23.11.1955
Sameinað þing: 17. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 5 í D-deild Alþingistíðinda. (2113)

55. mál, alþýðuskólar

Forseti (JörB):

Ástæðurnar fyrir því, að ég lagði til, að um málið yrði höfð ein umr., eru þær, að eftir ályktuninni er ætlazt til, að ríkisstj. framkvæmi þessa vinnu og athugun. Leizt mér sem slík athugun gæti farið fram án stórvægilegs kostnaðar og þess vegna væri eðlilegt, eins og ástatt er um málið nú að þessu sinni, að ákveðin væri aðeins ein umr. og málið færi þá til hv. allshn. Samkv. eðli slíks máls stendur henni nær, að athugun fari fram á slíku máli sem þessu, fremur en að hv. fjvn. hefði málið til meðferðar.

Nú er lagt til, að þessi ályktun verði samþykkt hér óbreytt, og fari svo, þá er, eins og ályktunin ber með sér, ríkisstjórninni falið að láta fara fram þær athuganir, sem þál. fjallar um.