14.12.1955
Neðri deild: 32. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 664 í C-deild Alþingistíðinda. (1989)

119. mál, lífeyrissjóður togarasjómanna

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Ég skal vera stuttorður með tilliti til þess, sem forseti tilkynnti áðan. Ég vil aðeins láta það í ljós, að ég tel þetta vera gott mál, og veit það fyrir víst, að þetta er eitt þeirra mála, sem alþýðusamtökin munu standa einhuga um á næstu árum og ekki láta af að berjast fyrir, fyrr en það hefur fengið lögfestingu á A1þingi, hvort sem það verður fyrr eða síðar. Ég er þess vel vitandi, að fyrst og fremst verður litið á þetta mál sem réttindamál togarahásetanna.

Þó að hv. frsm. víki að því, að útgerðarráð á einni togaraútgerð hefði ekki tekið vel þeirri hugmynd, sem þetta frv. er byggt á, þykir mér rétt að skýra frá því hér við 1. umr. málsins, að fyrir um það bil tveimur árum átti ég viðræður við einn af forstöðumönnum bæjarútgerðarinnar í Reykjavík, og varpaði hann þá fram hugmynd, sem var ekki óáþekk þessari, en átti að miða að því að leysa þá nauðsyn togaraútgerðarinnar, að togarahásetar væru samfellt á skipunum og hyrfu ekki frá því starfi til annarra starfa inn á milli. Fyrir honum vakti að verðlauna þá togarasjómenn sérstaklega, sem væru samfellt á togurum frá ári til árs, og raunar að gera það upp við þá í lok hvers árs, þegar þeir hefðu verið samfellt á togara.

Það er vitanlegt, að í verksmiðjurekstri skiptir það mjög miklu máli, að inn á milli komi ekki óvanir menn, því að afköst þeirra eru minni og verkkunnáttan minni, getur dregið úr öllum afköstunum í verksmiðjunni, og togararekstur er í raun og veru verksmiðjurekstur. Það ríður á, að í hverju rúmi á skipi séu þaulvanir og afkastamiklir menn. Það er og staðreynd, að þetta varðar togaraútgerðina miklu máli. Þá vita og allir, að togarasjómaðurinn er í raun og veru búinn að slita út sínu líkamsþreki og sínum kröftum allt hvað hann er orðinn fimmtugur maður, og þá þarf hann að eiga það öruggt, að honum sé ekki kastað út á hjarn þjóðfélagsins, og þetta tryggingafrv. er líklegt til þess að verða mjög þýðingarmikið mál, ekki aðeins fyrir togarasjómennina, heldur einnig fyrir togaraútgerðina til þess að halda hinum beztu starfskröftum og halda starfsvönum mönnum sífellt í sinni þjónustu.

Ég mæli því áreiðanlega í nafni Alþýðusambands Íslands mjög innilega og ákveðið með þessu frv.