18.01.1956
Neðri deild: 43. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 665 í C-deild Alþingistíðinda. (1993)

131. mál, strandferðaskip

Flm. (Karl Guðjónsson):

Herra forseti. Efni þessa frv. er það, að ríkisstj. sé gefin helmild til að láta smíða nýtt strandferðaskip, 300–400 smálesta að stærð, byggt til siglinga á leiðinni Vestmannaeyjar-Reykjavík og búið tækjum til þess að flytja farþega og flutning, einnig þann flutning, sem þarf að flytjast í kælirúmi.

Í frv. er lagt til, að heimahöfn skipsins verði Vestmannaeyjar og að ríkisstj. verði gefin heimild til að fela rekstur skipsins þeim aðilum, sem hún telur líklegast að geti rekið skipið sem hagkvæmlegast og með þeim hætti, að það þjóni samgöngum á sinni siglingaleið sem bezt, en þar koma að sjálfsögðu til mála Skipaútgerð ríkisins, bæjarstjórnin í Vestmannaeyjum og máske fleiri aðilar.

Það er alkunna, að Vestmannaeyjar hafa um langan aldur búið við samgöngur, sem mjög er ábótavant. Lengi á tímunum fyrir hina síðari heimsstyrjöld voru samgöngurnar þó tiltölulega reglubundnari en þær eru nú, þar sem það var þá viðtekin venja, að flestöll þau skip, sem sigldu milli Íslands og Evrópulanda, höfðu fyrstu viðkomu, er þau komu erlendis frá, og síðustu viðkomu. þegar þau fóru héðan af landi, í Vestmannaeyjum. Þannig voru lengst af 6–8 skip á fastri áætlun með viðkomu í Vestmannaeyjum, og gerði það það að verkum, að hægt var að vita með nokkurn veginn öruggri vissu, að á ákveðnum dögum og reglulega féllu ferðir á milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur.

En á styrjaldarárunum lögðust þessar áætlunarbundnu siglingar alveg af og viðkomur skipanna í Vestmannaeyjum sömuleiðis og hafa ekki verið teknar upp síðan. Þetta bjó Vestmanneyingum að sjálfsögðu fullkomið samgönguöngþveiti á stríðsárunum og á fyrstu árunum eftir stríðið. og var það svo alvarlegt, að það lágu fyrir dæmi um það á stríðsárunum, að fljótast hefði verið hægt að komast frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur með því að sigla með fiskflutningaskipum til Fleetwood í Englandi og taka þaðan önnur skip, sem fóru upp til Faxaflóahafna. Úr þessu hefur að sjálfsögðu nokkuð verið bætt með því, að nú eru þó nokkrir bátar, sem annast flutninga á þessari leið, en farþegaflutningaörðugleikarnir eru að mestu óleystir.

Skipaútgerð ríkisins, sem annast strandsiglingarnar, hefur aukið verulega skipakost sinn eftir stríðið, en sú aukning á skipakosti skipaútgerðarinnar hefur ekki verið miðuð við að leysa vandkvæði þessarar leiðar, enda eru þau sannast að segja óleyst enn þá.

Eina stóra skrefið, sem stigið hefur verið í samgöngumálum Vestmanneyinga á seinni árum, er það, að þar hefur verið byggð flugbraut, sem haldið er uppi flugsamgöngum til daglega, þegar veður leyfir. En reyndin hefur sýnt, að veðurfarið er með þeim hætti í Vestmannaeyjum og raunar á allri þessari flugleið, að þar er ekki hægt að vita með neinni vissu, hvenær flugferðir kunna að falla og hvenær ekki, enda eru mörg dæmi um það, að flugferðir hafa teppzt heilar vikur og jafnvel hátt í hálfan mánuð.

