06.02.1956
Efri deild: 62. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 698 í C-deild Alþingistíðinda. (2047)
150. mál, landshöfn í Keflavíkurkaupstað og Njarðvíkurhreppi
Flm. (Tómas Árnason):
Herra forseti. Ég ásamt hv. 2. þm. S-M. (VH) og hv. þm. S-Þ. (KK) ber fram það mál, sem hér er til umr., frv. til l. um breyt. á l. nr. 23 6. maí 1955, um landshöfn í Keflavíkurkaupstað og Njarðvíkurhreppi, nr. 344.
Eins og frv. þetta ber með sér, fjallar það um breytingu á lögum þeim, sem ég vísaði til um landshöfn í Keflavíkurkaupstað og Njarðvíkurhreppi, þess eðlis, að ef eigi þurfi að nota að fullu heimild laganna til lántöku vegna landshafnarinnar, verði ríkisstj. eigi að síður heimilt að taka heimildarupphæðina að láni og endurlána afganginn hafnar- og lendingarbótasjóðum sveitarfélaga, þar sem hafnarmannvirki eru skammt á veg komin og þörf framkvæmda brýn.
Í frv. er gert ráð fyrir, að ríkisstj. geti falið Framkvæmdabankanum að sjá um lántöku og endurlánveitingu til hafnar- og lendingarbótasjóðanna.
Með setningu laga um landshöfn í Keflavíkur- og Njarðvíkurhreppum, upphaflega nr. 25 23. apríl 1946, var ákveðið að heimila ríkisstj. að taka lán fyrir hönd ríkissjóðs, allt að 10 millj. kr., til greiðslu kostnaðar við byggingu hafnarmannvirkja á þessum stöðum. Með breytingu á landshafnarlögunum, sem gerð var árið 1955, var heimild þessi hækkuð úr 10 millj. kr. upp í 25 millj. kr. Samkvæmt lögunum um landshöfn í Keflavíkurkaupstað og Njarðvíkurhreppi, sem nú hafa verið gefin út með þeirri fyrirsögn, nr. 23 6. maí 1955, skal 1/3 hluti láns, allt að 25 millj. kr., sem ríkissjóður kann að taka í þessu skyni, endurgreiðast úr ríkissjóði, en 2/3 hlutar lánsins úr hafnarsjóði landshafnarinnar. Það er því gert ráð fyrir, að ef heimildin yrði notuð að fullu, legði ríkissjóður fram 81/3 millj. kr. til landshafnarinnar sem beint ríkisframlag.
Ég hef aflað mér upplýsinga um, að þegar hafi verið notaðar um 13 millj. kr. af þeirri heimild, sem hér um ræðir. Eru þá ónotaðar um 12 millj. kr.
Ríkisstj. hefur tilkynnt, að varnarliði Bandaríkjanna hér á landi hafi verið leyft að láta gera uppskipunarhöfn í Njarðvíkum, á því svæði, sem lög nr. 23 6. maí 1955 taka til. Mun varnarliðið ætla að verja yfir 100 millj. kr. í þessu skyni.
Með hliðsjón af þessum upplýsingum er full ástæða til að ætla, að heimild landshafnarlaganna til lántöku allt að 25 millj. kr. verði ekki að fullu notuð í þeim tilgangi, sem í öndverðu var ætlað.
Þótt nokkru fé hafi á undanförnum árum verið ráðstafað til hafnar- og lendingarbóta í landinu, er þó kunn knýjandi nauðsyn á frekari framkvæmdum víðar um landið. Eins og tekið er fram í grg. fyrir frv., álitum við flm. þess, að ef vel væri, þyrfti að gera stórátak í þessum málum. Á fjölmörgum stöðum háttar svo til, að samgöngur byggjast að mestu eða öllu leyti á aðstöðu til samgangna á sjó. Að vísu eru vegir komnir í samband við flest byggðarlög, en þó ekki öll. Auk þess teppast vegirnir meira og minna yfir veturinn, eins og alkunna er. Þar að auki stendur það víða útgerð fyrir þrifum, hve hafnarskilyrði eru ótrygg og léleg. Það er aldrei of mikið undirstrikað, hvað samgöngur eru þýðingarmikill þáttur framfara og aukinnar menningar. Má með réttu segja, að greiðar samgöngur séu lífæð ýmissa byggðarlaga. Ef þær teppast um lengri tíma, horfir til vandræða, og auk þess liggur oft líf við. Við teljum því hafnargerðir og lendingarbætur eitt af stórmálum landsbyggðarinnar.
