23.03.1956
Neðri deild: 92. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 685 í C-deild Alþingistíðinda. (2019)

192. mál, hnefaleikar

Flm. (Kjartan J. Jóhannsson):

Herra forseti. Rökin fyrir því, að rétt sé að banna hnefaleik, koma að mestu fram í grg. frv. Ég vil þó leyfa mér að bæta þar við nokkru.

Að slys af hnefaleikum eru enn ekki algeng hér á landi, má vafalaust fyrst og fremst þakka því, hvað litlum vinsældum þeir hafa átt hér að mæta. Óbeinlínis má þó rekja allmargar líkamsárásir til þess, að árásarmennirnir hafa lært eða æft hnefaleik.

Erlendis, þar sem hnefaleikakeppni er algeng, eru dauðsföll og önnur slys af hnefaleik tíð. Erlendir læknar, einkum þeir, sem hafa fylgzt með og kynnzt hnefaleikum og áhrifum þeirra á þá, sem iðka þá eitthvað að ráði, hafa á undanförnum árum skrifað talsvert um þá hættu, sem er samfara og fylgir stöðugt þessum ljóta leik. Ég hef þýtt lauslega nokkur ummæli úr nýjustu greinum, sem ég hef séð um þetta efni. Þau eru á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

Læknir í Bandaríkjunum segir, að meðal hnefaleikamanna sé algengur sjúkleiki, sem kallaður hefur verið af læknum „áverkageðveiki“ eða „heilasýki af áverka“. Sjálfir tala sjúklingarnir um að vera „höggdrukknir“.Er það langbezta og ljósasta nafnið. Þessi læknir rannsakaði þennan sjúkdóm um tveggja ára skeið, bæði með því að skoða og tala við hnefaleikarana sjálfa og leitaði sér auk þess þeirra upplýsinga, sem hann gat, hjá aðstandendum þeirra og hjá þeim, sem taka að sér að sjá um og dæma hnefaleik. Helztu einkenni eru: Viðbragðsflýtir minnkar, fótaburðurinn verður stirðari og þunglamalegri, sjúklingunum finnst þó, að allt sé í lagi. Þeim liður ágætlega og finnst, að þeir hafi aldrei verið betur á sig komnir. Þeim gengur þó verr en áður í keppni, en finna alltaf einhverjar afsakanir fyrir því aðrar en sjúkleikann, sem þeir venjulega gera lítið úr eða vilja ekki viðurkenna. Sumir þessara manna hafa þó vit á að hætta, áður en lengra er komið, en aðrir halda áfram. Þá bætast við fleiri einkenni. Gangurinn verður reikull, röddin drafandi, þeir missa vald á tilfinningum sínum o. s. frv.

Talið er, að meira en helmingur þeirra, sem taka þátt í opinberri hnefaleikakeppni í 5 ár, þ. e. í 30–60 kappleikjum, verði fyrir breytingum á tilfinningalífi og geðheilsu, sem er augljós þeim, sem þekkja þá. Nokkrir verða fyrir svo mikilli geðtruflun, að þeir verða að fara í geðveikrahæli.

1954 skýrðu tveir Bandaríkjalæknar frá krufningu 5 hnefaleikara, sem létu lífið í New York. Þeir töldu, að bein orsök dauða þessara manna hefði verið höggið, sem þeir fengu á hnakkann við að falla meðvitundarlausir í gólfið vegna rothöggs, er þeir fengu í keppni.

Til þess að minnka þá hættu er nú farið að setja gúmmí eða annað þvílíkt undir strigann á gólfinu eða byggja sérstaklega gert gólf á pallinum. Ólíklegt er þó, að slíkt dugi, því að þegar höggunum rignir á höfuð hnefaleikara, er sennilegt, að eitt eða fleiri hitti, eftir að hann hefur misst meðvitund. Er þá hætt við, að fallið verði þungt og hann geti komið illa á höfuðið.

Ég ætla ekki að rekja hér frásagnir af sjóndepru eða blindu, sem jafnvel unglingar hafa hlotið af hnefaleikum, þótt af nógu væri að taka.

Enskur skurðlæknir segir, að bæði í Englandi og sumum ríkjum Bandaríkjanna sé stöðugt verið að herða á kröfunum um heilsufar keppenda og gera hnefaleikareglur strangari til þess að reyna að minnka hættuna á alvarlegum slysum. Hann bætir þó við: Það er engin regluleg vörn til við höggum, sem eru vísvitandi hnitmiðuð til þess að lenda með sem mestu afli á viðkvæmustu staði á andliti eða annars staðar á höfðinu. — Sumir halda, að högg, sem greitt er með hnefaleikaglófum, sé hættuminna en högg greitt með óvörðum hnefa. Þetta er hinn mesti misskilningur. Það er einmitt hægt að greiða fleiri og þyngri högg með glófanum. Hann er vörn fyrir hendi þess, sem höggið greiðir, sem annars væri hætt við að brotnaði og gæti því væntanlega ekki greitt fleiri þung högg í það skiptið. Glófinn er hins vegar alls ekki vörn fyrir höfuð þess, sem verður fyrir högginu.

Nú kann einhver að segja, að menn geti meiðzt eða beðið bana við iðkun margra íþrótta, sem engum detti í hug að banna. Það er alveg rétt. En ég verð að segja, að það er mikill munur á því, hvort t. d. skíðamaður teflir of djarflega, mistekst og meiðir sig eða hvort takmarkið er beinlínis að berja andstæðinginn, helzt svo, að hann liggi eftir meðvitundarlaus í blóði sínu eða a. m. k. hálfruglaður skríðandi á blóðvellinum.

Stundum er því haldið fram, að nauðsynlegt sé að kenna hnefaleika, svo að hægt sé að beita kunnáttunni í sjálfsvörn. Gallinn er bara sá, að árásarmenn fara sjaldnast eftir hnefaleikareglunum, hirða síður en svo um, að fórnarlamb þeirra hafi jafna aðstöðu til leiks, og bíða ekki eftir því, að merki sé gefið til þess að hefja árásina. Hitt er algengara, að þeir noti barefli frekar en hnefaleikaglófa. Auk þess er talið, að glímumönnum sé tiltölulega auðvelt að ráða niðurlögum hnefaleikara, og á það við jafnt um íslenzka glímu og japanska. Þess vegna er miklu skynsamlegra að kenna þær íþróttir til sjálfsvarnar.

Það er að verða æ almennari skoðun lækna um allan heim, að hnefaleikar séu alltaf stórhættulegir og eigi engan rétt á sér. Ég veit þó ekki til, að hnefaleikar hafi verið bannaðir með öðrum þjóðum. En ég tel, að okkur væri sómi að því að ríða þar á vaðið, og veit, að meðal erlendra lækna mundi það vekja athygli á okkur sem menningarþjóð og vera tekið til fyrirmyndar.

Ég vil að lokum leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.