15.03.1956
Neðri deild: 87. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 617 í C-deild Alþingistíðinda. (1974)

112. mál, kaup og útgerð togara til atvinnuframkvæmda

Sigurður Bjarnason:

Herra forseti. Góðir hlustendur. Hv. ræðumenn Alþfl. og kommúnista í þessum umræðum hafa látið sem þeim sé sérstaklega annt um heilbrigðan rekstur framleiðslutækja Íslenzks sjávarútvegs. En þeir hafa ekki skýrt frá því, f hverju skilningur þeirra á þörfum útvegsins hafi verið fólginn, hvernig þeir hafi sýnt hann á undanförnum árum. Ég mun taka það mál lítillega til meðferðar síðar í ræðu minni, en það er flestum landsmönnum kunnugt, að bæði kommúnistar og Alþýðuflokksmenn hafa gerzt berir að fullkomnum fjandskap við þennan aðalbjargræðisveg þjóðarinnar.

Um það mun naumast deilt, að þeir stórfelldu fólksflutningar, sem átt hafa sér stað frá sveitum og sjávarþorpum um land allt til hinna stærstu kaupstaða, hafi haft óheppileg áhrif á þjóðarbúskap Íslendinga. Enda þótt þeir hafi að nokkru leyti átt rætur sínar í gerbreyttum atvinnuháttum og fjölbreyttari verkaskiptingu þjóðarinnar, hafa þeir þó einnig haft í för með sér, að því fólki hefur fækkað, sem stundar framleiðslustörf, en á afrakstri framleiðslunnar hlýtur lífsafkoma þjóðarinnar að byggjast í bráð og lengd. Við hina miklu fólksfækkun í mörgum byggðarlögum landsins hafa almenningi þar skapazt ýmiss konar erfiðleikar. Það hefur orðið erfiðara að hrinda í framkvæmd ýmiss konar nauðsynlegum umbótum á sviði efnahags- og félagsmála, og fólksfækkunin hefur víða skapað vantrú á framtíðina, ekki sízt meðal æskunnar. Hinu ört vaxandi þéttbýli og þá fyrst og fremst höfuðborginni hafa einnig skapazt víðtæk vandkvæði vegna þessara fólksflutninga. Reykvíkinga hefur skort íbúðarhúsnæði, skóla og sjúkrahús til þess að geta fullnægt þörfum sínum, enda þótt hvergi hafi verið unnið jafnötullega að alhliða uppbyggingu og einmitt þar. En til Reykjavíkur hefur fólkið viljað flytja, vegna þess að þar voru atvinnuskilyrðin bezt, lífsþægindin mest og möguleikarnir fjölbreytilegastir til þess að heyja lífsbaráttuna með góðum árangri.

Meginstefna okkar sjálfstæðismanna í þessum málum hefur verið sú, að öruggasta leiðin til þess að skapa nauðsynlegt jafnvægi í byggð landsins væri að koma á sem mestu samræmi milli lífskjara fólksins í þéttbýlinu og í strjálbýlinu. Við höfum bent á, að þýðingarlaust væri að ætla sér að loka Reykjavík með lagaboðum, enda þótt raddir hafi um skeið verið uppi um það. Það er lögmál lífsins, að fólkið vill vera þar, sem mest er gert fyrir það, þar sem það nýtur mikilla þæginda og þar sem það hefur góða aðstöðu til þess að bjarga sér. Sjálfstfl. hefur þess vegna lagt megináherzlu á baráttuna fyrir því að bæta aðstöðu fólksins úti um land í lífi þess og starfi. Einn þátturinn í þeirri baráttu er uppbygging atvinnulífsins á þeim stöðum, þar sem góð lífsskilyrði eru fyrir hendi. Það er skoðun okkar sjálfstæðismanna, að enda þótt samfærsla byggðarinnar sé eðlileg á víssum stöðum á landinu, þá verði þó gæði Íslands og möguleikar því aðeins fullnytjaðir, að meginhluti hins byggilega hluta þess sé byggður og þar haldið uppi starfi og framleiðslu. Í samræmi við þessa meginskoðun Sjálfstfl. hefur hann á undanförnum árum haft forustu um stærstu skrefin, sem stigin hafa verið til þess að byggja upp blómlegt atvinnulíf i öllum landshlutum og tryggja fólkinu þar öryggi um lífsafkomu sína. Tel ég rétt að rifja þær ráðstafanir lauslega upp í sambandi við það frv. um kaup og útgerð togara, sem hér liggur fyrir til umræðu.

