09.12.1955
Neðri deild: 29. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 657 í C-deild Alþingistíðinda. (1984)
117. mál, kaup og leigunám togara
Flm. (Gils Guðmundsson):
Herra forseti. Á þskj. 155 flytjum við þrír þm., ég, hv. 9. landsk. og hv. 3. landsk., frv. til laga um kaup og leigunám togara. Ég tel ekki ástæðu til að fylgja þessu frv. úr hlaði með langri framsöguræðu, en vil þó benda á nokkur atriði, sem við teljum að rökstyðji það, að slíkt frv. sem þetta sé flutt. Að öðru leyti mun ég vísa til grg. allýtarlegrar, sem fylgir frv.
Það er alkunna, að aðalatvinnuvegir landsmanna til sjávar og sveita eru að mjög verulegu leyti í vanda staddir og þá ekki sízt sjávarútvegurinn. Orsakirnar til þess vanda ætla ég ekki að rekja hér, þær eru mönnum kunnar, þó að menn deili nokkuð um það, hverjar meginorsakirnar séu. Það er vitanlega öllum ljóst, að það kann ekki góðri lukku að stýra og getur ekki gengið til lengdar, þegar þannig er að framleiðslunni sorfið, að hún er rekin með mjög verulegu tapi ellegar þá að henni er gert lítt kleift að starfa vegna skorts á vinnuafli.
Rekstrargrundvöllur togara er mjög erfiður, eins og sakir standa, og ber vitanlega brýna nauðsyn til að ráða þar bót á. Hvílir þar að sjálfsögðu mjög þung skylda á Alþingi og ríkisstj. Um þetta mál ætla ég þó ekki að ræða frekar í þessu sambandi, en vil aðeins leggja áherzlu á, að enda þótt þarna þurfi mjög um að bæta, tel ég, að það geri ekki óþarft það frv., sem hér er flutt, þó að úr þessu verði að nokkru bætt. Togararnir eru tvímælalaust mjög mikilvæg framleiðslutæki. Þeir hafa reynzt á undanförnum árum veruleg lyftistöng fyrir allt atvinnulíf landsmanna og leggja til gildan hluta af útflutningsframleiðslunni. Þetta eru óumdeilanlegar staðreyndir, og það haggar þeim ekkert, þótt rekstrarlegt tap verði á þessum skipum öðru hverju eða hafi verið nú um skeið á ýmsum þeirra. Það er upplýst, að útflutningsverðmæti, sem hver togari aflar með núverandi fiskverði og því fiskmagni, sem aflazt hefur undanfarna mánuði og ár, nemur 10–12 millj. á ári. Þetta er geysilega mikið, og þó að þar þurfi margar hendur að að vinna, þá er augljóst, hversu gífurlegur þáttur togararnir eru í útflutningsframleiðslunni. Það er því mikil nauðsyn þjóðinni, að þessi góðu og aflamiklu skip séu gerð út að staðaldri, og það má ekki henda, að togarar séu um lengri eða skemmri tíma látnir ónotaðir. Það er svo augljóst mál, að ég þarf ekki að fara um það mörgum orðum, að jafnvel þótt nokkurt rekstrarlegt tap sé á skipunum vegna þess, hvernig að framleiðslunni er búið og hvernig hún er mergsogin á ýmsan hátt, hlýtur þjóðinni að vera það brýn nauðsyn og verulegur hagur, að þessi afkastamiklu skip gangi að staðaldri og séu ekki stöðvuð um langan tíma. Jafnvel þótt svo vel takist til, að bættur verði rekstrargrundvöllur togara og annarra fiskiskipa, þá mun það löngum við brenna, að einstökum útgerðarfélögum eða útgerðaraðilum gengur miður en öðrum, og komið getur að því, að þeir stöðvist vegna ýmissa óhappa, sem hent getur í rekstri. Þá teljum við flm. þessa frv., að ríkisvaldið verði að grípa inn í og sjá til þess með þeim ráðum, sem tiltækilegust þykja á hverjum tíma, að togararnir, sem stöðvazt hafa, komist á veiðar aftur. Þetta er þjóðhagsleg nauðsyn.
