16.12.1955
Neðri deild: 36. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 217 í B-deild Alþingistíðinda. (197)
126. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði
Emil Jónsson:
Herra forseti. Ég skal nú ekki blanda mér í þá deilu, sem sýnilega hefur orðið á milli stjórnarflokkanna tveggja um afgreiðslu fjárl. Það má sjálfsagt færa fram rök fyrir báðum þeim skoðunum, sem þar hafa verið uppi, bæði fyrir þeirri skoðun að afgreiða fjárl. nú og eins fyrir því að fresta afgreiðslu þeirra. Hitt er auðséð og vitað hverjum manni og vitanlega hverjum alþm., að það, sem fyrst og fremst bíður úrlausnar, er að finna grundvöll fyrir því, að framleiðslan geti gengið áfram. Við heyrum þó nú úr mörgum áttum, að bæði bátaútvegurinn og alveg sérstaklega togaraútvegurinn eigi svo í vök að verjast, að eitthvað verði að gera til þess að bæta þar úr, og má vel svo fara, að þær úrbætur, sem fundnar verða, kynnu að kosta ríkissjóð aðgerðir, sem vel mætti hugsa sér að kæmu á einhvern hátt við afgreiðslu fjárl.
En það, sem gaf mér sérstaklega tilefni til þess að standa upp, er það, að mér finnst það alveg fráleitt, þar sem vitað er og á vitorði allra þm., að ég hygg, að ríkisstj. hefur haft starfandi n. hinna færustu sérfræðinga til að kynna sér, hvernig þessi mál standa, að þá skuli þm. ekki vera látin í té nein vitneskja um það, hver hefur orðið niðurstaða þessarar nefndar. Hið fyrsta skilyrði til þess að geta myndað sér skoðun um afgreiðslu málanna er þó það, að einhverjar upplýsingar séu fyrir hendi um það mál, sem leysa skal.
Ég vildi því mjög eindregið fara þess á leit við hæstv. ríkisstj., að hún léti þm. í té þær upplýsingar, sem komið hafa fram við rannsókn hagfræðinganefndarinnar. Það gæti sjálfsagt orðið þm. einhver vísbending til að finna úrræði. Mér er að vísu ljóst, að náttúrlega mæðir mest á hæstv. ríkisstj. um að finna úrræði til þess að leysa málið. En hitt má þó vera, og að öllum líkindum verður ekki hjá því komizt, að til kasta Alþ. kunni að koma og það þurfi að fjalla um málið. Eina ráðið til þess, að þm. geti myndað sér um það rökstudda skoðun, er vitaskuld að fá sem nákvæmastar upplýsingar um ástandið.
Um þessa greiðsluheimild, sem hér liggur fyrir, er vitaskuld ekkert að segja. Hún hlýtur að verða samþykkt og allir alþm. að vera henni samþykkir til bráðabirgða, svo að um það er enginn ágreiningur.
Ég heyrði það á hv. 2. þm. Reykv. og vissi raunar áður af bréfi frá honum, að hann hafði talið réttara, að þinghléi yrði frestað, þangað til þessi mál væru leyst. En ég sé ekki, einmitt í dag, að málin séu á því stigi, að aðgerða Alþ. sé þar að vænta, heldur mætti svo fara, að þau væru einmitt komin á það stig, þegar Alþ. er ætlað að koma saman á ný. Hins vegar hefur ríkisstj. alltaf möguleika til þess að kalla Alþ. saman aftur, ef þess þykir við þurfa. En ég vil aðeins ítreka þá ósk mína og leggja á það ríka áherzlu, að alþm. verði gefinn kostur á að fylgjast með og fá þær fyllstu upplýsingar um þessi mál, sem til eru.