Í lok síðustu heimsstyrjaldar var svo að segja allur togarafloti þjóðarinnar gerður út frá Reykjavík. Hafði svo verið lengstum, frá því að togaraútgerð hófst í landinu. Þegar formaður Sjálfstfl., Ólafur Thors, núverandi hæstv. forsrh., myndaði ríkisstj. á morgni lýðveldisins, haustið 1944, var nýsköpun atvinnulífsins til lands og sjávar höfuðatriði stefnu hennar. Í samræmi við málefnasamning stjórnarinnar var stórum hluta þeirra gjaldeyrisinneigna, sem þjóðin hafði eignazt á stríðsárunum erlendis, varið til þess að endurnýja togaraflotann og kaupa rúmlega 30 ný botnvörpuskip til landsins. Þessum nýju og fullkomnu skipum var síðan úthlutað til byggðarlaga í öllum landshlutum. Í næstu ríkisstjórn, sem Sjálfstfl. tók einnig þátt í undir forsæti þáverandi formanns Alþfl., Stefáns Jóh. Stefánssonar, var síðan samið um kaup á 10 nýjum togurum í viðbót. Fyrir forgöngu sjálfstæðismanna var bæði hlutafélögum, einstaklingum og bæjarfélögum víðs vegar um land gert kleift að kaupa þessi skip og hefja útgerð þeirra. Í dag er útgerð þessara skipa þannig háttað, að af 44 togurum, sem þjóðin á, eru aðeins 17 gerðir út í Reykjavík og 27 úti á landi.

Það er ómaksins vert að minnast á það í þessu sambandi, hvernig Framsfl. brást við, þegar sjálfstæðismenn hófust handa um kaup og innflutning þessara nýju og stórvirku framleiðslutækja. Hann reyndi á alla lund að gera þau tortryggileg og ógna þjóðinni með því glapræði, sem væri verið að fremja með öflun þessara framleiðslutækja til landsins. Einn af þm. Framsfl., hv. þm. V-Húnv., Skúli Guðmundsson, lýsti hinum nýju skipum þannig í þingræðu, að fyrst væri spýta, svo væri spýta og svo væri spýta í kross, svo væri spýta upp og svo væri spýta niður og svo færi allt í ganginn. En sannleikurinn væri þó sá, sagði þessi hv. þm. brosandi, að fullkomin hætta væri á því, að hin nýju skip færu aldrei í ganginn. Virtist sú tilhugsun vera hv. þm. síður en svo ógeðþekk. Annar hv. þm. Framsfl. og einn af aðalleiðtogum hans kallaði nýsköpunartogarana „gums“. Sjálfur vinstri höfðinginn, sem aldrei segist hugsa um sérhagsmuni, hv. þm. Str., Hermann Jónasson, lýsti því einnig yfir í ræðu, að nýsköpunartogararnir væru ókaupandi, og réðst harðlega á Sjálfstfl. fyrir að hafa forgöngu um þessi skipakaup. Framsóknarflokkinn hefur áreiðanlega oft iðrað þessara orða leiðtoga sinna, og það mátti m.a. heyra á ræðum hv. þm. flokksins, sem töluðu hér á undan mér í kvöld.

Öll þjóðin fagnaði hinum nýja tíma, sem sigldi í höfn með nýsköpunartogurunum, og þúsundir manna um land allt hafa undanfarin ár notið góðrar atvinnu við rekstur þeirra og verkun afla þeirra í fiskiðjuverum og hraðfrystihúsum. Ég hika ekki við að fullyrða, að þessi aukning togaraútgerðarinnar í kaupstöðum og sjávarþorpum í öllum landshlutum sé raunhæfasta sporið, sem stigið hefur verið til atvinnubóta við sjávarsíðuna á Íslandi og til uppbyggingar atvinnulífsins í þeim landshlutum, sem fengið hafa hin nýju tæki. Í byggðarlögum, þar sem áður ríkti oftlega tímabundið atvinnuleysi, hefur hin nýja togaraútgerð gerbreytt atvinnuskilyrðunum til hins betra. Hagnýting afkastamöguleika hraðfrystihúsa og fiskiðjuvera hefur verið stórbætt. Í stað þess, að þessi framleiðslutæki, sem atvinna almennings við sjávarsiðuna byggist fyrst og fremst á, stóðu oft ónotuð vegna hráefnisskorts, hefur vinnsludögum þeirra nú fjölgað stórlega. Það veldur naumast ágreiningi, að þessi þróun stefnir í rétta átt. Við verðum að leggja allt kapp á að fullvinna sjávarafla okkar innanlands. Með því verður útflutningsverðmæti hans í senn meira og meiri og öruggari atvinna skapast fyrir almenning í landinu. Það er eitt af hinum stóru verkefnum framtíðarinnar að byggja hér upp fullkominn fiskiðnað, sem geri þann fisk, sem íslenzkir sjómenn afla, eins verðmæta og útgengilega vöru og frekast er kostur. Hljótum við þá jafnframt að hafa í huga að auka fjölbreytni þessa iðnaðar og láta ekki við það eitt sitja að hraðfrysta fiskinn, salta og herða, heldur koma hér á fót fullkomnum niðursuðuiðnaði með svipuðum hætti og Norðmenn, Bandaríkjamenn, Þjóðverjar og fleiri þjóðir hafa gert með góðum árangri.