Við bendum á það í grg. þessa frv., að það hafi komið nokkrum sinnum fyrir á undanförnum árum, að einstakir togarar hafa stöðvazt um langan tíma vegna örðugleika þeirra aðila, sem séð hafa um reksturinn. Þannig var ástatt um Vestmannaeyjatogarann Vilborgu Herjólfsdóttur fyrir um það bil heilu ári, að hún var þá ekki gerð út í allmarga mánuði, mig minnir allt að hálfu ári, og er auðreiknað það framleiðslutap, sem af því hlauzt. Nú er hins vegar þannig háttað, að einn af hinum góðu togurum okkar, togarinn Keflvíkingur, hefur legið aðgerðalaus í allmarga mánuði, og ég hef ekki frétt, að neitt bendi til þess, að neinn skriður sé að komast á það, að hann fari aftur á veiðar. Því hefur jafnvel verið fleygt, að helztu tilboðin, sem borizt hafa í þennan togara, séu frá öðru landi, Færeyingar hafi hug á því að kaupa togarann og gera hann út. Ég tel það svo fjarstætt sem nokkuð getur verið, að leyfi verði gefið til þess að selja úr landi tiltölulega nýjan og góðan togara, að ég hygg, að um þann möguleika sé óþarft að ræða. Hins vegar er það gersamlega óviðunandi, ef slíkt skip liggur aðgerðalaust mánuðum saman og jafnvel árum, eins og nú virðist horfa. Þegar svona er ástatt um einstök skip, verður ríkisvaldið að skerast í leikinn og grípa til sinna ráða til þess að koma skipunum á veiðar. Til þess eru að sjálfsögðu ýmsir möguleikar, og ríkisvaldið verður hverju sinni að gera það upp við sig, á hvern hátt það tryggir rekstur skipanna. Aðalatriðið er, að þau séu í stöðugum rekstri.
Við gerum ráð fyrir því, flm. þessa frv., að þegar togari, sem að öllu eðlilegu gæti haldið áfram veiðum, hefur ekki verið rekinn í 30 daga, skuli ríkisvaldið leita fyrir sér við eigendur um að yfirtaka skipið eða koma því á veiðar. Þetta er hugsað sem heimild. En hafi skipið hins vegar verið 60 daga ónotað, þá leggjum við til, að ríkisvaldinu sé skylt að grípa þarna inn í og leita tafarlaust samninga við eigendur skipsins um kaup þess eða leigu, náist samningar ekki innan viku, skuli ríkisstj. gera ráðstafanir til þess að taka togarann eignar- eða leigunámi.
Ákvæði eru í frv. um það, að þegar leigunámsaðferðinni er beitt, skuli við það miðað, að rekstur skipsins, meðan ríkið sér um hann, sé eigendum þess að skaðlausu, en engin leiga skuli greidd þar umfram.
Þá eru um það ákvæði í frv., að skip, sem ríkið tekur á þennan hátt til rekstrar, séu notuð fyrst og fremst til atvinnujöfnunar til þess að færa þeim stöðum úti á landsbyggðinni hráefni, þar sem möguleikar eru til fiskvinnslu, en hráefni skortir. Þetta teljum við eðlilegt að sé meginsjónarmiðið í sambandi við slík skip, sem ríkisvaldið tekur eignar- eða leigunámi til þess að tryggja rekstur þeirra.
Þá er í frv. ákvæði um það, að ríkisstj. sé heimilt að selja eða leigja þá togara, sem teknir hafa verið eignar- eða leigunámi á þann hátt, sem ég gat um, þegar tryggt er, að kaupandi eða leigjandi muni gera skipið út. Það er ekki hugmyndin með þessu frv. að koma sem mestu af togaraflotanum varanlega í ríkisrekstur, heldur er meginsjónarmiðið það, að ríkisvaldið grípi inn í, þegar aðrir hafa gefizt upp eða eru að gefast upp, og tryggi reksturinn þangað til bæir, einstaklingar, hlutafélög eða samvinnufélög gætu tekið við skipunum að nýju.
Eins og ég sagði áðan, þá lítum við flm. þannig á, að það sé brýn nauðsyn, að þessi stórvirku framleiðslutæki, togararnir, séu í stöðugum rekstri, og við sjáum ekki, að það sé öðrum skyldara en ríkisvaldinu að tryggja, að svo verði. Jafnvel þótt um nokkurt rekstrarlegt tap sé að ræða, þá er hitt tvímælalaust, að þjóðhagslega séð er það mjög mikilvægt, að togararnir geti starfað samfellt og dregið þá miklu björg í bú, sem þeir gera, ef þeim er haldið úti að staðaldri.
Ég vil svo leggja til, að þessu frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og sennilega hv. sjútvn., frekar en hv. fjhn. Það er að vísu ákvæði í frv. um lánsheimild, en þetta er nú fyrst og fremst sjávarútvegsmál. Það er að sjálfsögðu deildarinnar að skera úr því, til hvorrar n. málinu skuli vísað, en ég held, að það sé nú rétt að leggja til, að málið fari til sjútvn.