Eins og áður er vikið að, gerir frv. þetta ekki ráð fyrir nýrri lánsheimild, heldur að lánsheimild, sem þegar hefur verið lögfest, verði vegna þeirra atvika, sem greind eru í grg. frv., notuð í öðrum tilgangi en lögin gera nú ráð fyrir.
Í lögum um hafnargerðir og lendingarbætur frá 1946 er gert ráð fyrir, að ríkissjóður greiði 2/5 af kostnaði við hafnargerð í um 35 kaupstöðum og stærri kauptúnum í landinu. Jafnframt heimilast ríkisstj. að ábyrgjast fyrir hönd ríkissjóðs lán, sem sveitarfélögin taka og leggja fram að sínu leyti. Ef slík lán eru tekin erlendis, skal það gert í samráði við samgmrn., og er sveitarfélögum óheimilt að leita eftir slíkum lánum, nema samþykki þess ráðuneytis komi til. Enn fremur er kveðið svo á í lögunum, að ríkissjóður greiði helming kostnaðar við að gera lendingarbætur á 70–80 stöðum öðrum en áður greinir, og er ríkisstj. jafnframt heimilt að ábyrgjast fyrir hönd ríkissjóðs lán til greiðslu á hinum helmingnum, og er þá miðað við kostnað, sem er undir 800 þús. kr. Ef hann fer yfir 800 þús. kr., færast þessar minni hafnir eða lendingar yfir í fyrri flokkinn, þannig að hlutföllin verða 2/5 og 3/5 í staðinn fyrir helming.
Eins og nú háttar, er yfirleitt hvergi lán að fá innanlands til hafnar- og lendingarbóta. Reynslan hefur sýnt, að það er sveitarfélögum víða ofviða að afla lánanna að eigin frumkvæði. Þar sem svo stendur á, geta þau því ekki hagnýtt sér hagræði laganna um hafnar- og lendingarbætur. Veikari sveitarfélög geta yfirleitt ekki heldur lagt fram eigið fé, svo að nokkru nemi.
Þar sem hér hafa óvænt atvik valdið því, að stórfé er skyndilega lagt til byggingar landshafnar í Njarðvíkum, og þess því að vænta, að ríkissjóður þurfi ekki að nota að fullu lánsheimild, sem þegar er í lögum, virðist þarna gullið tækifæri til að veita smærri sveitarfélögum aukaaðstoð til þess að bæta hafnarskilyrði og lendingar.
Í grg. fyrir frv. þessu bendum við flm. málsins á, að þótt við teljum hina miklu hafnargerð í Njarðvíkum æskilega vegna sjávarútvegsins, verði hún til þess að auka ójafnvægi í byggð landsins, ef ekkert er jafnhliða gert til mótvægis. Með þessu frv. er því gripið tækifæri til þess að styðja þá stefnu, sem Framsfl. hefur ætíð talið meðal sinna helztu stefnumála, að hamla gegn vaxandi ójafnvægi í byggð landsins.
Að mínum dómi verður það ekki gert að neinu gagni nema með skipulagðri fjárfestingu í sveitum og sjávarþorpum.
Þótt hér við Faxaflóa hafi af ýmsum ástæðum skapazt gífurleg spenna í atvinnulífinu, sérstaklega á seinasta ári, þá er því alls ekki svo háttað úti um landsbyggðina. Það hefur að vísu verið mikil atvinna, en hún er víða mjög stopul. Þar sem yfirleitt allir eru sammála um nauðsyn þess að viðhalda landsbyggðinni bæði í sveitum og við sjó, ber að grípa hvert tækifæri, sem býðst, til að auka jafnvægi í byggð landsins. Sá er megintilgangur þessa frv., þótt í smáum stíl sé.
Ég vænti þess, að hv. þm. taki frv. vel, og legg til, að því verði vísað til hv. sjútvn.