Jafnhliða því, sem nýsköpunarstjórnin hafði forgöngu um kaup hinna nýju togara og dreifingu þeirra út um land, vann hún að stórkostlegum framkvæmdum á sviði síldariðnaðarins. Afköst síldarverksmiðjanna á Norðurlandi voru margfölduð. En vegna þeirrar hörmulegu staðreyndar, að síldveiði hefur brugðizt fyrir Norðurlandi s.l. 10 ár, hefur þessi uppbygging síldariðnaðarins ekki komið að tilætluðum notum. Hinar nýju verksmiðjur hafa staðið þögular ár eftir ár, og þjóðarbúið og útgerðin hafa beðið við það afhroð, sem reyndar sætir furðu að ekki skuli hafa haft enn geigvænlegri afleiðingar en raun ber vitni. Einn af fróðustu mönnunum um íslenzk sjávarútvegsmál hefur reiknað út, að aflabresturinn á síldveiðunum fyrir Norðurlandi hafi haft í för með sér milli 2 og 3 þúsund millj. kr. tap fyrir sjávarútveginn og þjóðina í heild. Er þetta gífurlega tjón ein af ástæðum þess, hversu illa er nú komið fyrir sjávarútveginum.

Þá hefur á tímabilinu frá 1946 til ársloka 1954 verið tekinn í notkun 201 nýr þilfarsbátur. Hafa 74 þeirra verið smíðaðir innanlands, og er smálestatala þeirra 2977 brúttólestir. Frá útlöndum hafa verið keyptir 137 vélbátar á þessu tímabili, og er smálestatala þeirra 10193 brúttólestir. Samtals gerir þessi aukning bátaflotans 13170 brúttólestir. Nærri öll þessi aukning bátaflotans hefur farið til verstöðva úti um land. Hér í Reykjavík hafa undanfarin ár aðeins verið gerðir út innan við 20 vélbátar á hverri vetrarvertíð.

Það er skoðun okkar sjálfstæðismanna, að þrátt fyrir þessa miklu aukningu framleiðslutækjanna við sjávarsíðuna s.l. áratug bresti enn mikið á það, að einstök byggðarlög og jafnvel heilir landshlutar séu nægilega vel á vegi staddir með framleiðslutæki til þess að geta tryggt íbúum sínum örugga, varanlega atvinnu og lífvænlega afkomu. Þingmenn flokksins hafa þess vegna á síðustu árum flutt frv. og till. um víðtækar ráðstafanir til öflunar nýrra framleiðslutækja og aukningar framleiðslunni. Leyfi ég mér að drepa hér lauslega á nokkrar þeirra.

Haustið 1952 fluttu sjálfstæðismenn ásamt nokkrum þm. Framsfl. till. til þál. um undirbúning heildarframkvæmdaáætlunar í þeim tilgangi að skapa og viðhalda jafnvægi í byggð landsins. Var sú till. samþykkt og ríkisstj. falið að hefja undirbúning að heildaráætlun um framkvæmdir í þeim landshlutum, sem við erfiðasta aðstöðu búa sökum erfiðra samgangna og skorts á raforku og atvinnutækjum. Skyldu slíkar framkvæmdir stefna að því, að skapa og viðhalda jafnvægi í byggð landsins og tryggja sem mest framleiðsluafköst þjóðarinnar.

