ferðasýningum kvikmynda, þar sem ekki eru skilyrði fyrir rekstri fastra kvikmyndahúsa; að sjá skólum landsins fyrir fræðslukvikmyndum og aðstoða þá við sýningar slíkra mynda; í þriðja lagi að vanda sem bezt val þeirra erlendu kvikmynda, sem fluttar eru inn í landið, með tilliti til þess að bægja burt síðspillandi og óþjóðhollum og menningarsnauðum kvikmyndum og velja kvikmyndirnar út frá listrænum og menningarlegum sjónarmiðum; í fjórða lagi að láta gera íslenzka texta, þ. á m. talmálstexta, við erlendar kvikmyndir, eftir því sem föng eru á, í fimmta lagi að efla innlenda kvikmyndagerð og gera íslenzkar kvikmyndir. Enn fremur er samkvæmt þessari sömu grein, 4. gr. í frv., kvikmyndastofnuninni heimilað að styrkja leiklist og hljómlist og aðrar slíkar listgreinar.
Við heyrum mjög oft talað um það, að kvikmyndir flytji hingað siðspillandi áhrif og að æskan sé í hættu vegna síðspillandi áhrifa kvikmyndahúsanna. Þetta er sjálfsagt ástæðan til þess, að þegar um það er að ræða að skattleggja kvikmyndasýningar, eru flestir sammála um, að það sé sjálfsagður hlutur að skattleggja þetta sem mest, og ár eftir ár voru svo fluttar till. hér um það af ríkisvaldinu að hækka hlutfallslega skemmtanaskatt af kvikmyndasýningum. Seinasta skref í því efni var að leggja 200% álag á þennan kvikmyndaskatt, og virtist þá vera komið inn á svipaða braut og að gera þetta að verulegum tekjustofni fyrir ríkið, líkt og áfengi og tóbak. Virtist vera litið á þetta sem svipaðan ófögnuð og verstu nautnalyf, sem alls staðar þykir heldur vont að verði almenningsneyzla.
Spurningin er, hvort það er það ákjósanlegasta fyrir menningarþjóðfélag að þrælskattleggja starfsemi kvikmyndahúsa, gera það svo dýrt, að almenningur geti ekki átt aðgang að því, og líta á þetta sem andlegt eiturlyf, eða hvort það á að gera gangskör að því, að menningargildi þeirra kvikmynda, sem fluttar eru inn i landið, aukist. Ég er eindregið þeirrar skoðunar og mínir meðflutningsmenn að þessu frv., að kvikmyndin sé ein af mestu uppgötvunum mannsandans og hafi menningargildi líkt og þegar prentlistin fannst, ef réttilega er á haldið, og það eigi því að taka þetta tæki úr þjónustu auðsöfnunar og búa svo um hnútana, að menningargildi hinna fegurstu kvikmynda nál til þjóðarinnar almennt og að hinum síðspillandi kvikmyndum sé bægt frá. Því er ekki að neita, að kvikmyndahúsin hér á landi og víðast hvar annars staðar hafa verið rekin með gróðasjónarmið fyrir augum, og þá skal engan undra það, þó að eigendur kvikmyndahúsanna leggi mest kapp á að flytja þær kvikmyndir inn, sem fá almennasta aðsókn, sem gefa þeim mesta gróðamöguleika, og þá eru það oft kvikmyndir, sem höfða til hinna lægstu hvata, og af því er allt talið sprottið um siðspillingu kvikmyndanna. En væri hægt að tryggja, að einungis væru sýndar þær kvikmyndir, sem gerðar hafa verið af mestu skáldverkum heims, meistaraverkum mannsandans, og kvikmyndir, sem sýna fólki hið fegursta, sem heimurinn á í sinum fórum, væri gildi kvikmyndahúsanna orðið allt annað. Það þarf því áreiðanlega ekki að vera eins og það er nú, að menn yfirleitt hatist við kvikmyndir og kvikmyndahús og reyni að bægja börnum sínum frá því að sækja þau. Það væri hægt að halda þannig á spilunum, að það þætti hinn þýðingarmesti þáttur í uppeldi hvers ungs manns og ungrar stúlku, að þau jafnvel færu sem oftast í kvikmyndahús.
