28.10.1955
Efri deild: 12. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 696 í C-deild Alþingistíðinda. (2042)

72. mál, skipun prestakalla

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég skal á þessu stigi málsins ekki ganga ýtarlega inn á þetta frv., sem hér liggur fyrir, inn á þá andlegu vanheilsu Vestmannaeyja, sem gerir það lífsnauðsyn að hafa prest á staðnum ævinlega. En mig langaði til þess að biðja hv. nefnd, sem fær málið til meðferðar, að athuga, hvernig sé varið með þau prestaköll í landinu núna, sem prestur er að vísu settur til að þjóna, en býr í 120 km fjarlægð hér í Reykjavík, annar, og hinn í álíka langri fjarlægð yfir sjó að fara, og hafa fengið leyfi biskups til að sitja þar þegjandi og hljóðalaust. (Dómsmrh.: Hverjir eru þetta?) Það veit nú alveg vafalaust hæstv. ráðherra, hverjir það eru. (Dómsmrh.: Sannarlega ekki.) Það kemur sjálfsagt fram seinna í umr., þegar nefndin er búin að rannsaka málið. Væri ekki ástæða til að setja þá einhvern varaprest í þau prestaköll, til þess að það geti alltaf verið prestur þar til staðar, því að prestur, sem býr á Ísafirði og á að þjóna langt í burtu yfir sjó að sækja, getur ekki alltaf verið til staðar? Það getur komið ákaflega fljótt einhver aðkallandi andleg vanlíðan, sem þarf að ná til prests til að lækna, þó að ekki sé hægt að ná í hann. Ég er ekki viss um það, en ég held, að það sé með leyfi biskupsins, sem hann fær að sitja þar, og hann telji nauðsynina ekki meiri en það þar. Það er ég nú ekki viss um samt, að það sé með leyfi hans.

Ég vil biðja nefndina að athuga þetta og sömuleiðis athuga þau prestaköll, sem ekki hafa fengizt prestar í núna upp í kringum 20 ár, og hvernig það er með andlegt ástand sóknarbarnanna þar. Ja, það eru líklega orðin nærri 30 ár, síðan prestar hafa setið í sumum prestaköllum landsins, og það hlýtur að vera orðið mjög bágborið andlega heilsufarið í þeim prestaköllum, þó að prestur hafi verið látinn fara og messa þar einu sinni eða tvísvar á ári.