Ég játa hiklaust, að okkur sjálfstæðismönnum hefur fundizt framkvæmd þessarar till. ganga fullseint, en mikið verk hefur þó verið unnið af sérstakri nefnd, sem skipuð var í samræmi við hana. Mikilvægra upplýsinga hefur verið aflað um ástandið víðs vegar um land og þarfir þjóðarinnar í þessum efnum. Það er og á grundvelli þessarar till., sem tvær síðustu ríkisstjórnir hafa beitt sér fyrir árlegum fjárveitingum til atvinnuaukningar á þeim stöðum á landinu, sem helzt hafa þurft á slíkri aðstoð að halda. Á árunum 1952–55, að báðum árunum meðtöldum, hefur samtals verið úthlutað tæpum 30 millj. kr. í þessu skyni. Hefur þessu fé verið varið til báta og vélakaupa, til iðjuvera, fiskverkunarstöðva, verbúða, hafnargerða og lendingarbóta, til atvinnubóta í kaupstöðum og kauptúnum og til viðhalds byggðar í nokkrum sveitum og loks til stuðnings togaraútgerðar í einu þeirra byggðarlaga, sem harðast hafa orðið úti fyrir barði aflabrestsins á síldveiðunum fyrir Norðurlandi.

Þá má geta þess, að nokkuð af greiðsluafgangi ársins 1955 hefur nú verið lagt til hliðar til jafnvægisráðstafana. Er það ætlan okkar sjálfstæðismanna, að sérstök löggjöf verði sett um það, hvernig þessu fé verði skynsamlegast varið til atvinnuuppbyggingar í þeim landshlutum, sem mesta þörf hafa fyrir ný framleiðslutæki eða endurbætur á þeim, sem fyrir eru.

Við sjálfstæðismenn höfum enn fremur á undanförnum árum flutt frv. um ráðstafanir til atvinnujöfnunar og um atvinnubótasjóð. Síðast á þessu þingi hafa þm. flokksins flutt frv., þar sem lagt er til, að ríkisstj. semji um smíði togara erlendis eða innanlands og selji þá sveitarfélögum, hlutafélögum eða einstaklingum. Er gert ráð fyrir, að hið opinbera veiti svipaðan stuðning til þessara skipakaupa og gert var, þegar nýsköpunartogararnir voru keyptir til landsins.

Loks vil ég geta þess, að á s.l. ári fólu núverandi stjórnarflokkar tveimur fulltrúum úr hvorum flokki, Sjálfstfl. og Framsfl., að semja frv. um útgerð togara til atvinnujöfnunar. Í uppkasti að frv., sem þessir fulltrúar sömdu, var lagt til, að á næstu þremur árum yrðu smíðuð ekki færri en 9 botnvörpuskip til útgerðar frá þeim stöðum, þar sem atvinnu skorti og sjávarafla til vinnslu eða verkunar í fiskiðjuverum. Var gert ráð fyrir, að einstaklingar, útgerðarfélög eða sveitarfélög yrðu aðilar að kaupum þessara skipa með aðstoð ríkisins. Þetta frv. hefur ekki enn þá verið lagt fram af hæstv. ríkisstj., en ég leyfi mér að fullyrða, að a.m.k. meðal ráðherra og þingmanna Sjálfstfl. ríkir fullur skilningur á nauðsyn þess, að slíkar ráðstafanir verði gerðar til eflingar atvinnulífinu og aukningar framleiðslunni á þeim stöðum á landinu, þar sem atvinnutæki skortir, en aðstaða er góð til togaraútgerðar.

Núverandi hæstv. ríkisstj. hefur haft í mörg horn að líta. Hún hefur átt sjö börn í sjó og sjö á landi, þar sem eru fjölþættar stórframkvæmdir í þágu sveita og sjávarsíðu. Verkefnin kalla hvarvetna að í þessu stóra og strjálbýla landi, en þjóðin er fámenn og fjármagn hennar takmarkað. Þrátt fyrir það viljum við helzt gera allt í einu. En við Íslendingar verðum að gera okkur það ljóst, að sá er sannastur framfaramaður, sem kann að miða framkvæmdir sínar við fjárhagsgetuna á hverjum tíma, en reisir sér ekki hurðarás um öxl og skapar með því kyrrstöðu eða jafnvel afturför.