Við flm. frv. hugsum okkur, að ríkið eigi að reka kvikmyndastofnun ríkisins, hún eigi að heyra beint undir menntamálastjórnina eins og skólar og útvarp og fyrsti þátturinn í hlutverki hennar sé að sjá um innflutning allra kvikmynda og velja þær eingöngu, eins og ég áðan sagði, út frá listrænum og menningarlegum sjónarmiðum. Ef hún flytti eitthvað inn af því kvikmyndarusli, sem nú setur meginsvip sinn á rekstur þessara stofnana, þá væri auðvitað sjálfsagt að leigja þær hærra verði til þess að draga úr notkun þeirra, en kvikmyndir með miklu menningargildi verði leigðar út ódýrar til þess að greiða fyrir sýningu þeirra og halda þeim fastar að fólkinu. Þessi stofnun á enn fremur að reka öll kvikmyndahús landsins. Hún ætti að telja það sitt aðalhlutverk að beita kvikmyndinni sem menningartæki í þjónustu allrar þjóðarinnar. Þessi stofnun ætti ekki að láta sér það nægja að reka aðeins kvikmyndahús í fjölmennustu kaupstöðum landsins, þar sem bezt eru skilyrði fyrir auðfenginn gróða af slíkri starfsemi, heldur ætti hún ekki hvað sízt að sjá um það, að fólkið úti um hinar dreifðu byggðir ætti jafngóðan aðgang að fögrum og göfgandi og fræðandi kvikmyndum og fólkið hér í miðbænum í Reykjavík. Og er þá eitt af hlutverkum þessarar stofnunar hugsað það að koma upp og starfrækja kvikmyndahús úti um allt land. Halli kynni að verða á slíkum kvikmyndahúsum, en fénu væri þó ekkert illa varið, þó að eitthvað væri tekið af gróðanum við kvikmyndahúsareksturinn í kaupstöðunum til þess að jafna menningarlega aðstöðu fólksins.
Það er líka eitt af grundvallaratriðum þeirrar hugmyndar, sem hér er borin fram, að rekstrarhagnaði þeim, sem skapast við kvikmyndarekstur ríkisins, skuli einungis varið til eflingar menningarstarfsemi þeirrar, sem stofnuninni er ætlað að hafa með höndum. Að því á t.d. að stefna að gera kvikmyndina að sem almennustu og þjóðlegustu menningartæki. Við teljum, að við merkar erlendar kvikmyndir eigi að gera íslenzka, ekki aðeins lesmálstexta, heldur einnig talmálstexta, áður en þær byrja hringferð sína út um byggðir landsins.
Það getur varla verið sársaukalaust því fólki, sem metur íslenzka tungu ofar öllum öðrum andlegum verðmætum, að sjá hér ekkert orð á móðurmálinu i fylgd með kvikmyndum, sem æskulýður landsins tileinkar sér með opnum hug og áfergju og hrifni á hverjum degi og stundum oft á dag meira að segja. Ég er hræddur um, að við yrðum stúrnir yfir því, ef prédikað væri á ensku eða hvaða erlendri tungu sem væri í kirkjunni. Og við mundum óttast, að þetta hefði spillandi áhrif á okkar tungu, væri henni hættulegt. En hvað þá um kvikmyndahúsin? Þar situr fólk hundruðum og þúsundum saman hvern dag, ekki bara á sunnudögum, og yfirleitt fólk, sem er í mótun. Það er af allt öðrum aldursflokkum en í kirkjunum. Það er fólk í mótun. Og þar sér það fyrir sér erlenda lesmálstexta og heyrir erlendar tungur, sjaldan eða aldrei íslenzkt orð með kvikmynd. Skal ég viðurkenna að fullu það gildi, sem felst í því fyrir aukna tungumálakunnáttu Íslendinga, að þetta er svona. En við það, að íslenzku vantar með þessum hinum beztu kvikmyndum, fer líka mikið af menningarlegu gildi hinna beztu þeirra fyrir ofan garð og neðan hjá unga fólkinu, og það fólk, sem ekki hefur tungumálakunnáttu, missir alveg af menningarlegu gildi hinna beztu kvikmynda.
Nei, við eigum í raun og veru ekki að sætta okkur við annað en að allar, a.m.k. beztu kvikmyndir, sem hér eru sýndar, verði sýndar með íslenzkum lesmáls- og talmálstextum. En það eru litlar eða engar líkur til, að þessi breyting verði, meðan einstaklingar reka kvikmyndahúsin. Það væri varla hægt að grípa svo inn í rekstur þeirra að skipa þeim að leggja í þennan mikla kostnað, og við vitum því, að það verður ekki gert, meðan kvikmyndahúsin eru í einstaklingsrekstri.
Eins og ég hef rétt vikið að, teljum við það eiga að vera eitt verkefna kvikmyndastofnunar ríkisins að efla innlenda kvikmyndagerð. Við teljum, að hún eigi sjálf að gera íslenzkar kvikmyndir. Sérstaklega mætti hugsa sér gerð fréttakvikmynda af merkisatburðum liðandi stundar, almennar fræðslukvikmyndir, bæði fyrir skólana og til almennrar alþýðufræðslu, kvikmyndir úr sögu þjóðarinnar, myndir úr atvinnulífinu, menningarlífinu o.s.frv. En ekki nóg með það: við teljum einnig, að kvikmyndastofnunin ætti að hafa forgöngu um kvikmyndun öndvegisskáldverka íslenzkra bókmennta að fornu og nýju. Við viljum ekki una því, að kvikmyndir af slíkum íslenzkum skáldverkum séu gerðar hingað og þangað úti í heimi við allt önnur skilyrði en þessir atburðir gerðust og þessi skáldverk sköpuðust. Til dæmis þegar Fjalla-Eyvindur, leikrit Jóhanns Sigurjónssonar, var kvikmyndað, var það gert norður á Lapplandi, en ekki á Íslandi, enda kom enginn íslenzkur aðili nálægt þeirri kvikmyndagerð, og hún er því ekki íslenzk í sinni gerð sem kvikmynd. Það er aðeins skáldverkið, sem er íslenzkt, en fært í erlendan búning.