Það kann vel að vera, að þeir, sem ekki búa á slíkum stöðum eins og Vestmannaeyjum eða öðrum, sem eiga máske við hliðstæðar samgöngutafir og truflanir að etja, geri sér litla grein fyrir því, hvaða áhrif þetta hefur á líf og afkomu þeirra íbúa, sem á slíkum stöðum eru, en þess má geta, að þrátt fyrir mikinn blóma í atvinnurekstrinum í Vestmannaeyjum fækkaði þar íbúum á þeim árum, sem samgöngurnar voru verst komnar, og byrjaði ekki að fjölga aftur fyrr en flugsamgöngurnar voru teknar upp. Þá litu menn svo á í upphafi, að þessar samgöngur mundu fara batnandi, eftir því sem tímar liðu, það yrði unnið að því af kappi að gera flugvöll í Vestmannaeyjum sambærilegan þeim flugvöllum, sem bezt eru búnir. Svo hefur ekki orðið, og er það hv. a1þm. flestum kunnugt, að meira að segja venjulegt viðhald á þeirri flugbraut, sem byggð var í Vestmannaeyjum 1946, hefur kostað málflutning hér í Alþingi og er raunar engan veginn svo komið enn þá, að viðhlítandi sé, hvað þá að flugvöllurinn hafi verið stækkaður, hann er aðeins ein braut og því ónothæfur, jafnvel í bezta veðri, ef vindstaðan er um þvera þessa einu braut.

Það er þess vegna augljóst, að dagvissar samgöngur þurfa að komast á við þennan stóra framleiðslubæ. Við annað verður ekki unað. Spurning gæti þó aðeins verið um það, hver ætti að koma þessum samgöngum á. Mér kæmi það ekki alveg á óvart, þótt einhverjir hv. þm. hugsuðu svo eða jafnvel segðu svo, að Vestmanneyingar gætu þetta sjálfir, og það er út af fyrir sig alveg rétt. Vestmanneyingar geta þetta, og að sjálfsögðu verða þeir að gera það, ef ríkið ætlar enn að þverskallast við að framkvæma þá skyldu, sem á því hvílir í þessum efnum. En ég vil svara því til, að það getur ekki leikið vafi á því, að ríkinu ber að koma slíkum samgöngum á. Ríkið kostar allt þjóðvegakerfi landsins, sem kostar milljónatugi árlega. Vestmanneyingar njóta næstum einskis af því. Ríkið smíðar brýr til samgöngubóta yfir læki og ár. Ekkert af því kemur Vestmanneyingum til neinna samgöngubóta. Ríkið kostar til á ári hverju milljónatug, eins og nú er komið, eða máske meiru til að halda uppi strandsiglingum við Ísland. Vestmanneyingar borga sinn hlut af öllu þessu, en afnotin, sem þeir hafa af því, eru harla lítil og ófullnægjandi, og úr þessu verður ekki bætt í svipinn með öðrum ráðum en að koma upp skipi, sem sérstaklega væri ætlað til þess að halda uppi dagvissum samgöngum á þessari leið annan hvern dag eða sem næst því.

Einhverjum fyndist nú máske sjálfsagt, að til væri lagt beinlínis, að skipaútgerð ríkisins yrði falið að hafa á hendi stjórn þessara ferða, og ég skal taka það fram, að ég teldi eðlilegt, að svo væri. Hins vegar er þjónusta skipaútgerðarinnar mjög umdeild, og þykir mér því vel hlýða, að haldið sé opnum möguleikanum til þess, að ríkisstj. geti ráðstafað stjórn slíks skips á annan hátt, ef það þætti betur henta, enda eru engin lög til, sem mæla svo fyrir, að þau strandsiglingaskip, sem ríkið kynni að reka, skuli endilega vera stjórnað af skipaútgerð ríkisins. Og ég vil alveg sérstaklega undirstrika það, að ég tel, að það sé einn aðalgallinn á strandsiglingunum hér, að ríkið hefur hagað útgerð skipa sinna með þeim hætti að staðsetja öll skipin, sem þessa þjónustu eiga að annast, í Reykjavík. Mér virðist liggja ákaflega beint við að staðsetja skipin yfirleitt á þeim stöðum, þar sem þau eiga einkum að veita sína þjónustu, og skip eins og það, sem hér um ræðir, teldi ég öll rök mæla með að yrði látið eiga heimahöfn í Vestmannaeyjum og mannað skipshöfn þaðan.

Ég vil svo að þessari umr. lokinni leggja til, að frv. þessu verði vísað til 2. umr. og til hv. samgmn.