Ég hef rakið hér nokkuð afskipti Sjálfstfl. af atvinnubótamálum og uppbyggingu bjargræðisveganna við sjávarsiðuna undanfarin ár. Ég hef sýnt fram á, að sú nýsköpun togaraflotans og dreifing þessara stórvirkustu framleiðslutækja til allra landshluta, sem sjálfstæðismenn beittu sér fyrir, hefur verið eitt raunhæfasta sporið, sem stigið hefur verið til þess að bæta atvinnuskilyrðin í fjölmörgum kaupstöðum og sjávarþorpum. Þó er hér aðeins um að ræða einn þátt viðleitninnar til þess að skapa og viðhalda jafnvægi í byggð landsins. En einnig á öðrum sviðum hefur Sjálfstfl. beitt sér fyrir þýðingarmiklum framkvæmdum í þessu skyni. Ræðir þar fyrst og fremst um þá rafvæðingu landsins, sem nú hefur verið hafizt handa um. Með henni verður ekki einungis þúsundum sveitabýla sköpuð aðstaða til þess að njóta nytsemdar og lífsþæginda rafmagnsins, heldur mun atvinnulífi sjávarsíðunnar skapast við það stórbætt aðstaða til þess að hagnýta afla fiskiskipa sinna og njóta öruggrar og varanlegrar atvinnu.

Þær umbætur í húsnæðismálum, sem Sjálfstfl. hefur haft forustu um, munu einnig stuðla að aukinni trú fólksins á framtíð byggðarlaga þess og skapa því aðstöðu til þess að lifa betra og fegurra lífi. Bygging nýrra félagsheimila, skóla og sjúkrahúsa víðs vegar um land er einnig framkvæmd, sem á ríkan þátt í að skapa samræmi milli lífskjara almennings úti um allt land og fólksins, sem býr í þéttbýlinu hér við sunnanverðan Faxaflóa. Og það er þetta samræmi, sem verður að nást á sem flestum sviðum, ella er hætt við því, að fólksstraumurinn haldi áfram frá framleiðslunni í strjálbýlinu til þéttbýlisins, þar sem útflutningsframleiðslan er ekki eins ríkur þáttur í daglegu starfi fólksins.

Ég mun nú víkja nokkru nánar að afstöðu Sjálfstfl. til þess, sem gera þarf í framtíðinni til þess að tryggja atvinnu og afkomu almennings við sjávarsíðuna á næstunni.

Sjálfstæðismenn telja, að nauðsynlegt sé að láta smíða innanlands eða utan nokkra togara, sem síðan verði seldir einstaklingum, hlutafélögum eða bæjar- og sveitarfélögum í þeim landshlutum, sem skortir atvinnutæki; enn fremur beri að efla vélbátaútveginn, þar sem hann hentar betur til þess að fullnægja atvinnuþörfinni og hagnýta framleiðslumöguleikana, jafnhliða þurfi að stuðla að auknum afköstum hraðfrystihúsa og fiskiðjuvera, þannig að sem mestur hluti aflans verði fullunninn innanlands.

Þá ber einnig nauðsyn til þess, að kannaðar verði nýjar leiðir til þess að byggja upp fjölbreyttari iðnað en nú tíðkast í smærri kaupstöðum og sjávarþorpum landsins. Verkaskipting þarf að aukast og fleiri stoðir að renna undir afkomugrundvöll fólksins. Enda þótt íslenzk fiskimið hafi verið gjöful, sérstaklega áður en gegndarlaus rányrkja stórspillti þeim, hefur þó aflabresturinn oft leitt bágindi og þrengingar yfir fólk sjávarsíðunnar. Það er mikið verkefni og erfitt að draga úr þeim sveiflum, sem hinir fábreyttu atvinnuhættir okkar hafa oftlega skapað í efnahagslífinu. En að þessu verkefni verður að vinna sleitulaust af framsýni og árvekni. Við megum einskis láta ófreistað til þess að hagnýta okkur reynslu annarra þjóða, sem búa við fjölbreytilegra atvinnulíf og bjargræðisvegi.

Síðast, en ekki sízt, er það eitt af stærstu viðfangsefnum dagsins í dag og á morgun að bera fram til sigurs kröfu íslenzku þjóðarinnar um alger yfirráð yfir þeim stalli í Atlantshafinu, er við nefnum landgrunnið og þetta land stendur á. Stefnan í því mikla máli hefur verið mörkuð á grundvelli raka og helgs réttar þeirrar þjóðar, sem hlaut Ísland í vöggugjöf, og frá þeirri stefnu mun aldrei verða hvikað um hársbreidd. Mikilvægum áfanga var náð með þeim friðunarráðstöfunum, sem framkvæmdar voru vorið 1952, er flóum og fjörðum var lokað og fjögurra mílna friðunarlínan ákveðin. Þessar ráðstafanir hafa þegar orðið að stórkostlegu gagni fyrir útgerðina í heilum landshlutum og þá fyrst og fremst á svæðinu frá Breiðafirði og Faxaflóa til Vestmannaeyja. En gagnvart öðrum landshlutum horfir þetta öðruvísi við. Og því miður verður að segja, a.m.k. hvað Vestfirði snertir, að ásókn botnvörpuskipa á þau mið hefur stóraukizt við það, að flóunum var lokað. Það er því eitt stærsta hagsmunamál útgerðarinnar í þessum landshlutum, að nýjar friðunarráðstafanir verði gerðar þeim til hagsbóta eins fljótt og frekast er kostur. Á sókninni fyrir þeim má ekkert lát verða.

