16.12.1955
Neðri deild: 36. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 245 í B-deild Alþingistíðinda. (209)
126. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég verð að segja, að mér finnst orðið svo gaman að þessum umr., að ég stilli mig ekki um að segja örfá orð, svona í heldur léttum tón, ef verða mætti.
Það er fyrst þetta: Hv. 2. þm. Reykv. segir, að ég hafi aldrei haft neinn skilning á því, að kaupa þyrfti togara. Ég veit ekki betur en ég hafi átt manna mestan þátt í því, að keyptir voru 10 togarar í viðbót við þá, sem keyptir voru á nýsköpunarárunum svonefndu.
Þá sagði hv. 2. þm. Reykv. annað, sem var enn skemmtilegra. Hann sagði að efni til: Það er ekki von, að það gangi vel í stjórninni. Þarna standa nú að allir þessir tregu menn í Sjálfstfl. frá nýsköpunarárunum og svo allur Framsfl. Það er ekki von, að þetta gangi vel. — En hvernig er þetta? Heyrum við ekki daglega, að þessi hv. þm. heimtar stjórnarmyndun með Framsfl.? Hann krefst þess, að Framsfl. komi í stj. með honum og hans flokki. Hvað á maður að segja um þennan málflutning?