Hér er sem sé um að ræða, að við teljum, að það eigi að verja verulegum hluta af fé kvikmyndastofnunarinnar til þess að gera kvikmyndirnar sjálfar íslenzkari. Auk þess er stofnuninni ætlað að kippa kvikmyndinni úr þjónustu auðsöfnunar og ómenningar og í þjónustu menningarstarfa. Fyrir utan þessa meginþætti í starfsemi stofnunarinnar teljum við flm., að það sé sjálfsagt, að íslenzk hljómlist og íslenzkur söngur verði eins og mögulega er hægt að koma því við látinn fylgja íslenzkum kvikmyndum, hvort sem það væru frétta- og fræðslukvikmyndir eða kvikmyndir um íslenzk skáldverk. Skapast þá í senn nýr möguleiki fyrir hina íslenzku hæfileika á þessu sviði til að spreyta sig á og íslenzk tónlist færi út um víða veröld ásamt kvikmyndinni, og gæti ég ekki ímyndað mér betri landkynningu en það hvort tveggja, ef Íslendingar tækju þetta föstum tökum.
Stjórn þessarar stofnunar höfum við hugsað okkur í höndum fimm manna kvikmyndaráðs, sem kosið væri af sameinuðu Alþingi að loknum almenum alþingiskosningum, og að öll yfirstjórn stofnunarinnar væri á hverjum tíma í höndum menntmrh. og fræðslumálastjórnarinnar.
Það væri hægt að ræða langt mál eiginlega um hvert atriði, sem kvikmyndastofnuninni er ætlað að rækja, en ég tel þess ekki þörf. Ég tel, að í grg. sé nokkuð vikið að þessum meginþáttum starfseminnar og að menn geri sér ljóst, að hér væri um það að ræða að taka kvikmyndahúsin, sem nú eru til, leigunámi eða eignarnámi og setja allan kvikmyndarekstur og allan kvikmyndainnflutning undir íslenzka ríkið, undir menntamálastjórnina.
Ég veit ósköp vel, að af góðum og gildum ástæðum mundi risa andstaða gegn þessu máli í framkvæmd, og af því að það hefur verið hikað svo lengi við að gera þetta, þá er það dýrt auðvitað að þurfa að taka núverandi kvikmyndahús, sem í einkarekstri eru, eignarnámi, greiða sanngjarnt andvirði þeirra. En þegar frv. var flutt í fyrsta sinn, voru hér bara tvö kvikmyndahús í Reykjavík, Nýja-Bíó og Gamla-Bíó, annað í eigu útlendings, hitt í eigu íslenzkra manna. Nú eru þau orðin sjö eða átta, og því lengra sem líður, án þess að aðhafzt sé í þessu máli, verður umfangsmeira og erfiðara fyrir ríkið að yfirtaka kvikmyndareksturinn. En hann er ekki í höndum réttra aðila, eins og hann er, og val kvikmynda ekki heldur, og af því leiðir, að kvikmyndin er ekki sá þáttur í menningarlífi Íslendinga, sem hún auðveldlega gæti verið. Það er ekki nægilegt fyrir menn að segja gegn máli eins og þessu, að þeir séu á móti ríkisrekstri. Hér á ríkisreksturinn við, og menn eiga að gera upp á milli þess, hvort ríkisreksturinn innir af hendi betri og jafnari þjónustu fyrir þjóðina en einstaklingsrekstur getur gert. Í þessu tilfelli er hægt að ná tvennu, sem einstaklingsreksturinn getur ekki náð, þ.e. vali kvikmyndanna út frá menningarlegum sjónarmiðum, — hinir hljóta að líta á það frá fjárhagslegu hliðinni, einkaeigendur kvikmyndahúsanna, — og svo í annan stað, að öll þjóðin geti orðið aðnjótandi kvikmynda sem menningartækis, og það hygg ég að væri kannske nokkuð þýðingarmikið til þess að jafna dálítið metin milli dreifbýlis og þéttbýlis, sem sé gæti fallið undir talið um jafnvægi í byggð landsins, og ætti kannske, ef það væri þingnefnd, að vísa þessu máli til jafnvægisnefndarinnar. En hvaða þingnefnd sem færi með málið, væri líkleg til þess að vísa því aftur til jafnvægisnefndarinnar, og veit ég þá, að sú n. mundi áreiðanlega ýta fast á, að þetta mál yrði samþ. á Alþingi. Það er einn þátturinn í flóttanum utan úr dreifbýlinu, að þar vantar aðstöðu til samkvæmis og menningarlegra skemmtana.
Ég skal ekki hafa þessi orð fleiri og legg til, að frv. verði vísað til hv. menntmn.