Það má vera öllu sjálfstæðisfólki í landinu mikið gleðiefni, að það hefur komið í hlut þriggja forustumanna flokks þess að hafa forustu um þau heillaspor, sem þegar hafa verið stigin í baráttunni fyrir verndun fiskimiðanna við strendur landsins. Þessir menn eru þeir Ólafur Thors, hæstv. núverandi forsrh., Bjarni Benediktsson, hæstv. dómsmrh., og hv. þm. Vestmannaeyjakaupstaðar, Jóhann Þ. Jósefsson, fyrrv. sjávarútvegs- og fjármálaráðherra, að ógleymdum hv. þm. Borgf., Pétri Ottesen, sem fyrr og síðar hefur haldið uppi harðri baráttu í málinu. Undir forustu þessara manna voru lögin um vísindalega verndun fiskimiðanna sett árið 1948, en á grundvelli þeirra voru friðunarráðstafanirnar gerðar árið 1950 og vorið 1952. Á engum íslenzkum stjórnmálamönnum hefur það heldur mætt meira að verja rétt Íslands fyrir erlendum yfirgangi, síðan hið örlagaríka skref var stigið.

Ég held, að réttlætið sigri í þessu máli að lokum eins og flestum öðrum. Þátttaka Íslands í alþjóðlegu samstarfi og vaxandi skilningur hinnar stóru veraldar á rétti smáþjóðanna mun tryggja okkur þann sigur. En öll þjóðin verður að standa saman í baráttunni fyrir rétti sínum.

Ég hef nú rætt nokkuð hið víðtæka uppbyggingarstarf Sjálfstfl. í þeim tilgangi að skapa almenningi við sjávarsíðuna afkomuöryggi og bætta afkomu í lífi hans og starfi. Þar með hefur í stórum dráttum verið mörkuð afstaða flokksins til þess máls, sem hér liggur fyrir til umræðu og flutt er af 4 hv. þm. úr Alþfl., Sósfl., Framsfl. og Þjóðvfl. Í því felst í raun og veru ekkert nýtt annað en það, að þeir leggja til, að ríkið geri út ákveðinn fjölda togara. Við sjálfstæðismenn höfum talið skynsamlegra, að samtök einstaklinga og einstakra byggðarlaga annist slíka útgerð. Við teljum það líklegra, til þess að hún komi að fullu gagni og rekstur tækjanna nái þeim tilgangi, sem að er stefnt. Við höfum þess vegna á undanförnum árum haft forustu um stuðning ríkisvaldsins við kaup slíkra atvinnutækja til eflingar atvinnulífinu í fjölda byggðarlaga víðs vegar um land, og sjálfstæðismenn munu vinna að því, að slíkum stuðningi verði haldið áfram, eftir því sem fjárhagsgeta ríkisins leyfir á hverjum tíma.

Ég skal ekki draga f efa, að tilgangur hv. flm. þessa frv. sé góður og að þeir vilji stuðla að bættum atvinnuskilyrðum á þeim stöðum, þar sem atvinnutæki skortir. En ég get ekki varizt því að finnast það dálitið broslegt, að einmitt þessir hv. þm., sem þetta frv. flytja, skuli telja sig sérstaklega til þess bæra og kjörna að flytja frv. um skipulag togaraútgerðar í landinu.

Hv. fyrsti flm. frv., sem hóf þessar umræður hér í kvöld, 3. landsk. þm., Hannibal Valdimarsson, stjórnaði einu sinni bæjarfélagi, sem átti og gerði út togara. Það var á hápunkti stríðsgróðatímabilsins. En þessi hv. þm. var ekki í rónni, fyrr en hann og flokkur hans voru búnir að selja þennan eina togara frá Ísafirði til Reykjavíkur. Og svo glaður var hann yfir þessu afreki, að hann lofaði guð hástöfum á prenti fyrir það að hafa losað bæjarfélag sitt við togarann, og þó græddu allir á tá og fingri á togurum í þá daga. Það kom svo í hlut sjálfstæðismanna að útvega tvo nýja og fullkomna togara til þessa bæjarfélags nokkru síðar. Hafa þeir orðið byggðarlaginu og nálægum sjávarþorpum til stórkostlegra atvinnubóta. Það er ekki að furða, þótt hv. 3. landsk. þm. talaði hraustlega hér áðan um afrek sín og slóðaskap annarra í atvinnubótamálum. En þetta eru þó afskipti þessa hv. þm. af togaraútgerð til atvinnubóta úti á landi.

Hv. annar flm. frv., 9. landsk. þm., Karl Guðjónsson, er einn af forustumönnum kommúnista í Vestmannaeyjum. Hinir sósíalistísku flokkar þar efndu á sínum tíma til bæjarútgerðar tveggja togara. Ég skal ekkert um þá útgerð fjölyrða hér, en þannig var á stjórn hennar haldið af hálfu kommúnista og Alþfl., að enda þótt Vestmanneyingar séu einir beztu og harðgerðustu sjómenn landsins, varð niðurstaðan sú, að hvergi á öllu landinu tókst á jafnskömmum tíma að sökkva rekstri hinna fullkomnu skipa í hyldýpi óreiðu og úrræðaleysis. Niðurstaðan varð sú, að kommúnistum og Alþýðuflokksmönnum tókst að skapa svo algera vantrú á togaraútgerð í Vestmannaeyjum, að selja varð bæði skipin burt úr bænum. Ég veit ekki, hve nálægt hv. 9. landsk. þm. hefur komið þessari útgerð, en hann hefur um alllangt skeið verið einn aðalleiðtogi flokksins í þessu þróttmikla sjávarútvegsbyggðarlagi og hefur því áreiðanlega einnig verið nærstaddur, þegar mörkuð var stefna hans í togaraútgerðarmálum.

Það liggur við, að mér renni til rifja að minnast hér á þátt hv. þm. V-Ísf., Eiríks Þorsteinssonar, sem talaði hér áðan, í togaraútgerðarmálum, en hann er þó þriðji flm. þessa frv. Hv. þm. stjórnaði útgerð togara á Þingeyri í rúmlega eitt ár. Þeirri útgerð lauk með ósköpum daginn eftir kosningar 1953. Hún hafði þá gert sitt pólitíska gagn. Þessi útgerð hafði þó hlotið fyllstu fyrirgreiðslu, óvenjuleg stofnlán, auk bátagjaldeyrisfríðinda. En þegar henni lauk, var hún gjaldþrota og skipið talið óútgerðarhæft.

Milli Dýrafjarðar og Önundarfjarðar er ekki löng leið, aðeins Barðinn, hár og tignarlegur, stendur á milli þessara tveggja fögru fjarða. En fyrir norðan Barðann, á Flateyri, hefur útgerð þessa sama togara og annars togara til skapað mikla atvinnu undir stjórn dugandi manna og er nú ein meginástæða þess, að þar ríkir almenn velmegun.

Ég sagði áðan, að tilgangur þessara hv. þm. með flutningi þessa frv. væri sjálfsagt góður. En ég endurtek, að ég dreg í efa, að einmitt þeir séu færastir um það að ákveða skipulag á togaraútgerð Íslendinga. Í þessu sambandi er ekki heldur hægt að láta hjá líða að minnast lítillega á afstöðu stjórnmálaflokkanna til rekstrargrundvallar atvinnutækjanna almennt og þá einnig sjávarútvegsins.

Þegar hinir nýju togarar voru keyptir til landsins undir forustu sjálfstæðismanna, lögðu þeir áherzlu á, að það væri ekki nóg, að þjóðin eignaðist fullkomin og glæsileg framleiðslutæki, hún yrði jafnframt að tryggja heilbrigðan rekstrargrundvöll þeirra, skip, sem rekin væru með halla, gætu ekki til lengdar veitt mikla og varanlega atvinnu, þau hlytu að stöðvast og leggjast við landfestar. Því miður hefur þessum aðvörunarorðum ekki verið sinnt sem skyldi. Framleiðslukostnaðurinn hefur aukizt ár frá ári, og nú er svo komið, að sjálf hin nýja tækni er að lamast í höndunum á okkur vegna stórkostlegs hallarekstrar. Ríkið verður að greiða hátt á aðra millj. kr. í rekstrarstyrk til hvers togara. Einnig vélbátaútgerðin verður að fá stórkostlega aðstoð. Og þó er það sjávarútvegurinn, sem skapar nær öll útflutningsverðmæti þjóðarinnar og stendur undir eyðslu hennar.

Hv. stjórnarandstæðingar segja, að þetta sýni algert skipbrot stefnu Sjálfstfl. í efnahags- og atvinnumálum. Hefur öðrum eins þvættingi nokkru sinni verið slöngvað framan í þjóðina? Þegar hinum sósíalistísku flokkum hefur með pólitískum verkföllum og ofbeldisaðgerðum tekizt að hefja hér a ný taumlaust kapphlaup milli kaupgjalds og verðlags og brjóta niður þá jafnvægisstefnu, sem núverandi og fyrrverandi ríkisstj. beittu sér fyrir í efnahagsmálum, þá segja þeir, að stefna Sjálfstfl. hafi beðið skipbrot. Öllu lengra er ekki hægt að komast í því að snúa staðreyndum við. Það er alþjóð kunnugt, að eftir þær jafnvægisráðstafanir, sem sjálfstæðismenn beittu sér fyrir í ársbyrjun 1950, færðist íslenzkt efnahagslíf hægum, en öruggum skrefum í heilbrigða átt. Sparifjársöfnun jókst, vöruskortinum var útrýmt, svartamarkaðsbraskið hvarf, og framleiðslutækin juku afköst sín. Verðmæti útflutningsins jókst verulega, og almenn velmegun ríkti í landinu. Jafnhliða tókst að halda dýrtíðinni í skefjum. Hafa jafnvel sérfræðingar Alþýðusambands Íslands viðurkennt, að kaupmáttur launa hafi haldizt svo til óbreyttur frá árslokum 1952 til ársins 1955, er kommúnistar settu af stað nýja dýrtíðarskriðu og vægðarlaust kapphlaup milli kaupgjalds og verðlags.

Það eru þannig kommúnistar og fylgilið þeirra, sem fyrst og fremst bera ábyrgð á því, að útflutningsframleiðsla þjóðarinnar berst nú í bökkum. Það þarf töluverð brjóstheilindi hjá þessum herrum að koma nú fram fyrir þjóðina og segjast vera hinir einu sönnu stuðningsmenn og velunnarar sjávarútvegsins og atvinnulífsins í landinu yfirleitt. Velmegun almennings á Íslandi verður ekki tryggð með slíkum vinnubrögðum. Hvorki ný né gömul skip geta bætt úr atvinnuskorti, ef ekki er hægt að reka þau. Til lengdar getur þetta þjóðfélag ekki tryggt borgurum sinum betri og jafnari lífskjör en tíðkast víðast hvar annars staðar, ef kommúnistum tekst að hafa jafnmikil áhrif á þróun efnahagsmálanna og þeir hafa haft undanfarin ár. Stærsta hættan, sem steðjar að atvinnuöryggi okkar í dag, er þau tök, sem hinn alþjóðlegi kommúnismi hefur náð á nokkrum stærstu verkalýðsfélögum landsins, og sá klofningur, sem honum hefur tekizt að skapa í hinum ráðreikula og veika íslenzka jafnaðarmannaflokki.

Góðir hlustendur. Sjálfstæðisfl. hefur s.l. 17 ár, síðan hann komst til valda og áhrifa í stjórn landsins, reynt að beita sér fyrir fjölþættum umbótum og bættri aðstöðu til handa öllum almenningi. Hann hefur gert það, eins og ég sagði áðan, með því að hafa forgöngu um öflun nýrra og fullkominna atvinnutækja til handa þéttbýli og strjálbýli. Höfuðtakmark hans er, að hver hönd, sem vill vinna, fái að vinna og að fólkið njóti atvinnuöryggis og velmegunar, hvort sem það býr í höfuðborg landsins eða í sveitum, kaupstöðum og sjávarþorpum um land allt. Sjálfstfl. leggur höfuðáherzlu á, að samræming lífskjaranna við það bezta, sem þekkist í landinu, sé öruggasta leiðin til þess að stöðva fólksflutningana frá framleiðslunni til yfirbyggingar þjóðfélagsins. Við sjálfstæðismenn biðjum þjóðina aðeins að virða fyrir sér reynsluna af starfi okkar og gera sér ljós áhrif þess á lífskjör hennar og alla aðstöðu. Við treystum á heilbrigða dómgreind fólksins og biðjum það að láta ekki upplausnaröflin valda sér svartsýni. Við trúum því, að ef íslenzka þjóðin lítur raunsætt á hag sinn og mætir stundarerfiðleikum af festu og manndómi, þá getum við gengið á móti framtíðinni í bjartsýnni trú á það land, sem við eigum ein, frjáls og óháð öllum nema samvizku okkar og þeim guði, sem gaf okkur það í árdaga. — Góða nótt.